Graziele skrifaði:
Boa noite. Estou no Brasil. Você envia os produtos para nós?
24.05.2018 - 01:39DROPS Design svaraði:
Bom dia, Pode encomendar nossos fios através de uma loja DROPS (veja na página das lojas DROPS) que enviam encomendas para o Brasil.
04.07.2018 - 11:52
Emilia skrifaði:
“ajustar para que la hilera sig sea una hilera por el LR – tejer de revés los 6 pts centrales, en cada hilera, por 4 hileras (tejer los pts restantes como antes). En la hilera sig, dividir la pieza al centro del frente para la abertura ” Este texto lo he copiado del patrón, cuando dicen “hilera” es “pasada”? Cuando dicen “tejer de reves” es “pto revés”? Gracias.
18.03.2018 - 21:09DROPS Design svaraði:
Hola Emilia, hilera significa fila o pasada, dependiendo del país se utiliza un término u otro.Tejer de revés significa trabajar en punto jersey revés.
08.04.2018 - 18:41
Emilia Abad skrifaði:
“ajustar para que la hilera sig sea una hilera por el LR – tejer de revés los 6 pts centrales, en cada hilera, por 4 hileras (tejer los pts restantes como antes). En la hilera sig, dividir la pieza al centro del frente para la abertura ” Este texto lo he copiado del patrón, cuando dicen “hilera” es “pasada”? Cuando dicen “tejer de reves” es “pto revés”? Gracias.
18.03.2018 - 21:07
Bettina skrifaði:
Tolles Modell für Drops-Anfänger! Einfache Anleitung und wunderschönes Resultat :) Anleitung fällt etwas klein aus, empfehle immer eine Nummer größer zu stricken, als man eigentlich benötigt. Super Muster! Danke!
01.05.2008 - 07:52
Mia skrifaði:
Den var lätt att sticka och resultatet blev snyggt. Toppen!
17.01.2007 - 21:03
Naxos#naxossweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa v-hálsmáli og klauf í hliðum úr DROPS Safran og DROPS Cotton Viscose.
DROPS 78-8 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, í stykkjum og saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Fitji upp 72-78-84-92-100 l á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af DROPS Safran + 1 þræði af DROPS Cotton Viscose (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og haldið áfram í sléttprjóni með 3 l garðaprjón í hvorri hlið. (= klauf/op). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7 cm endar klaufin. Fitjið upp 1 nýja l í hvorri hlið (= kantlykkja til þess að sauma stykkið saman) = 74-80-86-94-102 l. Haldið áfram í sléttprjón og 4 l garðaprjón í hvorri hlið þar til prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir klauf/op. Prjónið nú sléttprjón yfir allar l. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! ÚTAUKNING Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið með 10 cm millibili alls 3 sinnum = 80-86-92-100-108 l. MYNSTUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29 cm er prjónað áfram í garðaprjóni yfir allar l. V-LAGA HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist ca 33-34-35-36-37 cm – passið uppá að næsta umf er prjónuð frá röngu – prjónið miðju 6 l brugðið í 4 umf = 4 umf garðaprjón sem eru gagnstæðir miðað við þær l sem eftir eru (aðrar l eru prjónaðar slétt í öllum umf). Í næstu umf skiptist stykkið við miðju við op við hálsmál og helmingur l eru settar á þráð. FYRRI HLUTI: Haldið áfram í garðaprjóni og 3 lykkjur við hálsmál eru prjónaðar brugðið í öllum umferðum. HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39 cm er fellt af fyrir handvegi í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 4 l 1 sinni, 3 l 0-1-1-1-2 sinnum, 2 l 1-1-2-3-3 sinnum og 1 l 4-3-3-4-4 sinnum. HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54 cm er fellt af 7 l við miðju að framan við hálsmál. Fellið síðan af við hálsmál í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 4 sinnum = 14-15-16-17-18 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62 cm. SEINNI HLUTI: Setjið l af þræði aftur til baka á prjóninn og prjónið upp eins og FYRRI HLUTI. ATH: Umferð 1 er prjónuð frá miðju að framan. Byrjið með að taka upp 1 l í fyrstu l frá hinni hliðinni og prjónið hana saman með 1. l á prjóni. Þetta er gert til þess að styrkja neðri brún á hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki, en stykkinu er ekki skipt upp við hálsmál. Fellið af fyrir handveg á sama hátt og á framstykki og prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60 cm. Fellið nú af miðju 28 l fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 2 l í næstu umf við hálsmál = 14-15-16-17-18 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62 cm. ERMI: Fitjið upp 36-38-40-42-44 l (meðtalin 1 kantlykkja á hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af DROPS Safran + 1 þræði af DROPS Cotton Viscose (= 2 þræðir). Prjónið garðaprjón í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og haldið áfram í sléttprjóni að loka máli. Jafnframt þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið með 3,5-3-3-2,5-2,5 cm millibili alls 12-13-13-14-15 sinnum = 60-64-66-70-74 l. Þegar ermin mælist 48-47-46-44-43 cm er fellt af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 5-6-7-9-10 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 57 cm, að lokum eru felldar af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Stykkið mælist ca 58 cm, fellið af þær l sem eftir eru. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. LISTI Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 80-86 l í kringum hálsmál á hringprjón nr 4,5 með 1 þræði af DROPS Safran + 1 þræði af DROPS Cotton Viscose (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf garðaprjón, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju að klauf/opi. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #naxossweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 78-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.