Lisa Vig skrifaði:
Elsker vest især om vinteren tror dette kan blive en ynglings
18.06.2011 - 21:16
Kashaya76 skrifaði:
Simple et élégant, j'aime bien
17.06.2011 - 09:51
Ewa Weghammar skrifaði:
Jag älskar väst, får och stickning, så vad kan vara mer perfekt! Klar favorit, bland många andra.
15.06.2011 - 17:55Linda skrifaði:
Cool, classy and understated at the same time. Simly gorgeous! Linda from Italy
14.06.2011 - 02:02
Sara skrifaði:
Absolutely beautiful
13.06.2011 - 03:52
Tina Majcherek skrifaði:
Lækkert lækkert design
12.06.2011 - 16:31Moly skrifaði:
Precioso, sencillo y muy calentito. Me encanta!
11.06.2011 - 20:47
Nana skrifaði:
J adore tres elegant merci
08.06.2011 - 20:49
Marina Rivas skrifaði:
I really like this model, as soon as you have the pattern I will make it.
07.06.2011 - 04:42
Typh skrifaði:
J ADORE !!!!! pourvu qu'il soit dans la collection... 1 000 MERCIS
06.06.2011 - 14:05
Montana#montanavest |
|
|
|
Prjónað vesti úr DROPS Alaska með hekluðum kanti úr DROPS Puddel. Stærð S-XXXL.
DROPS 134-30 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn, þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan, til þess að koma í veg fyrir göt. ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál): Fækkið um 1 l innan við 4 l í garðaprjóni meðfram haldveg og 5 l í garðaprjóni meðfram hálsmáli. FRÁ RÉTTU: Á eftir 4 eða 5 l í garðaprjóni: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Á undan 4 eða 5 l í garðaprjóni: Prjónið 2 l sl saman. FRÁ RÖNGU: Á eftir 5 l í garðaprjóni: Prjónið 2 l br saman. Á undan 5 l í garðaprjóni: Prjónið 2 l snúnar br saman, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 4. og 5. l í kanti að framan. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 22, 29, 36 cm. STÆRÐ M: 23, 30, 37 cm. STÆRÐ L: 24, 31, 38 cm. STÆRÐ XL: 25, 32, 39 cm. STÆRÐ XXL: 26, 33, 40 cm. STÆRÐ XXXL: 27, 34, 41 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 86-92-100-108-118-128 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5 með Alaska. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið innan áður en byrjað er á handveg. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið = 2 l færri. Endurtakið úrtöku með 6-6-6-6-7-7 umf millibili alls 10 sinnum = 66-72-80-88-98-108 l. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm (öll úrtaka á nú að vera lokið) prjónið 8 umf í garðaprjóni yfir allar l (umf 1 er frá réttu), haldið nú áfram í sléttprjón með 1 kantlykkju eins og áður – Jafnframt er aukið út um 1 l – Lesið ÚTAUKNING að ofan – innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið frá næstu umf frá réttu. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf alls 4 sinnum = 74-80-88-96-106-116 l. Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm er prjónað frá réttu 2 umf garðaprjón yfir síðustu 7-7-8-9-11-13 l í hvorri hlið (garðaprjón til loka, aðrar l eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður). Prjónið nú næstu 2 umf þannig: Fellið af 3-3-4-5-7-9 l í byrjun á prjóni fyrir handveg, 4 l garðaprjón (= kantlykkja í hlið til loka). Fellið nú af 1 l innan við 4 l í garðaprjóni í hvorri hlið frá réttu – Lesið ÚRTAKA að ofan – alls 5-6-8-9-10-12 sinnum = 58-62-64-68-72-74 l. Haldið áfram í sléttprjóni og 4 l í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm fellið nú af miðju 16-16-18-18-20-22 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 20-22-22-24-25-25 l eftir á hvorri öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 43-46-50-54-59-64 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan) á prjóna nr 5 með Alaska. Prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið nú sléttprjón en síðustu 5 l við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni (= lykkjur í kanti að framan) til loka. Haldið áfram með 5 kantlykkjur í kanti að framan og 1 kantlykkju í hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm byrjar úrtaka í hlið eins og á bakstykki = 33-36-40-44-49-54 l. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm er fellt af fyrir fyrsta HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm eru prjónaðar 8 umf í garðaprjóni yfir allar l (umf 1 er frá réttu). Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, fækkið um 1 l – Lesið ÚRTAKA að ofan, prjónið sléttprjón og aukið út um 1 l á undan 1 kantlykkju. Endurtakið úrtöku fyrir hálsmál við miðju að framan í 5. hverri umf alls 9-9-10-10-11-12 sinnum – Jafnframt er haldið áfram með útaukningu í hliðum eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm er prjónað frá réttu 2 umf garðaprjón yfir síðustu 7-7-8-9-11-13 l á prjóni (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf eru felldar af fyrstu 3-3-4-5-7-9 l fyrir handveg, prjónið 4 umf garðaprjón og prjónið út umf. Fellið af innan við 4 l í garðaprjóni í hlið eins og á bakstykki. Þegar allri úrtöku er lokið (við handveg og hálsmáli) eru 20-22-22-24-25-25 l eftir á öxl. Prjónið nú sléttprjón með 4 l í garðaprjóni við handveg og 5 l í garðaprjóni við hálsmál þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Fellið laust af allar l. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd og án hnappagata. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið tölurnar í vinstri kanti að framan. KRAGI: Kraginn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna nr 8 með Puddel. Setjið tvö prjónamerki við kantinn á hálsmáli ca 7 cm ofan við garðaprjón á brjósti. Prjónið upp frá réttu ca 60 til 70 l á milli prjónamerkja kringum hálsmál. Prjónið garðaprjón yfir allar l í ca 6-6-7-7-8-8 cm. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið síðustu 4 l slétt saman 2 og 2 í næstu 2 umf (= 4 l færri í hverri umf). Í byrjun á næstu 2 umf eru felldar af 8-8-9-9-10-10 l. Haldið áfram í garðaprjóni yfir þær l sem eftir eru þar til kraginn mælist 13-13-14-14-15-15 cm. Fellið laust af allar l. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál nr 7 með Puddel og byrjið neðst í hægri kanti að framan þannig: * Heklið 1 fl, 2 ll, hoppið yfir 1,5 cm *, endurtakið frá *-* upp meðfram hægri kanti að framan, kringum kraga og niður meðfram vinstri kanti að framan. ATH: Passið uppá að heklaði kanturinn sé ekki of stífur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #montanavest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.