Grethe skrifaði:
Denne har jeg startet på,men skal strikke full lengde på ermene.Har prøvd den og den er kjempefin på.
16.04.2010 - 11:22
DROPS Design skrifaði:
Når man strikker M.1 fram og tilbake strikkes (fra vrangen): ta 1 m løst av p, 2 vr sammen, løft den løse m over.
13.01.2010 - 09:38
DROPS Design skrifaði:
Du setter masken på tråden etter du har strikken den son at du har tråden på "riktig" sted til å strikke videre.
27.10.2009 - 08:52
Ingvill skrifaði:
Hei! Har et spørsmål angående der hvor det står ...SAMTIDIG fortsettes det å sette m på tråden til hals, i hver side på hver 2.p... Skal man på hver 2.p. sette masker på tråd før eller etter man har strikket denne omgangen?? Og vil det da uansett alltid bli slik at man må starte med ny tråd, eller har jeg misforstått?
26.10.2009 - 21:42
Solveig skrifaði:
Kjempeflott og kledelig genser!
25.09.2009 - 10:49
Lilo skrifaði:
Jag har precis stickat klart denna, ursnygg modell och relativt snabbstickad! Jag är helt klart mycket nöjd med resultatet!
12.08.2009 - 08:09
Vivi Hemmingsen skrifaði:
Jeg ønsker mig at opskriften også kunne være i en udgave, hvor der strikkes oppefra og ned (top-down), det gør det nemmere at regulere længden på ærmerne og forneden. Ellers en meget fin bluse!
26.07.2009 - 09:14
Idun skrifaði:
Meget feminin og flot, den kan jeg tænke mig at lave!
02.07.2009 - 22:41
Ann-Sofie skrifaði:
Denna kommer att bli en klassiker i MIN garderob.
02.07.2009 - 08:43
Regula skrifaði:
Gefällt mir sehr gut!
29.06.2009 - 13:14
Hardanger#hardangersweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum og berustykki úr DROPS KARISMA. Stærð S - XXXL.
DROPS 114-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. PEYSA: Fitjið upp 192-210-225-249-273-297 l á hringprjóna 3,5 með Karisma. Prjónið 2 umferðir slétt. Prjónið síðan 4 umferðir með stroffi,1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 0-2-1-1-1-1 lykkjur jafnt yfir = 192-208-224-248-272-296 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar og eitt prjónamerki eftir 96-104-112-124-136-148 lykkjur (= miðja í hlið). Prjónið síðan hringinn í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur færri). Endurtakið í öðrum hverjum cm alls 10 sinnum = 152-168-184-208-232-256 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin. Endurtakið með 3-3-3-4-4-4 cm millibili alls 4 sinnum = 168-184-200-224-248-272 lykkjur. Haldið síðan áfram að prjóna hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm. Í næstu umferð er fækkað um 8 lykkjur í hvorri hlið (= 4 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin)= 152-168-184-208-232-256 lykkjur. Geymið stykkið. ERMI: Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 51-54-54-57-60-60 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Karisma. Prjónið 2 umferðir slétt. Prjónið síðan 4 umferðir stroff, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðnar. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt. JAFNFRAMT er fækkað um 1-2-0-1-2-0 lykkjur jafnt yfir = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar = miðja undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið með 1½-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 14-15-16-17-18-19 sinnum = 78-82-86-90-94-98 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist 33-33-32-32-31-31 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið síðan af 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki = 70-74-78-82-86-90 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermarnar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 292-316-340-372-404-436 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt og jafnið lykkjufjöldann til 289-323-340-374-408-442 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki við miðju á framstykki (38-42-46-52-58-64 lykkjur inn frá hvorri ermi) og prjónið fram að þessu prjónamerki sem merkir nú byrjun umferðar. Prjónið 0-1-0-1-2-3 cm og prjónið síðan M.1 (= 17-19-20-22-24-26 mynstureiningar), sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð = 119-133-140-154-168-182 lykkjur á prjóni. Prjónið síðan upp að ör í mynstri. Setjið síðan eina mynstureiningu (= 7 lykkjur) hvoru megin við prjónamerkið við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (= 14 lykkjur á þræði). Prjónið síðan fram og til baka með M.1 eins og áður. JAFNFRAMT er haldið áfram að setja lykkjur á þráð fyrir hálsmáli í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 3-3-4-4-4-4 sinnum = 26-26-30-30-30-30 lykkjur á bandi. M.1 á nú að vera prjónað til loka á hæðina = 76-88-90-102-114-126 lykkjur á prjóni. Setjið til baka allar lykkjur af þræði á prjóninn = 104-116-122-134-146-158 lykkjur alls á prjóni. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 2-11-14-23-32-41 lykkjur jafnt yfir = 102-105-108-111-114-117 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Prjónið síðan 4 umferðir stroff, 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðiðr. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hardangersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 114-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.