Popp skrifaði:
Lt. Anleitung sollen 12 cm Bündchen gestrickt werden. Wenn ich die Musterzeichnung richtig lese, sind es aber nur 6 cm.
05.01.2013 - 16:23DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Popp, in der Anleitung ist von 12 Reihen, nicht von 12 cm die Rede. Gutes Gelingen!
07.01.2013 - 09:09
Maj-Britt Hansson skrifaði:
Hej! Försöker sti´cka denna babykofta Lea. men får inte ordning på 2 varvet, ska det stickas 1 rätst2 am;* 10 rm 4am* osv precis som första varvet?
04.01.2013 - 11:58DROPS Design svaraði:
Ja fast från avigsidan stickar du 10am, 4rm, så du från rätsiden får de 10 räta maskorna ovanför varann
23.01.2013 - 14:40Kerstin skrifaði:
I have just finished the jacket with Baby Merino and it fits beautifully!
22.10.2012 - 10:49
Charlotte skrifaði:
Vos modèles sont super, mais dommage qu'ils utilisent souvent des aiguilles circulaires. J'ai l'habitude de travailler uniquement avec des aiguilles droites. Il y a t'il possibilité d'avoir les modèles aves uniquement les aiguilles droites. Merci et continuer comme celà, votre site est génial.
29.09.2012 - 12:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Charlotte et merci. Beaucoup de nos modèles se tricotent effectivement sur aiguille circulaire, et comme pour cette veste, en allers retours en raison simplement du nombre important de mailles et pour avoir suffisamment de placer pour toutes les loger et donc faciliter le travail. Je vous recommande de visualiser nos différentes vidéos pour apprendre à tricoter sur aiguille circulaire. Pour toute aide personnalisée, je vous remercie de vous adresser à votre magasin DROPS. Bon tricot !
01.10.2012 - 09:06Alma skrifaði:
Podran poner la muestra del grosor del estambre a utilizar tambien decirme q significa kson muy amables al compartir sus diseños en verdad q me han servido de mucho muchas gracias
09.09.2012 - 02:20DROPS Design svaraði:
Alma, para obtener toda la información y características de la lana a usar, favor hacer clic debajo de la lista de materiales, donde dice "ver muestrario de colores para: BabyAlpaca Silk".
09.09.2012 - 06:25
Linda skrifaði:
Mamma strikket denne til dattera mi, i str 0-3 mnd. Og den er så fiiiin!! Helt fantastisk. Mykeste, beste garnet, og veldig fint mønster på denne kåpa. Stor i str, kunne ikke bruke den før hun var 2 mnd, og nå er hun 3 mnd, og den passer en god stund til:) Har nesten lyst på en til til neste sommer!
02.09.2012 - 13:12Emilija skrifaði:
(2/2) Also - although I already knew from earlier works that, but I did not expect that much of a mismatch - the sizes are absolutely off. I knitted size for a 2 year old (and my daughter will turn 2 in 2 months), but it is huge, don't imagine putting it on her for at least a year. Don't know what to do now. So much work, so much yarn, total waste - too big, too ugly.
30.06.2012 - 12:41Emilija skrifaði:
(1/2) This sweater - because of the yarn - is a total bag. It doesn't look anything like the one in the picture. Moss stitch is not to be recognized, looks some kind of mess in that part.
