DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3894.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 16-19
DROPS design: Mynstur nr fa-012-by
Garnflokkur A + A
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærði í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)
Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-100-100 (150-150) g nr 161, bleikur draumur
Og notið: DROPS ALPACA frá Garnstudio
100-100-100 (150-150) g nr 3140, ljós bleikur

DROPS PRJÓNAR NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 3,5 (fyrir stroff).
DROPS TRÉTALA NR 513: 5-5-6 (6-6) st.

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Lengd fótar: 10-11-12 (14-16) cm
Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50 g í allar stærðir nr 161, bleikur draumur.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3894.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

PEYSA:

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 HNAPPAGAT = prjónið saman 2. og 3. lykkju frá miðju að framan slétt og sláið uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist alls:
STÆRÐ 1/3 MÁN: 2, 8, 14 og 20 cm
STÆRÐ 6/9 MÁN: 3, 10, 16 og 20 cm
STÆRÐ 12/18 MÁN: 3, 9, 14, 20 og 25 cm
STÆRÐ 2 ÁRA: 3, 10, 16, 23 og 29 cm
STÆRÐ 3/4 ÁRA: 3, 11,18, 25 og 32 cm
Fellið einnig af fyrir 1 hnappagati í hálsmáli.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 52-60-64 (72-80) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 3,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið þannig (umferð 1 = rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 3-4-4 (5-5) cm, skiptið yfir á prjón 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í umferð 1 er fækkað um 5-7-6 (9-9) lykkjur jafnt yfir = 47-53-58 (63-71) lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 18-19-22 (25-28) cm fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið. Fækkið lykkjum í byrjun á hverri umferð, í báðum hliðum: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-3-3 (3-4) sinnum = 33-37-42 (47-53) lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-41) cm fellið af miðju 17-19-20 (21-21) lykkjurnar af fyrir hálsmáli og prjónið hliðarnar til loka hvora fyrir sig.
Prjónið að auki 2 umferðir yfir þær 8-9-11 (13-16) sem eftir eru á hvorri öxl, fellið síðan af. Stykkið mælist ca 28-30-34 (38-42) cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 30-34-38 (42-46) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan) á prjón 3,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið stroff frá hlið þannig (umferð 1 = rétta): 1 kantlykkja, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 3-4-4 (5-5) cm skiptið yfir á prjón 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni og kanti að framan í garðaprjóni – JAFNFRAMT í umferð 1 er fækkað um 3-4-5 (7-7) lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki fækka lykkjum yfir kant að framan) = 27-30-33 (35-39) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-19-22 (25-28) cm fækkið lykkjum fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 20-22-25 (27-30) lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-26-29 (33-36) cm setjið ystu 7-8-9 (9-9) lykkjurnar við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 8-9-11 (13-16) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 28-30-34 (38-42) cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstra framstykki nema spegilmynd. Að auki er fellt af fyrir hnappagötum meðfram kanti að framan – sjá HNAPPAGAT að ofan!

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 30-30-34 (34-38) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 3,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 3-4-4 (5-5) cm. Skiptið yfir á prjón 4,5 og haldið áfram í sléttprjón – JAFNFRAMT í umferð 1 er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 26-26-30 (30-34) lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5-5-6 (7-9) cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 4 umferða millibili alls 6-8-8 (9-9) sinnum = 38-42-46 (48-52) lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-19-20 (24-28) cm fækkið lykkjum fyrir ermakúpu í báðum hliðum. Fækkið um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð þar til stykkið mælist 22-24-26 (30-34) cm. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 48 til 68 lykkjur (deilanlegt með 4, meðtaldar lykkjur af þráðum að framan) í kringum hálsmál á prjón 3,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 5 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*, endið með 2 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. JAFNFRAMT þegar kantur í hálsi mælist ½-1-1 (2-2) cm fellið af fyrir 1 hnappagati yfir hin á kanti að framan. Prjónið áfram þar til kantur í hálsi mælist 2-3-3 (4-4) cm. Fellið af. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.

