DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Nepal yarn
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 134-42

#moonsocks

DROPS Design: Mynstur nr NE-073
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/39 - 40/42
Lengd fótar: 22-24-26 cm

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
100-150-150 gr litur nr 0517, milligrár/ litur nr 3720, millibleikur
100-150-150 gr litur nr 0501, grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og PRJÓNAR NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l og 17 umf með sléttprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA 538: 4 stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR:
LEGGUR / STROFF:
Fitjið upp 36-38-40 l á sokkaprjóna nr 6 með 1 þræði með litnum milligrár / millibleikur og 1 þræði í litnum grár. Prjónið stroffprjón 1 l sl, 1 l br hringinn þar til stykkið mælist ca 10 cm.
FÓTUR: Haldið eftir fyrstu 9-11-11 l í umf á prjóni en hinar 27-27-29 l eru settar á þráð. Haldið áfram með stroffprjón fram og til baka yfir 9-11-11 l JAFNFRAMT í umf 1 er fitjuð upp 1 ný lykkja í hvorri hlið (kantlykkja) = 11-13-13 l. Þegar 7-8,5-10 cm hafa verið prjónaðir er felld af 1 kantlykkja í hvorri hlið 9-11-11 l. Setjið nú lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið 12-14-16 l upp hvoru megin við miðjustykkið (innan við 1 kantlykkju) = 60-66-72 l á prjóni. Héðan er nú mælt.
Setjið eitt prjónamerki við miðju framan á tá og eitt prjónamerki við miðju aftan á hæl. Haldið áfram hringinn með stroffprjón eins og áður í 2 cm. Prjónið nú til loka í sléttprjóni – JAFNFRAMT eru prjónaðar 2 l sl saman hvoru megin við hvort prjónamerki í annarri hverri umf (= 4 l færri í hverri umf) haldið áfram úrtöku þar til sléttprjónið mælist 3-3-4 cm – fellið af. Saumið saum undir fæti yst í lykkjurnar svo saumurinn verði ekki of þykkur.

STYKKI OFAN Á TÁTILJU PRJÓNAÐ ÞVERSUM:
Fitjið upp 15-17-17 l á prjóna nr 6 með 1 þræði í litnum milligrár / millibleikur og 1 þræði í litnum grár. Prjónið þannig: Prjónið 1 l GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl og 1 l garðaprjón.
Þegar stykkið mælist 2 cm er fellt af fyrir 2 hnappagötum frá réttu þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, 1 l sl, 1 l br, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl saman, 1 l br, 1 l sl, 1 l garðaprjón.
Haldið áfram með stroffprjón og garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 36-37-38 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.
Saumið tölur í stykkið og hneppið. Dragið stykkið 2 cm niður yfir legginn með tölunum á ytri hlið á tátiljunni og saumið saman við uppfitjunarkantinn frá röngu með smáu spori.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt, en saumið tölur í gagnstæða hlið.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-42

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (300)

country flag Judy skrifaði:

Please re check this pattern. There is no way that it's another 4" from side seam down through sides of foot to bottom.. it just ruined the slipper I was knitting now I have to take it all out and start a different one.. hope that pattern I choose is correct

16.10.2014 - 20:48

DROPS Design svaraði:

Dear Judy, you start leg with ribbing for 4", then sew loose cuff 3/4" (= 0.75") down on foot. See also video below, time code 15:05. Happy knitting!

17.10.2014 - 09:58

country flag Maria skrifaði:

Hello again, from my last question about picking up the edge stitches... I understand how to pick them up but the problem Im encountering is that for some reason I'm not ending up with enough to pick up 14 even though I've knit to the correct length and I'm not sure what is going wrong.

16.10.2014 - 19:26

DROPS Design svaraði:

Dear Maria, you may have a different tension in height, and can adjust number of sts to 14 inc evenly when picking up sts. Happy knitting!

17.10.2014 - 09:18

country flag Gertrude McCarty skrifaði:

I would like to make the Moon Socks in sizw 7 1/2 but am not sure how much yarn to order

16.10.2014 - 00:52

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs MacCarty, in size 7½, you need 150 g (= 3 balls DROPS Nepal) in each of the both colours 0517 + 0501, ie a total of 6 balls. Happy knitting!

16.10.2014 - 09:41

country flag Carol skrifaði:

This section of the pattern, At The Same Time k2 tog on each side of both markers on every other round (=4 st less per round) is that meant to be 4 Dec then a non decrease round. I ended up with a triangle in the bottom of the slipper.

14.10.2014 - 05:41

DROPS Design svaraði:

Dear Carol, you are correct, you will dec 4 sts on a round, then work 1 round withouth dec, until the section in stocking st measures 3-4 cm (see size). When you fold the slipper double, toe and heel side will "lean" towards middle to shape the sole. Happy knitting!

14.10.2014 - 10:00

country flag Bonnie skrifaði:

Is there a chance you can get this pattern for crochet?

14.10.2014 - 00:16

DROPS Design svaraði:

Dear Bonnie, you request has been registered - for now, you can find here all our crocheted slippers. Happy crocheting!

14.10.2014 - 09:38

country flag Janine skrifaði:

I have just completed the bootie/slipper part of this pattern. This has been one of the most confusing patterns I've encountered. It's not the actual knitting that is difficult, just the way it's worded, and would really have liked voice description on the video...I am going to keep trying because I like the way these slippers look...wish me luck!

14.10.2014 - 00:00

country flag Maria skrifaði:

I am getting stuck here: work the 9-11-11 sts in rib as before, then inside 1 edge st pick up 12-14-16 sts along the side of the upper piece. When I go to pick up the stitches (I'm doing the size with 14), I can only get 11. Any idea what I am doing wrong? Do I need to make the upper foot piece longer? I have watched the video and I seem to be following the pattern correctly otherwise.

13.10.2014 - 23:02

DROPS Design svaraði:

Dear Maria, when picking up sts along the upper piece, you should pick up 14 sts in the 2nd size - the video below may help you to get how to pick up the sts (from time code 1:32). Happy knitting!

14.10.2014 - 10:06

country flag Laura skrifaði:

Hi, I'm having a little trouble at this point: Continue with rib back and forth over the 9-11-11 sts - AT THE SAME TIME on 1st row cast on 1 new st in each side (edge st) = 11-13-13 sts. How do you cast on to both sides? Are you picking up a stitch or...? I have tried doing one end and then working the row and adding at the other, but then the ribbing gets messed up. Thank you!

13.10.2014 - 00:26

DROPS Design svaraði:

Dear Laura, you can Kfb into first and last st or cast on 1 new st at the end of 2 first rows as in the video below. Happy knitting!

13.10.2014 - 10:21

country flag Elisabeth skrifaði:

Is it possible to have the pattern i baby/children sizes?

11.10.2014 - 11:13

DROPS Design svaraði:

Dear Elisabeth, your request has been registered, thank you. Please click here to have an overview of all our slippers for kids & babies. Happy knitting!

11.10.2014 - 11:22

country flag Michelle skrifaði:

Hi I am wondering how many needles i need as the dbl pointed needles only come with 4 and your video she uses up to 6 this is confusing

11.10.2014 - 06:51

DROPS Design svaraði:

Dear Michelle, when all sts are picked up/ knitted back from st holder, sts are distributed onto 4 double pointed needle, we work then with the 5th needle. Happy knitting!

11.10.2014 - 11:15