30.06.2012 - 12:41
Lea#leajacket |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með bylgjukanti og áferðamynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS Baby 21-14 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TVÖFALT PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 3: brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 4: Eins og umferð 2. Endurtakið umferð 1 til 4. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki. Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. PEYSA: Fitjið upp 366-394-422 (450-478) lykkjur á hringprjóna 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið stroff þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan -, 2 lykkjur brugðið, * 10 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 13 lykkjur eru eftir og endið með 10 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið og 1 lykkja GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 8-8-12 (12-12) umferðir stroff. Fækkið nú um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri sléttri einingu með því að allar 10 lykkjur slétt eru prjónaðar þannig (4 lykkjur brugðið eru prjónaðar eins og áður): Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 158-170-182 (194-206) lykkjur (= 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið). Prjónið 1 umferð frá röngu með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 44-44-40 (40-36) lykkjur jafnt yfir = 114-126-142 (154-170) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki eftir 29-32-36 (39-43) lykkjur og eitt prjónamerki eftir 85-94-106 (115-127) lykkjur (merkir miðju í hliðum). Bakstykki = 56-62-70 (76-84) lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Haldið nú áfram í sléttprjóni og 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 10-11-12-16-18 cm frá prjónamerki. Prjónið nú M.1. Þegar M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 18-19-21 (25-28) cm frá prjónamerki eru felldar af 6 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki) fyrir handveg. Prjónið síðan fram- og bakstykki til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 50-56-64 (70-78) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 42-48-56 (62-70) lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-22-24 (28-31) cm prjónið M.2 yfir allar lykkjur. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með tvöföldu perluprjóni þar til stykkið mælist 25-27-30 (35-39) cm. Fellið nú af miðju 20-22-24 (26-28) lykkjur fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja til viðbótar við hálsmál 10-12-15 (17-20) lykkjur eftir á hvorri öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 27-29-32 (37-41) cm frá prjónamerki. Fellið laust af. Stykkið mælist alls 32-34-38 (43-47) cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 26-29-33 (36-40) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í hlið eins og á bakstykki = 22-25-29 (32-36) lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-22-24 (28-31) cm prjónið M.2 yfir allar lykkjur. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-27 (31-34) cm frá prjónamerki eru 6-7-7 (7-8) lykkjur við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2-2-3 (4-4) sinnum = 10-12-15 (17-20) lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 27-29-32 (37-41) cm frá prjónamerki. Fellið laust af. Stykkið mælist alls 32-34-38 (43-47) cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. ERMI: Fitjið upp 44-44-44 (50-50) lykkjur á prjóna 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (umverð 1 = frá réttu) 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 3-3-4 (4-4) cm prjónið 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 6-4-4-8-6 lykkjur jafnt yfir = 38-40-40 (42-44) lykkjur. Skiptið yfir á prjóna 3. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með 4-2½-2 (2-2) cm millibili alls 3-5-7 (9-10) sinnum = 44-50-54 (60-64) lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-13-14 (17-19) cm prjónið M.2. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATH! Passið uppá að perluprjónið verði eins í hvorri hlið. Haldið áfram að auka út í hvorri hlið – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í perluprjón. Haldið áfram þar til stykkið mælist 17-19-21 (25-29) cm. Fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið fyrir ermakúpu. Fellið síðan af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í byrjun hverrar umferðar: 3 lykkjur 0-0-0 (1-1) sinni, 2 lykkjur 2-3-3 (3-3) sinnum og 1 lykkja 3-1-0 (0-0) sinnum. Fellið nú af 2 lykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 21-23-25 (29-33) cm. Fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið 1 sinni. Stykkið mælist nú ca 22-24-26 (30-34) cm. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju og saumið ermar í. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið efst í hálsmáli. Prjónið upp 82-86-94 (106-118) lykkjur á prjóna 2,5 frá réttu innan við 1 kantlykkju niðri meðfram vinstra framstykki. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram þar til kantur að framan mælist ca 2-2-2 (2½-2½) cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið eins og vinstri kantur að framan, nema þegar stroffið mælist ca 1 cm þá eru fellt af fyrir 5-5-6 (6-7) hnappagötum. Efsta hnappagatið er ca 1 cm frá hálsmáli, það neðsta ca 2 cm frá neðri kanti. Fellt er af fyrir hinum hnappagötunum með ca 6-7-6 (7-6) cm millibili. Fellt er af fyrir öllum hnappagötum með því að fella af í 2 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið og slá 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið síðan stroff eins og áður þar til stroffið mælist ca 2-2-2 (2½-2½) cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KRAGI: Prjónið upp 68 til 96 lykkjur frá réttu á prjóna 3 (meðtaldar lykkjur af þræði) og meðtalinn kantur í hvorri hlið að framan (í kant að framan eru prjónaðar upp lykkjur yst í lykkjubogana). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 76-84-92 (100-108) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan TVÖFALT PERLUPRJÓN yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 4 cm. Fellið laust af. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #leajacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.