Sheila Axworthy skrifaði:
Hi, can I use this pattern for a plain cardigan using a single thread, if so which wool would I use? Thank you Sheila
05.12.2017 - 10:01DROPS Design svaraði:
Dear Sheila, yes, you could use this pattern that way - for a single yarn you can choose some from Yarn group C here . More informations about how tu replace yarns you could find in our DROPS Lessons - here . Happy knitting!
05.12.2017 - 10:44
Christiane skrifaði:
Hallo! Ich bin dabei den ersten Ärmel zu Stricken und habe beim updaten eine Frage. Muss nach 57 cm am Anfang der Vorderreihe jeweils ab gekettet werden oder auf beiden Seiten also auf der Hin & Rückreihe? Vielen Dank für Ihre Hilfe, Christiane Maisch
21.07.2017 - 12:49DROPS Design svaraði:
Liebe Christiane, nach 57 cm 7 M am Anfang der nächsten 6 Reihen abketten, dh 7 M in jede 2. Reihe 3 x auf beiden Seiten abketten = es werden 21 M auf beiden Seiten abgekettent = 66 - 21 - 21 = 24 M sind übrig. Viel Spaß beim stricken!
21.07.2017 - 13:55
Delhez skrifaði:
Bonjour, J'ai commandé 350g de brun référence:300 et 300g de couleur référence672 bourgogne mix afin de réaliser ce modèle. Devais-je aussi commander 300g de rouge foncé? en effet comme il n'y avait qu'une référence, j'ai fortement hésité... Merci pour votre réponse
23.01.2017 - 13:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Delhez, il faut effectivement commander les 2 couleurs, on tricote soit avec 2 fils brun soit avec 1 fil de chaque couleur. Bon tricot!
23.01.2017 - 13:17
Kristian Vigsø skrifaði:
Hei. jeg lurer på hvilke brystmål man må ha for å kunne passe small og medium? mvh kristian
19.01.2016 - 17:23DROPS Design svaraði:
Hej Kristian. Se maaleskitsen nederst paa mönstret. Her finder du alle maal i cm per str.
20.01.2016 - 15:26
Apikin skrifaði:
Bonjour , sur le schéma du modèle il est montré une manche droite . Or en suivant les explications de la fin de manche il faut diminuer pour que la manche se termine en arrondi J'espère qu'il n’y aucune erreur et que c'est simplement un schéma simplifié . J'ai commencé ce modèle avec les coloris indiqués : il est superbe ! Je ne voudrais pas être déçue au niveau du montage des manches . Merci pour votre aide .Cordialement .
22.12.2014 - 16:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Apikin, effectivement, le schéma est simplifié et on forme bien un arrondi en haut des manches, tout est juste ainsi. Bon tricot!
23.12.2014 - 18:48
Silja skrifaði:
Jos neuloo neuleen drops alpacasta niin neulotaanko silloin yksinkertaisella langalla?Mikä on langanmenekki kokoon m ja s?
10.07.2013 - 22:47DROPS Design svaraði:
Kyllä, neulot yksinkertaisella Alpaca-langalla. Langan menkin voit laskea lankaryhmäsivuillamme olevan taulukon avulla. Eli esim. 7 x 205 m = 1435 m (Fabel). Alpaca-kerässä on vain 167 m. 1435/167 = n. 8.6. Eli tarvitset n. 9 kerää Alpaca-lankaa.
15.07.2013 - 13:46
Kurt skrifaði:
Guten Tag, verstehe ich das richtig, dass das Modell grundsätzlich mit zwei Fäden gestrickt wird? Also Bündchen mit 2 braun und der Rest mit 1 braun und 1 melliert? Sollen die Fäden eher verdreht gestrickt werden oder wie sie kommen, also eher nebeneinander? Vielen Dank im Voraus!
31.01.2013 - 12:27DROPS Design svaraði:
Lieber Kurt, die Fäden werden genauso kombiniert wie Sie es schreiben. Sie müssen nicht speziell verdreht werden, einfach zusammen verstrickt.
01.02.2013 - 21:02
Firecracker#firecrackercardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa fyrir herra úr 2 þráðum úr DROPS Fabel. Stærð S - XXXL.
