Holiday Fun#holidayfunmittens |
|
|
|
Prjónaðir vettlingar úr DROPS BabyMerino. Hægt er að prjóna vettlingana með lóðréttum eða láréttum röndum. Stærð S-L. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-572 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um þumalfingur): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 miðjulykkjur (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja) í annarri hverri umferð – byrjið á umferð 1 með þessa útaukningu. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogana í stað fremri) svo ekki myndist gat. RENDUR (vettlingur með lóðréttum röndum): * 6 umferðir í litnum hvítur, 2 umferðir í litnum rauður *, endurtakið frá *-*. RENDUR (vettlingur með láréttum röndum): * 8 umferðir í litnum hvítur, 2 umferðir í litnum rauður *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR MEÐ LÓÐRÉTTUM RÖNDUM - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp og er saumað saman í lokin. VETTLINGUR MEÐ LÓÐRÉTTUM RÖNDUM: Fitjið upp 50-52 lykkjur á prjón 3 með litnum hvítur DROPS BabyMerino. Prjónið GARÐAPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT sem aukið er út um 1 lykkju í lok hverrar umferðar frá réttu alls 8 sinnum = 58-60 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar stykkið mælist 5-6 cm er fækkað um 1 lykkju í lok hverrar umferðar frá réttu (með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman) alls 8 sinnum = 50-52 lykkjur. Þegar stykkið mælist 8-9 cm (úrtaka í hlið er nú lokið) prjónið næstu umferð þannig (frá réttu): 26 lykkjur, klippið þráðinn, prjónið inn þráð með öðrum lit (afgangsgarn) yfir næstu 11-13 lykkjur (þessi þráður er dreginn út síðar og þumallinn er prjónaður héðan), prjónið 13 lykkjur. Haldið áfram að prjóna yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju í lok hverrar umferðar frá réttu alls 8 sinnum = 58-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 13-15 cm er fækkað um 1 lykkju í lok hverrar umferðar frá réttu (með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman) alls 8 sinnum = 50-52 lykkjur. Fellið af. Stykkið mælist ca 16-18 cm. ÞUMALFINGUR: Þumalfingurinn er prjónaður í hring. Dragið út þráðinn sem situr í vettlingnum og setjið lykkjur frá báðum hliðum til baka á sokkaprjóna 3 = 22-26 lykkjur. Setjið 2 merkiþræði í stykkið, 11-13 lykkjur frá hvorri hlið á milli merkiþráða. Prjónið GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan – og RENDUR og prjónið í hring, JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju í annarri hverri umferð hvoru megin við merkiþráðinn að toppi á hönd – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hinn merkiþráðinn í annarri hverri umferð með því að prjóna saman 2 lykkjur saman á undan og á eftir merkiþræði (= 22-26 lykkjur í öllum umferðum). Eftir ca 5-6 cm eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2 = 11-13 lykkjur á prjóni. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. STROFF: Prjónið upp ca 40-44 lykkjur meðfram neðri kanti á vettlingi með litnum rauður. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið laust af. FRÁGANGUR: Leggið vettlinginn saman tvöfaldan og saumið saman í ystu lykkjubogana með smáu spori. Prjónið annan vettling á sama hátt. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR MEÐ LÁRÉTTUM RÖNDUM - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. VETTLINGUR MEÐ LÁRÉTTUM RÖNDUM Fitjið upp 98 lykkjur á prjón 2,5 með DROPS BabyMerino. Prjónið stroff 4 lykkjur slétt / 4 lykkjur brugðið með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm er lykkjum fækkað í næstu umferð frá réttu öllum 4 lykkjum brugðið til 3 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 miðjulykkjur brugðið saman = 86 lykkjur. Þegar stykkið mælist 5 cm er lykkjum fækkað í næstu umferð frá réttu öllum 4 lykkjum slétt til 3 lykkjur slétt með því að prjóna 2 miðjulykkjur slétt saman = 74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7 cm er lykkjum fækkað í næstu umferð frá réttu öllum 3 lykkjum brugðið til 2 lykkjur brugðið með því að prjóna fyrstu 2 lykkjur brugðið saman = 62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 9 cm er lykkjum fækkað í næstu umferð frá réttu öllum 3 lykkjum slétt til 2 lykkjur slétt með því að prjóna síðustu 2 lykkjur slétt saman = 50 lykkjur. Haldið áfram með 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 11 cm. Skiptið yfir á prjón 3. Nú er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir = 47 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Snúið stykkinu og setjið merki í 24. lykkju (merking fyrir þumal). Síðan er prjónað GARÐAPRJÓN og RENDUR – lesið útskýringu að ofan. JAFNFRAMT er aukið út um 2 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkjur með merki – til að koma í veg fyrir gat er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) í næstu umferð. Aukið út í 4. hverri umferð alls 7 sinnum = 15 þumallykkjur og 61 lykkjur alls. Á eftir síðustu útaukningu eru þumallykkjur + 1 lykkja í hvorri hlið (= 17 lykkjur) á þræði. Fitjið upp 1 nýja lykkju aftan við þumalfingur= 45 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni og prjónið rendur þar til stykkið mælist 25 cm. Nú er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir í annarri hverri umferð alls 9 sinnum = 18 lykkjur. Síðan eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2 = 9 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að. Stykkið mælist ca 29 cm. ÞUMAFINGUR: Þumalfingurinn er prjónaður í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka 17 þumallykkjur á prjóninn og takið að auki upp 2 lykkjur í kanti í bakhlið á þumallykkjum = 19 lykkjur. Haldið áfram með rendur og prjónið GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan – í ca 5½ cm, síðan eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að. FRÁGANGUR: Leggið vettlinginn saman tvöfaldan og saumið saman í hlið í hönd innan við 1 kantlykkju. Prjónið annan vettling á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #holidayfunmittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-572
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.