Daggu skrifaði:
Ich brauche Hilfe bei den Ärmeln. Die werden erst am Vorderteil und dann am Rückenteil aufgenommen. Werden die dann danach zusammengenäht?
08.04.2025 - 01:45DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Daggu, ja genau, die neuen Maschen für die Ärmel sind an die Seite neu angeschlagen, dann wird man sie unter die Ärmel sowie oben (am Schulter) zusammennähen. Viel Spaß beim Stricken!
08.04.2025 - 09:44
Sarah skrifaði:
Ich bitte um Hilfe, bei der Aufnahme für die Ärmel,versteh ich das richtig das ich für die größte Größe 2*6 M und 1*7M zu nehmen?Oder hab ich da n Denkfehler?Lieben Gruß Sarah
30.03.2025 - 01:26DROPS Design svaraði:
Liebe Sarah, ja genau, es sind dann 19 Maschen für jeden Ärmel. Viel Spaß beim Stricken!
31.03.2025 - 09:53
Maryxmas skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas bien les augmentations de la jambe :" En même temps, augmenter à l'intérieur de la jambe tous les 2 rangs 3-3-3 (6-6) fois 1 m de chaque côté Taille 3 mois : tous les 6 rangs Taille 6/9 mois : tous les 7 rangs" Faut-il augmenter tous les 2 rangs ou tous les 7 rangs (je tricote le 6/9 mois) ? Merci
01.08.2022 - 18:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Maryxmas, en 6/9 mois, vous augmentez d'abord 3 fois tous les 7 rangs - la correction a été faite, merci. Bonne continuation!
02.08.2022 - 08:48
Carla skrifaði:
Descrizione lavorazione berretto:”..…… finché il LAVORO NON MISURA 5-5-5 (5,5-5,5) cm. Tagliare il filo, passarlo :….” Non riesco a capire a cosa si riferisca questa misura… potete aiutarmi? Grazie
28.02.2022 - 17:58DROPS Design svaraði:
Buonasera Carla, abbiamo modificato leggermente il testo: la misura indicata è quella delle diminuzioni. Buon lavoro!
05.03.2022 - 22:45
Lotta skrifaði:
This pattern is totally chaotic. In the Finnish translation Viimeistely, that means finishing, says to only seam the top of sleeves. But in the next paragraph you do whole lot more. Even make two button bands, and knit the ribbing on both pants legs, even tho that is the part what you knit first, in the beginning of the pattern. You also make the button band twice. And in nowhere does the pattern advice you to seam the end of sleeves. Classic Drops.
15.06.2021 - 18:20
Berit skrifaði:
Jeg kan ikke læse i opskriften at der skal lukkes af til ærmegab nogen steder. Kan ikke rigtig komme videre. Jeg har fordelt maskerne 34 til forstykke og 74 bagstykke og 34 forstykker.
09.04.2020 - 15:33DROPS Design svaraði:
Hei Berit. Det skal ikke felles til ermhull, men det skal økes til erme. Ermene strikkes sammen med forstykkene og bakstykkene. Når forstykkene m/ermene og bakstykket m/ermene er ferdig syes ermene sammen øverst på skulderene. God Fornøyelse!
15.04.2020 - 14:57
Carlijn skrifaði:
Hallo, ik heb een vraag over het begin. Er staat eerst 3 cm boordsteek en dan twee naalden ribbelsteek. Vervolgens 3x elke 7e (in mijn geval) naald aan beide kanten meerderen. Dit wilde ik naald 7-14-21 doen van het stuk vanaf het witte. Echter bij deze stekenverhouding zijn 21 naalden al 6.5 cm en met het stuk boordsteek (3 cm) en ribbelsteek (0.5 cm) erbij wordt het werk langer dan 8 cm voor de meerderingen voldaan zijn. Wat gaat er mis?
14.09.2018 - 14:39DROPS Design svaraði:
Dag Carlijn, Inderdaad, dan kom je niet uit zoals je beschrijft, dus er zit vermoedelijk een foutje in het patroon. Als oplossing voor nu: je zou de eerste meerdering eerder kunnen doen, bijvoorbeeld op de 3e naald ipv op de 7e naald. En dan de andere 2 meerderingne wel weer elk 7 naalden daarna. Volgens mij kom je dan precies uit.
19.09.2018 - 16:39Elisa skrifaði:
6 knappar på insidan av benet.
22.05.2013 - 21:01
Louise Mølgaard Vidkjær skrifaði:
Skal der ikke kun bruges 6 knapper eller har jeg misforstået opskriften? Mvh Louise
22.05.2013 - 08:15DROPS Design svaraði:
Hej Louise. Du skal bruge i alt 12 knapper. Der er 6 knapper langs forkanten, men ogsaa 6 knapper paa indersiden af benene
23.05.2013 - 14:40
DROPS Deutsch skrifaði:
Vielen Dank. Ich habe die Anleiung gleich angepasst.