SOKKAR:

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir,
lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið.
Haldið áfram á sama hátt með því fækka um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) lykkjur eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA-1:
Fækkið lykkjum á undan stroffprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir stroffprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

ÚRTAKA-2
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Sokkarnir eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 44-48-48 (52-56) lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með DROPS Fabel.
Prjónið stroffprjón = 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur bruðgið í 7-8-9 (10-11) cm. Haldið eftir fyrstu 18-22-22 (22-26) lykkjum á prjóni fyrir hæl (setjið hinar 26-26-26 (30-30) lykkjur á þráð = ofan á fæti). Prjónið sléttprjón yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan!
Takið síðan upp 8-9-10 (11-12) lykkjur sitt hvoru megin við hæl og setjið til baka lykkjur af þræði (= ofan á) fæti á prjóninn = 50-54-56 (62-66) lykkjur.
Haldið áfram í stroffprjóni yfir 26-26-26 (30-30) lykkjur ofan á fæti og sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við stoffprjónslykkjurnar – SJÁ ÚRTAKA-1 í annarri hverri umferð alls 5-7-6 (7-9) sinnum = 40-40-44 (48-48) lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til sokkurinn mælist 7-8-9 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir 3-3-3 (4-4) cm að loka máli).
Setjið prjónamerki í hvora hlið á sokknum, þ.e.a.s. að það verða 20-20-22 (24-24) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjón yfir allar lykkjjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – SJÁ ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 3 sinnum og síðan í hverri umferð 5-5-6 (7-7) sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Sokkurinn mælist nú ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk alveg eins.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 16-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Anneke Dries wrote:

Ik wil graag garen dat machine wasbaar is. Welk alternatief kan ik gebruiken voor DROPS Alpaca?

08.06.2022 - 13:12

DROPS Design answered:

Dag Anneke,

Je zou in dit geval de Alpaca kunnen vervangen door Fabel.

10.06.2022 - 22:15

country flag Wilma Nengerman wrote:

Beste heer mw. Heb je beide garens nodig? Of wordt er bedoelt ‘Fabel’ of ‘Alpaca’ garen. Graag hoor ik van u. M.vr.gr. Wilma

09.02.2022 - 14:39

DROPS Design answered:

Dag Wilma,

Je hebt beide garens nodig voor het vest en je breit met 2 draden: 1 draad van elke kwaliteit.

10.02.2022 - 10:01

country flag Ann-Charlotte wrote:

På ärmen ska man öka med 4 varvs mellanrum. Betyder det: sticka 4 o öka på 5e varvet, eller: sticka 3 o öka på vart 4e?

20.04.2018 - 23:04

DROPS Design answered:

Hej Ann-Charlotte, du ökar på var 4:e varv, dvs du stickar 3 varv och ökar på det 4:e. Lycka till :)

24.04.2018 - 11:27

country flag Tara Egan wrote:

I have been knitting this in the largest size, and found a problem with the pattern. The instructions for the back say to cast off for the neckline at 13" and then complete the shoulders by completing 2 rows on each shoulder piece. The finished length says: [11”-11 ¾”-13 3/8” 15”-46½”)]" I will first assume that 46 is supposed to be 16" .. but 13" plus two rows does not give 16"! Then when you look at the measurements for the front sides, they don't match up with the back at all.

09.03.2013 - 15:32

country flag Anna wrote:

Stickade denna i färgerna Fabel turkos/blå mix (nr 522) och Alpaca ljus blå (nr 6205) och den blev väldigt fin på min lille son! Lagom enkelt mönster för en nybörjare som jag.

01.06.2010 - 10:04

country flag DROPS Design NL wrote:

Hoi Nel. In de eerste lijn van het patroon staat er: Zet 52-60-64 (72-80) st op (inclusief 1 kant st aan iedere kant) met nld 3.5 mm en 1 draad van iedere kwaliteit. Dus ja, het patroon wordt gebreid van 2 draden: 1 Alpaca en 1 Fabel. Gr. Tine

20.05.2009 - 19:00

country flag Nel De Jong wrote:

Word dit vest met dubbele draad gebreid 1 draad drops FABEL en 1 draad ALPACA?

20.05.2009 - 17:20

country flag Christina wrote:

Helt underbar den med

25.10.2008 - 11:06

country flag Monica Olsen wrote:

Denne syns jeg er helt nydelig. kunne tenkt meg å strikke den selv, vet ikke om dere legger ut oppskrift på den, men la oss håpe det :) keep up the good work!!! :D

20.10.2008 - 20:21

country flag Rita Helm wrote:

Toll,ich hoffe es kommt mit in die Auswahl.Sind eigentlich alle modelle toll.Es ist schwer sich zu entscheiden.

19.10.2008 - 19:25