DROPS 135-28 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. HNAPPAGAT: 1 hnappagat = prjónið 2 l sl saman og slá 1 sinni uppá prjóninn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 76-84-90-98-108-118 l (meðtalin er 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 2 þráðum í litnum brúnn DROPS Fabel. Í umf 1 (= frá rétta) er prjónað stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! *1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff í 3 cm. Skiptið yfir á prjóna nr 5 og prjónið áfram í sléttprjóni með 1 þræði í hvorum lit. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm eru sett prjónamerki í byrjun og enda á umf (hér byrjar handvegur). Haldið áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Fellið af miðju 16-16-18-18-20-20 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 l í næstu umf frá hálsi = 28-32-34-38-42-47 l á hvorri öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 40-44-46-50-56-60 l (meðtalin er 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 2 þráðum í litnum brúnn DROPS Fabel. Í umf 1 (= frá réttu) er prjónað stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff 3 cm. Skiptið yfir á prjóna nr 5 og prjónið áfram í sléttprjóni með 1 þræði í hvorum lit – Jafnframt er fækkað um 1-1-0-0-1-0 l í umf 1 frá réttu = 39-43-46-50-55-60 l. Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Fellið af 1 l í byrjun á næstu umf frá miðju að framan. Endurtakið úrtöku í 6. hverri umf í öllum stærðum alls 11-11-12-12-13-13 sinnum = 28-32-34-38-42-47 l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm er sett prjónamerki í lok umf (hér byrjar handvegur). Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 40-42-44-46-48-50 l (meðtalin er 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 2 þráðum í litnum brúnn DROPS Fabel. Í umf 1 (= frá réttu) er prjónað stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff 3 cm. Skiptið yfir á prjóna nr 5 og prjónið áfram í sléttprjóni með 1 þræði í hvorum lit. Þegar stykkið mælist 8-8-7-6-6-6 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju hvoru megin á stykkinu. Endurtakið útaukningu með 4-4-3½-3½-3-3 cm millibili alls 12-12-13-14-15-15 sinnum = 64-66-70-74-78-80 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 58-57-56-55-53-51 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegan breiðari axla). Fellið af efst á ermi í næstu umf frá réttu þannig: Fellið af 7-7-8-8-9-9 l í byrjun á næstu 6 umf = 22-24-22-26-24-26 l eftir. Fellið laust af allar l frá réttu. Nú mælist stykkið ca 61-60-59-58-56-54 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma frá réttu með lykkjuspori. Saumið ermar í á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju KANTUR AÐ FRAMAN: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna nr 4,5 með 2 þráðum í litnum brúnn DROPS Fabel. Byrjið neðst niðri í kanti á hægra framstykki, prjónið upp frá réttu ca 240-300 l upp meðfram hægra framstykki, kringum hálsmál og niður meðfram vinstra framstykki. Prjónið næstu umf (= ranga) – Jafnframt eru lykkjufjöldinn stilltur af til 263-271-281-289-297-305 l. Í næstu umf frá réttu er prjónað stroff þannig: Prjónið 1 l sl, * 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-* út umf. Prjónið 1 umf stroff. Í næstu umf ( = frá réttu) er fellt af fyrir 4 hnappagötum – sjá útskýringu að ofan – jafnt yfir á vinstra kanti að framan (milli kants að neðan og þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjar). Haldið áfram að prjóna 3 umf stroff, í næstu umf er fellt laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br. Saumið tölur í hægri kant að framan. VASI: Fitjið upp 27-29-31-33-35-35 l með 1 þræði í litnum brúnn og 1 þræði í litnum vínrauður í DROPS Fabel á prjóna nr 5. Prjónið sléttprjón 14-14-15-15-16-16 cm, skiptið yfir á prjóna nr 4,5 og prjónið áfram með 2 þráðum í litnum brúnn þannig: Prjónið 1 l sl, * 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-*. Prjónið stroff þar til stykkið mælist ca 16-16-17-17-18-18 cm, fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið annan vasa á sama hátt. Saumið vasana fyrir miðju á hægra og vinstra framstykki ca 5 cm frá uppfitjunarkanti. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #firecrackercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.