06.02.2012 - 09:45
Seaside Summer#seasidesummeroverall |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður galli með röndum og húfa úr DROPS Safran. Stærð 3 mán – 4 ára.
DROPS Baby 4-13 |
|
GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. STROFF: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið*, endurtakið frá *-*. RENDUR (á við um galla): * 10 umferðir hvítur, 2 umferðir sæblár*, endurtakið frá *-*. RENDUR (á við um húfu): * 6 umferðir sæblár, 2 umferðir hvítur *, endurtakið frá *-*. ---------------------------------------------------------- GALLI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Skálmar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. VINSTRI SKÁLM: Fitjið upp 76-80-88 (90-90) lykkjur á prjón 2,5 með sæblár og prjónið STROFF í 3 cm – sjá útskýringu að ofan – og síðan 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan - með gallabuxnablár. Skiptið yfir á prjón 3 og prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT eru fækkað um 8-10 (6-6) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 68-72-78 (84-84). Aukið nú út hvoru megin innan við 1 kantlykkju: 1 lykkja 3-3-3 (6-6) sinnum í 3 mán: Í 6. hverri umferð, 6/9 mán: Í 7. hverri umferð 12/18 mán+2 ára+3/4 ára: Í 4. hverri umferð = 74-78-84 (96-96) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7-8-9 (10-10) cm er það lagt til hliðar. HÆGRI SKÁLM: Prjónið eins og vinstri skálm. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið hægri og vinstri skálm saman á hringprjón og prjónið í hring = 148-156-168 (192-192) lykkjur. Haldið áfram með rendur upp úr til loka. Þegar stykkið mælist 16-16-17 (18-19) cm eru felldar af 6 lykkjur við miðju að framan fyrir opi og stykkið er prjónað til loka fram og til baka. Þegar stykkið mælist 36-39-42 (44-44) cm skiptist það þannig: 34-36-39 (45-45) lykkjur framstykki, 74-78-84 (96-96) lykkjur bakstykki, 34-36-39 (45-45) lykkjur framstykki. Framstykki: = 34-36-39 (45-45) lykkjur. Nú er aukið út fyrir ermum í annarri hverri umferð: 2-2-2 (2-6) lykkjur 2 sinnum, 3-3-3 (3-7) lykkjur 1 sinni = 41-43-46 (52-64) lykkjur. Þegar stykkið mælist 39-43-47 (50-53) cm fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð: 2-2-4 (6-7) lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 5 sinnum. Fellið af þegar stykkið mælist 46-50-54 (57-60) cm. Bakstykki: = 74-78-84 (96-96) lykkjur. Aukið út fyrir ermi eins og á framstykki = 88-92-98 (110-134) lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-48-52 (55-58) cm fellið af miðju 22-22-24 (26-30) lykkjurnar fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum við háls í annarri hverri umferð: 1 lykkja 2 sinnum. Fellið af þegar stykkið mælist 46-50-54 (57-60) cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR: Takið upp ca 66-78 lykkjur meðfram vinstra framstykki á hringprjón 2,5 með sæbláum og prjónið stroff í 2,5 cm fram og til baka. Endurtakið meðfram hægra framstykki, en eftir 0,5 cm er fellt af fyrir 6 hnappagötum jafnt yfir – 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. Takið upp ca 90 cm í kringum háls á hringprjón 2,5 með gallabuxnablár og prjónið 1 umferð brugðið, skiptið yfir í sæblár og prjónið stroff í 2 cm. Innan á skám – á bakstykki: Takið upp ca 50 lykkjur á hringprjón 2,5 innanverðu á skálm – takið upp með sæblár yfir stroff og hvítur yfir sléttprjón og prjónið 5 umferðir stroff með sæblár og hvítur – passið uppá að snúa þræðina saman í skiptingunni á milli lita, fellið af. Innan á skálm – á framstykki: Takið upp lykkjur eins og á bakstykki og prjónið stroff í 2 cm – en eftir 0,5 cm eru fellt af fyrir 6 hnappagötum jafnt yfir (1 hnappagat er prjónað eins og á kanti), fellið af. Takið upp 48-48-52 (56-56) lykkjur í kringum ermi á sokkaprjón 2,5 og gallabuxnablár og prjónið 1 umferð brugðið, skiptið yfir í sæblár og prjónið stroff í 3 cm, fellið af. Saumið tölur í. ---------------------------------------------------------- HÚFA: Fitjið upp 102-108-108 (114-114) lykkjur á sokkaprjón 3 með sæblár og prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 9-10-10 (10,5-11,5) cm setjið 6 prjónamerki í stykkið jafnt yfir í umferð (= 17-18-18 (19-19) lykkjur á milli prjónamerkja). Prjónið nú fyrstu 2 lykkjur á eftir prjónamerki slétt saman (= 6 lykkjur færri í hverri umferð). Endurtakið þessa úrtöku í hverri umferð þar til ermin mælist 5-5-5 (5,5-5,5) cm. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seasidesummeroverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 4-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.