Veronika Tegel skrifaði:
Fehler Maschenzahl Rückenteil 2 Jahre: 58 M. plus je 36 M. links und rechts für den Ärmel sind 130 M. und nicht 140 M.
12.12.2010 - 13:06
DROPS/Gun skrifaði:
Ohje on nyt korjattu.
16.09.2009 - 16:25
Sanni Aalto skrifaði:
Ohjeessa on virhe kohdassa "LAHJE: ... Kun työn pituus on 14 cm, lisää merkkilangan molemmin puolin 2-2-3 (4-5) cm välein 7-8-9 (9-10) x 1 s = 48-52-58 (62-68) s. ..." Pitäisi olla lisää molemmin puolin JOKA 2.-2.-3. (4.-5.)KRS.
15.09.2009 - 21:05
Rita Klevjer skrifaði:
Deilig kosedress, praktisk med hel dress
27.11.2008 - 19:16
Tone skrifaði:
Jeg synes drakten ser skikkelig stilig ut! Den skal jeg strikke=)
22.11.2008 - 20:56
Inger skrifaði:
Dragten er kanon god.
12.11.2008 - 09:49
Sara skrifaði:
Håller med, här gjorde sig inte fabel särskilt bra.
03.11.2008 - 06:10
Jessica skrifaði:
Jag tycker det är synd att ni använder fabel till så många modeller. Det faller mig inte i smaken och jag tycker det blir så "röriga" plagg av det. Tur att man kan välja annat garn. Fattar inte riktigt varför Fabel har blivit så populärt som ni skriver att det är.
17.10.2008 - 20:10
Lene Jensen skrifaði:
Ville ønske man kunne strikke dem i stor ... og slippe godt fra det. ;o) Herligt med heldragter til små pus
17.10.2008 - 16:06
To the Fair!#tothefairoverall |
|
|
|
Prjónaður galli fyrir börn úr 2 þráðum DROPS Fabel
DROPS Baby 16-4 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið saman 2. og 3. l frá miðju að framan slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist alls: STÆRÐ 1/3 MÁN: 24, 31, 38 og 45 cm STÆRÐ 6/9 MÁN: 28, 37, 45 og 53 cm STÆRÐ 12/18 MÁN: 32, 40, 48, 55 og 62 cm STÆRÐ 2 ÁRA: 34, 42, 50, 58 og 67 cm STÆRÐ 3/4 ÁRA: 39, 47, 56, 65 og 74 cm Fellið einnig af fyrir 1 hnappagati í hálsmáli. LEIÐBEININGAR: Ef axlirnar eru ekki saumaðar saman með lykkjuspori frá réttu, heldur með leggsaum frá röngu, verður að prjóna 1 auka umf á öxl svo að það myndist faldur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er að prjóna skálmar í hring. SKÁLM: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið laust upp 44-48-52 (56-60) l á sokkaprjóna nr 4 með 2 þráðum (tvöfalt garn) Fabel. Prjónið 1 umf sl, haldið áfram með stroff = 2 l sl /2 l br. Þegar stykkið mælist 12 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 5. Prjónið síðan sléttprjón – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 10-12-12 (12-12) l jafnt yfir = 34-36-40 (44-48) l. Setjið prjónamerki í byrjun umf = innan á skálm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu í 2.-2.-3. (4.-5.) hverri umf, alls 7-8-9 (9-10) sinnum = 48-52-58 (62-68) l. Þegar stykkið mælist 21-24-28 (31-36) cm fellið af 4 l innan á skálm (= 2 l hvoru megin við prjónamerki) = 44-48-54 (58-64) l. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm á sama hátt. GALLI: Setjið báðar skálmarnar á sama hringprjóna nr 5 með affellingu á móti hver annarri = 88-96-108 (116-128) l. Prjónið nú fram og til baka frá miðju að framan þannig (umf 1= rétta): Fitjið upp 3 nýjar l, prjónið slétt yfir allar l í umf og fitjið upp 3 nýjar l í lok umf = 94-102-114 (122-134) l. Setjið eitt prjónamerki eftir 25-27-30 (32-35) l inn frá hvorri hlið (= 44-48-54 (58-64) l á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón með 5 síðustu l í hvorri hlið við miðju að framan í garðaprjóni (= kantur að framan). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-28-32 (34-39) cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan í hægri kant að framan. Þegar stykkið mælist 45-53-61 (65-71) cm skiptist stykkið við bæði prjónamerkin, framstykki og bakstykki eru nú prjónuð hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 44-48-54 (58-64) l. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í lok hverrar umf á báðum hliðum fyrir ermum: 3 l 2-1-3 (1-2) sinnum, 5 l 1-2-1 (2-2) sinnum, 7 l 1-1-1 (2-2) sinnum og síðan 9-10-11 (14-16) l 1 sinni = 98-108-118 (140-156) l á prjóni. Þegar stykkið mælist 55-64-73 (78-85) cm fellið af miðju 16-18-18 (20-20) l fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið að auki 2 umf yfir 41-45-50 (60-68) l í hvorri hlið – fellið laust af. ATH: LESIÐ LEIÐBEININGAR. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 25-27-30 (32-35) l. Haldið áfram í sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í lok umf á hlið fyrir ermi eins og á bakstykki = 52-57-62 (73-81) l. Þegar stykkið mælist 52-61-69 (74-81) cm fellið af fyrstu 5-6-6 (7-7) l við miðju að framan fyrir hálsmáli. Fellið síðan af í byrjun á hverri umf frá hálsmáli: 2 l 2 sinnum og 1 l 2 sinnum = 41-45-50 (60-68) eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 56-65-74 (79-86) cm, fellið laust af. ATH: LESIÐ LEIÐBEININGAR. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd – munið eftir HNAPPAGAT. FRÁGANGUR: Saumið sauma ofan á ermum með lykkjuspori frá réttu (eða leggsaumi frá röngu). Leggið hægri kant að framan yfir vinstri og saumið saman neðst við uppfitjunarkantinn. Saumið saum undir ermum kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið saman op í klofi. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 52 til 65 l í kringum hálsmál á prjóna nr 4 með 2 þráðum Fabel. Prjónið 4 umf slétt – JAFNFRAMT eftir 1 umf er fellt af fyrir hnappagati yfir hin í kanti að framan. Fellið af með sléttu frá röngu. Saumið tölur í. STROFF: Prjónið upp 32-36-36 (40-40) l á sokkaprjóna nr 4 með 2 þráðum Fabel neðst í kringum aðra ermina. Prjónið 1 umf br og 1 umf sl, haldið áfram með stroff = 2 l sl/2 l br. Fellið af þegar stroffið mælist 5 cm. Prjónið á sama hátt neðst í kringum hina ermina. Brjótið upp ermar og skálmar eftir þörf. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tothefairoverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 16-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.