Luciana skrifaði:
Hi Brigitte, thanks for your reply. Still regarding the baby bunting bag. Am I supposed to knit the front and back in the round separately until it needs to split for left and right or the sleeves, and then cut the bottom part of tube open? The other question is: On the cast on instructions for the front and back it says (incl 1 edge st each side). Does it mean that I should include those 2 stitches on top of what is given as CO?Or are they included already? Thanks again for your help!
04.07.2008 - 14:11
Birgitte skrifaði:
Hi Luciana! For the circular needle you will need a 40 to 60 cm long needle depending on the size your are making. If you look at the tension with is 17 sts for 10 cm and you divide it up into the total number of sts to be cast on for exampel 6/9 months = 60 sts = a little under 40 cm you will need a 40 cm circular needle. You will have to knit the first part in rounds and later split the work and knit back and forth. Best Wishes Birgitte
01.07.2008 - 10:42
Luciana skrifaði:
Hi, I'm planning to start this project and was reading through the pattern to see I understand it. You recommend circular needles and my question is how long should it be? Also is it meant to be knit on the round or back and forth? Thanks in advance for your help. Kind regards, Luciana
30.06.2008 - 15:21
Drops Design skrifaði:
Hei! Hyggelig å høre at du liker våre oppskrifter. Maskesting er vanskelig å forklare med beskrivelse, så jeg anbefaler at du tar med strikketøyet til nærmeste DROPS-forhandler. Da kan de forklare deg hvordan det gjøres og vise det samtidig. lykke til! Mvh Garnstudio.
09.01.2008 - 11:01
Helene W Ranum skrifaði:
Hei! Koser meg veldig med å strikke denne nydelige kjøreposen! Men jeg trenger hjelp med motering med maskesting på overarmene. Ser dere henviser til brodering med maskesting, men jeg synes det blir anderledes når to rader med "åpne" masker skal føyes sammen. Takknemlig for mer utfyllende forklaring! Mvh
07.01.2008 - 22:09
DROPS design skrifaði:
Om man syr med maskstygn så blir det liksom "osynligt". Viktigt att man syr löst och syr maska för maska... På våra tekniksidor i Handarbetsskolan på vår hemsida finns det en förklaring där man i och för sig broderar med maskstygn... men man ser ändå tekniken.
05.02.2007 - 09:06
kristina skrifaði:
hur syr man ihop axlarna med osynliga maskstygn
05.02.2007 - 08:53Eva skrifaði:
Fin kjørepose egentlig, men savner et hull til å ta bilbelte gjennom.... Kan jo alltids bare lage det selv men...
27.03.2006 - 16:09Eva skrifaði:
Fin kjørepose egentlig, men savner et hull til å ta bilbelte gjennom.... Kan jo alltids bare lage det selv men...
27.03.2006 - 16:09
camilla skrifaði:
smukt
21.03.2006 - 16:41
Dreamy Bluebell#dreamybluebellbuntingbag |
|
![]() |
![]() |
Ferðapoki með hettu fyrir börn úr garðaprjóni, prjónað úr DROPS Alpaca. Stærð 1 mán - 4 ára.
