Teresa skrifaði:
Buongiorno, vorrei una delucidazione. Quando dice, una volta ottenute le 60 maglie, "Continuare con 2 m a maglia rasata, 1 m rov, motivo sulle 33 m successive" per motivo si intendono i diag M1 e M2. Ma lavorati come? su quante maglie? ed M1 da quale ferro parte? non so se sono stata chiara ma aspetto vostra risposta al più presto, grazie!
11.12.2021 - 12:46DROPS Design svaraði:
Buonasera Teresa, su quelle 33 maglie deve lavorare i motivi come nei giri precedenti. Buon lavoro!
12.12.2021 - 20:04
Gabriele skrifaði:
Sehr schön. Mal mit einem etwas anderen Bündchen. Sehr edel.
12.08.2009 - 16:27
Tina skrifaði:
Super skønne handsker
03.07.2009 - 09:12
Lea Halonen skrifaði:
Mielenkiintoinen, varamaan tekisin
20.06.2009 - 14:25
Kerstin Quick skrifaði:
Fina vantar,dessa kommer jag att göra.
06.06.2009 - 17:25
Elegant Hands#eleganthandsgloves |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónaðir fingravettlingar með köðlum og gatamynstri úr DROPS Fabel.
DROPS 117-11 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikningin sýnir mynstrið séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FINGRAVETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI FINGRAVETTLINGUR: Fitjið upp 136 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Fabel. Prjónið 1 umf slétt. Haldið áfram með M.1a og M.2 til skiptis allan hringinn. Þegar M.1a hefur verið prjónað eru 72 l eftir á prjóni stykkið mælist ca 9 cm. Setjið prjónamerki - HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram þannig: Prjónið 2 sl, 1 br, * M.2, M.1b,*, endurtakið frá*-* alls 3 sinnum, M.2, 1 br, 2 sl (setjið prjónamerki í seinni l af þessum 2 l = þumal-l), * Prjónið saman næstu 6 kaðallykkjur 2 og 2l slétt, 3 sl *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, prjónið saman 6 kaðallykkjur 2 og 2 slétt = 60 l. Haldið áfram með 2 l sléttprjón, 1 l br, mynstur yfir 33 l, 1 l br og 23 l sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 1,5 cm er aukið út fyrir þumalfingur þannig: Aukið út umf 1 l hvorum megin við l með prjónamerki – aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónarður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan). Endurtakið útaukningu í 3. hverri umf alls 6 sinnum = 13 þumallykkjur. Þegar vettlingurinn mælist 6,5 cm eru þessar 13 þumallykkjur settar á þráð. Í næstu umf er fitjuð upp 1 l fyrir aftan þumallykkju = 60 l. Haldið áfram eins og áður með mynstur og sléttprjón þar til stykkið mælist 9 cm – nú er prjónuð 1 umf sléttprjón yfir allar l jafnframt sem 6 l yfir kaðal eru prjónaðar saman 2 og 2 slétt = 48 l. Haldið eftir fyrstu 5 l á prjóni, setjið næstu 38 l á þráð og haldið eftir síðustu 5 l á prjóni. LITLIFINGUR: = 10 l, fitjið að auki upp 2 nýjar l í vikið á milli fingra og tengið í hring = 12 l. Prjónið sléttprjón hringinn í 6 cm, prjónið síðan alla l slétt saman 2 og 2 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l sem eftir eru, herðið að. HÖND: Setjið allar lykkjur af þræði á fjóra prjóna, prjónið að auki upp 3 l í vikið við litlafingur = 41 l. Prjónið 3 umf sléttprjón hringinn. Haldið eftir 3 l sem voru í vikinu við litlafingur + 6 l hvoru megin við þær. Setjið aftur til baka þær 26 l sem eftir eru á þræði. BAUGFINGUR: = 15 l. Fitjið upp 1 nýja lykkju í vikið á milli fingra og tengið í hring = 16 l. Prjónið sléttprjón hringinn í 7,5 cm, prjónið síðan allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að. LANGATÖNG: Setjið til baka 6 l af þræði frá hvorum enda á prjóinn, prjónið að auki upp 3 nýjar l í vikið við baugfingur og fitjið upp 1 nýja l við l á þræði = 16 l. Prjónið sléttprjón hringinn í 8,5 cm, prjónið nú allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að. VÍSIFINGUR: Setjið allar 14 l sem eftir eru á þræðinum á prjóninn, prjónið að auki upp 2 l í vikið við löngutöng = 16 l. Prjónið sléttprjón hringinn í 7 cm, prjónið nú allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að. ÞUMALFINGUR: Setjið til baka l fyrir þumalfingur á prjóninn og prjónið að auki upp 3 l við hönd aftan við þumal-l = 16 l. Prjónið sléttprjón hringinn í 6 cm, prjónið nú allar l slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að. VINSTRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og hægri fingravettlingur, nema gagnstætt, þ.e.a.s. að útaukning fyrir þumalfingur hvoru megin við fyrstu sléttprjónuðu l í umf. Þegar litlifingur hefur verið prjónaður er prjónað þannig: Setjið fyrstu 21 l á þráð (= ofan á hönd), haldið eftir 10 næstu l á prjóni og setjið 17 síðustu l á þráð (= innan í hönd). |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #eleganthandsgloves eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 117-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.