DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Safran yarn
DROPS Safran
100% Bómull
frá 484.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2420.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS Extra 0-621

#ballerinawrap

DROPS Design: Mynstur nr E-147
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

GARN:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
250-250-300-300-350-350 gr litur nr 17, hvítur

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 3.
DROPS PRJÓNAR NR 2,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 3 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 484.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2420.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum innan við 15 lykkjur (= 5 lykkjur garðaprjón + 10 lykkjur mynstur): Fækkið lykkjum á eftir 15 lykkjum þannig (á við um hægra framstykki): Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 15 lykkjum þannig (á við um vinstra framstykki): 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 86-96-106-116-126-136 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með DROPS Safran.
Prjónið 10 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Skiptið yfir á prjón 3.
Haldið áfram í sléttprjóni (umferð 1 = rétta) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-4-4-5-5 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 2 cm millibili alls 7 sinnum = 100-110-120-130-140-150 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 4 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 3 lykkjur 0-0-1-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-3-3-3 sinnum og 1 lykkja 3-5-4-5-4-4 sinnum = 82-84-86-88-92-96 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-35-37-39-41-43 cm prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir miðju 34-34-36-36-38-38 lykkjur (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni), síðan eru felldar af miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl (= 29-30-30-31-32-34 lykkjur) er prjónuð hvor fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni með 5 lykkjur garðaprjón við hálsmál þar til stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm, fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 63-68-73-78-83-88 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með DROPS Safran.
Prjónið 10 umferðir garðaprjón, skiptið yfir á prjón 3.
LESTU ALLAN NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
MYNSTUR: Haldið áfram þannig (frá réttu): 5 lykkjur garðaprjón, M.1 (= 10 lykkjur), 47-52-57-62-67-72 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
VAFNINGUR – ÚRTAKA: Jafnframt í 3. umferð eftir garðaprjón (þ.e.a.s. frá réttu): Fækkið um 1 lykkju við miðju að framan – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 20-20-21-21-22-22 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 8 sinnum í öllum stærðum og í lokin í 6. hverri umferð 4 sinnum í öllum stærðum.
HLIÐAR – ÚTAUKNING: Þegar stykkið mælist 3-3-4-4-5-5 cm aukið út um 1 lykkju 7 sinnum í hliðum á sama hátt og á bakstykki.
HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm fellið af fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki.
Eftir allar útaukningar og úrtöku eru 29-30-30-31-32-34 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm, fellið af.
SNÚRA:
Takið upp 1 lykkju í annarri hverri umferð við 10 umferðir í garðaprjóni neðst við miðju að framan á prjón 2,5 = 5 lykkjur.
Prjónið garðaprjón þar til snúran mælist ca 25-25-30-30-35-35 cm, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd, þ.e.a.s. eftir fyrstu 10 umferðir í garðaprjóni er prjónað þannig (frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 47-52-57-62-67-72 lykkjur sléttprjón, M.2 (= 10 lykkjur) og 5 lykkjur garðaprjón. Snúran er prjónuð í ca 65-70-75-80-85-90 cm.

ERMAR:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 134-138-142-146-150-154 lykkjur á prjón 3 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, haldið áfram þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 16-18-20-22-24-26 lykkjur sléttprjón, M.3A (= 20 lykkjur), M.4A (= 30 lykkjur) tvisvar sinnum, M.5A (= 20 lykkjur), 16-18-20-22-24-26 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 7 cm (í einingunni í sléttprjóni í hvorri hlið) fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-3-4-5-6-7 sinnum. Haldið áfram með mynstur. Þegar mynsturteikning A hefur verið prjónuð til loka eru 58-60-62-64-66-68 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með mynsturteikningu B að loka máli.
Þegar stykkið mælist ca 13-14-15-16-17-18 cm (í einingunni í sléttprjóni – stillið af að næsta umferð sé frá réttu) fellið af 1 lykkju í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið 2 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur, í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2, síðan er fellt af með brugðnum lykkjum frá röngu.
Ermin mælist ca 15-16-17-18-19-20 cm

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í, saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja slétt af kaðlaprjóni
3 lykkjur slétt saman = 3 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
Diagram for DROPS Extra 0-621
Diagram for DROPS Extra 0-621
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-621

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (3)

country flag Marian Carson skrifaði:

Can you show picture of the finished sleeve when it is laid flat( before it is attached to the body). Thank you

11.08.2024 - 20:51

DROPS Design svaraði:

Dear Marian, these are the only photos of the pattern that we have available. We don't have any photos of the project in progress, before assembly. Happy knitting!

11.08.2024 - 23:53

country flag Anette Schneider skrifaði:

Hallo, ich komme mit der 3. Reihe von M1 nicht so ganz klar. Hier steht, 2 rechts zusammen, 1 Umschlag, 2 Maschen auf eine Nadel hinter die Arbeit legen (dies sind nur 2 Maschen, in der Strickschrift sind aber 3 Maschen eingezeichnet, fehlt hier etwas?) Dann geht es weiter mit 1 Masche auf eine Nadel vor die Arbeit legen, 2 rechts stricken, die Masche von der Hilfsnadel rechts stricken, 1 Umschlag, 2 rechts zusammen stricken....Vielen Dank schonmal für Ihre Antwort.

23.07.2023 - 23:55

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Schneider, das 1. Zopf wird über 3 Maschen gestrickt: 2 Maschen hinter die Arbeit legen, 1 Masche rechts stricken dann die 2 Maschen vom Hilfsnadel rechts stricken - dies wird korrigiert so schnell wie möglich, danke für den Hinweis.

27.07.2023 - 12:16

country flag PELTRET skrifaði:

Pour les motifs avec torsades, comment faisons-nous sur la face envers ? Devons nous inverser les *2m ens* (de la face endroit) ac *glisser 1 m à l'end, 1 m end, passer la m glissée par dessus la m tricotée* ? Même question pour : glisser 2 m sur l'aiguille auxiliaire derrière l'ouvrage, 1 m end, reprendre les 2 m en attente et les tricoter à l'end et glisser 1 m sur l'aiguille auxiliaire devant l'ouvrage, 2 m end, reprendre la m en attente et la tricoter à l'end

15.01.2013 - 12:37

DROPS Design svaraði:

Bonjour Madame Peltret, les diagrammes représentent tous les rangs des points fantaisie, vus sur l'endroit. Tous les rangs ajourés et avec torsades se font toujours sur les rangs sur l'endroit de l'ouvrage, donc tels qu'indiqués dans la légende. Bon tricot !

15.01.2013 - 13:58