DROPS Baby 14-14 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MÆLING: Vegna þyngdar á garninu verður að taka öll mál þegar stykkinu er haldið uppi. Annars verður stykkið og langt þegar það er notað. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið saman 2. Og 3. Lykkju frá kanti og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: Munið eftir MÆLING! Stærð 1/3 mán: 27, 32, 37, 42, 47, 52 cm. Stærð 6/9 mán: 28, 34, 41, 47, 54, 61 cm. Stærð 12/18 mán: 29, 36, 42, 49, 55, 62, 69 cm. Stærð 2 ára: 30, 37, 44, 51, 58, 65, 72, 80 cm Stærð 3/4 ára: 31, 39, 47, 55, 63, 71, 80, 89 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FERÐAPOKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Pokinn er prjónaður í 2 stykkjum sem síðan eru saumuð saman í hliðum og á öxlum. Til þess að fá pláss fyrir allar lykkjurnar eru hvort stykki prjónað fram og til baka á hringprjón. FRAMSTYKKI: Lesið MÆLING! Fitjið laust upp 54-60-66 (70-76) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 2 þráðum á hringprjón 5. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 24-25-26 (27-28) cm skiptist stykkið í 2 hluta, setjið lykkjur frá hægri hlið á þráð = 27-30-33 (35-38) lykkjur á prjóni. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 27-30-33 (35-38) lykkjur. Fitjið upp 3 nýjar lykkjur við miðju að framan fyrir kant að framan = 30-33-36 (38-41) lykkjur á prjóni. Prjónið áfram í garðaprjóni nema 5 ystu lykkjur við miðju að framan (= kantur að framan) er prjónaður brugðið í hverri umferð til loka, lykkjur í garðaprjóni koma þá til með að færast til og kantur að framan verður afmarkaður. Þegar stykkið mælist 47-55-62 (72-80) cm – munið eftir MÆLING – fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermi í hlið í annarri hverri umferð þannig (þ.e.a.s. í lok hverrar umferðar að hlið): 3 lykkjur 3-2-3 (3-1) sinnum, 4 lykkjur 2-3-3 (5-5) sinnum, 6 lykkjur 1-1-1 (1-3) sinnum og 10 lykkjur 1 sinni = 63-67-73 (83-92) lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 53-62-70 (81-90) cm fellið af ystu 8-8-9 (10-10) lykkjur við miðju að framan fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fækka um 1 lykkju við miðju að framan fyrir hálsmáli í 4. hverri umferð 3 sinnum = 52-56-61 (70-79) lykkjur á prjóni (= öxl + ermi). Þegar stykkið mælist ca 58-67-75 (86-95) cm setjið lykkjur á þráð – endið með 1 umferð slétt frá röngu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki nema gagnstætt. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. BAKSTYKKI: Fitjið upp 54-60-66 (70-76) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 2 þráðum Alpaca á hringprjón 5. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 47-55-62 (72-80) cm. Fitjið nú upp lykkjur fyrir ermi í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 3-2-3 (3-1) sinnum, 4 lykkjur 2-3-3 (5-5) sinnum, 6 lykkjur 1-1-1 (1-3) sinnum og 10 lykkjur 1 sinni = 120-128-140 (160-178) lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 56-65-73 (84-93) cm fellið af 14-14-16 (18-18) miðjulykkjur fyrir hálsmáli. Í næstu umferð er fækkað að auki um 1 lykkju við hálsmál = 52-56-61 (70-79) lykkjur eftir á prjóni (= öxl + ermi). Þegar stykkið mælist ca 58-67-75 (86-95) cm – stillið af eftir 1 umferð slétt frá röngu – setjið lykkjur á þráð. FRÁGANGUR: Saumið sauma yfir ermum með lykkjuspori. Saumið saum undir ermum, niður meðfram allri hliðinni og í neðri kant á poka innan við 1 kantlykkju. Festið kanta að framan neðst með nokkrum sporum. Brjótið uppá neðstu 4 cm á hvorri ermi og saumið e.t.v. niður með nokkrum sporum. HETTA: Prjónið upp frá réttu ca 45-55 lykkjur í kringum hálsmáli með hringprjón 5 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið 3 umferðir slétt jafnframt því sem í 2. umferð er aukið út jafnt yfir til 72-74-76 (78-82) lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru fitjaðar upp 7 nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir uppábrot = 86-88-90 (92-96) lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 21-23-25 (27-28) cm og fellið af. Brjótið uppá hettuna og saumið saman efst uppi. Brjótið uppá 4 ystu cm í kanti að framan tvöfalt að réttu og saumið uppábrotið niður fallega að kanti hálsmáli. Gerið 1 dúsk ca 6-7 cm að þvermáli og saumið niður í toppinn aftan á hettu. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- Leikföng: Sjá Skálmar og Þumall DROPS Baby 13-34 ------------------------------------------------------- |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dreamybluebellbuntingbag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.