Storm Breeze Jacket#stormbreezejacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Air. Stykkið er heklað neðan frá og upp með v-hálsmáli, klauf í hliðum, gatamynstri og belti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-40 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkja oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum. Síðasti stuðull í umferð er heklaður í loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar. Í hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Síðasta fastalykkja í umferð er hekluð í 3. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2, A.3 og A.4 (A.2 og A.4 á við um kantlista á framstykki). Hver umferð með fastalykkjum er hekluð í frá röngu, hver umferð með stuðlum er hekluð frá réttu. ATH: Ef 4. umferð í A.1 gengur ekki jafnt upp með lykkjum í umferðinni þegar lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli, fækkið lykkjum eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Ef mynstrið í 4. umferð gengur ekki jafnt upp eftir að lykkjum hefur verið fækkað fyrir hálsmáli eða þegar lykkjum er fækkað á ermum, heklið lykkjurnar sem ekki ganga jafnt upp í mynstri í stuðlum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um handveg): Fækkið lykkjum í umferð með fastalykkjum. Fækkið lykkjum í byrjun umferðar þannig: Skiptið út fjölda lykkja sem á að fækka með 1 keðjulykkju í lykkjuna fyrir neðan. Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftir er sá fjöldi lykkja sem fækka á um (ekki er heklað yfir lykkjurnar sem á að fækka). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu. Fækkið um 1 stuðul í 2. umferð í A.1/A.3 þannig: Heklið 2 stuðla saman, þ.e.a.s. heklið 1 stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul í næstu lykkju og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. Fækkið um 1 stuðul í 4. umferð í A.1/A.3 þannig: HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið A.2 eins og áður yfir fyrstu 7 lykkjurnar, í fyrstu endurtekningu af A.3 er heklað þannig: Ekki hekla í loftlykkjuna og hoppið yfir 1 fastalykkju frá umferðinni að neðan, heklið 1 stuðul í næstu lykkju (= 1 lykkja færri) og heklið síðan A.3 út umferðina. Það koma til með að vera 2 stuðlar á eftir hverjum öðrum í þessari umferð. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið A.1 eins og áður þar til 9 lykkjur eru eftir, í næstu endurtekningu af A.1 er lykkjum fækkað þannig: Heklið 1 stuðul í næstu lykkju, ekki hekla í loftlykkjuna og hoppið yfir 1 fastalykkju frá umferðinni að neðan og heklið síðan A.4 yfir síðustu 7 lykkjurnar (= 1 lykkja færri). Það koma til með að vera 2 stuðlar á eftir hverjum öðrum í þessari umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3 (á við um ermar): Stykkið úrtökuna af þannig að lykkjum sé ekki fækkað í 4. umferð í A.1. HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN Í 1 STUÐUL: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum (=3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). HEKLIÐ 2 FASTALYKKJUR SAMAN Í 1 FASTALYKKJU: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkju og sækið þráðinn, stingið heklunálinni niður í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin og bakstykki er heklað fram og til baka í stykkjum hvert fyrir sig, neðan frá og upp. Axlirnar og hliðarsaumarnir eru saumaðir saman þannig að það verði klauf í hliðum. Ermar eru heklaðar fram og til baka, ofan frá og niður og saumað saman. Beltið er heklað eins og i-cord. BAKSTYKKI: Heklið 70-74-78-84-92-100-108 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan, með heklunál 5 með DROPS Air. Fyrsta umferðin er hekluð frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 69-73-77-83-91-99-107 fastalykkjur – lesið HEKLLEIÐBEININGAR. Snúið stykkinu. Byrjið í 2. umferð í A.1 (1. umferðin hefur nú þegar verið hekluð), heklið A.1 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir og endið með fyrstu lykkju í A.1. Endurtakið mynsturteikningu á hæðina. Munið að fylgja heklfestunni. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46-47 cm, fækkið um 2-2-2-2-4-6-10 lykkjur fyrir ermi í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1= 65-69-73-79-83-87-87 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68-70 cm og næsta umferð er hekluð frá réttu, heklið hægri öxl þannig: Heklið 24-26-28-30-32-33-33 stuðla, heklið 2 stuðla saman – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 = 25-27-29-31-33-34-34 lykkjur á öxl. Heklið fram og til baka eins og áður yfir axlalykkjurnar þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70-72 cm. Klippið og festið þráðinn. Heklið vinstri öxl frá réttu þannig: Hoppið yfir fyrstu 13-13-13-15-15-15-17 lykkjur á eftir hægri öxl (= hálsmál), heklið 2 stuðla saman, heklið 1 stuðul í hverja af þeim 24-26-28-30-32-33-33 lykkjum sem eftir eru = 25-27-29-31-33-34-34 lykkjur á öxl. Heklið fram og til baka á sama hátt og hægri öxl þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70-72 cm. Klippið og festið þráðinn. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 42-44-46-50-54-58-62 loftlykkjur með heklunál 5 með DROPS Air. Fyrsta umferðin er hekluð frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 41-43-45-49-53-57-61 fastalykkjur – munið eftir heklfestunni. Snúið stykkinu. Byrjið í 2. umferð (1. umferðin hefur nú þegar verið hekluð), heklið A.2 yfir 7 lykkjur (= kantlisti), heklið eftir A.3 (= 2 lykkjur) út umferðina. Endurtakið mynsturteikningu á hæðina. Lestuð báða næstu kafla áður en þú heklar áfram, það á að fækka lykkjum fyrir V-HÁLSMÁL og HANDVEG. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 40-40-44-42-40-46-46 cm, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli innan við ystu 7 lykkjur við miðju að framan (fækkið lykkjum frá réttu í umferð með stuðlum) – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð með stuðlum alls 7-7-7-9-9-10-10 sinnum. HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46-47 cm, fækkið um 2-2-2-2-4-6-10 lykkjur fyrir handveg í hlið – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 32-34-36-38-40-41-41 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka eins og áður yfir þessar lykkjur. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70-72 cm, heklið A.2 fram og til baka einungis yfir ystu 7 lykkjur við miðju að framan (= kantur í hálsmáli aftan í hnakka), ekki er heklað yfir þær 25-27-29-31-33-34-34 lykkjur sem eftir eru á öxl. Heklið fram og til baka þar til kantur í hálsmáli mælist ca 5-5-5-5½ 5½-6½-6½ cm frá öxl – kantur í hálsmáli á að teygjast aðeins út þegar hann er saumaður við hálsmál aftan í hnakka. Klippið og festið þráðinn. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið 42-44-46-50-54-58-62 loftlykkjur með heklunál 5 með DROPS Air. Fyrsta umferðin er heklið frá röngu þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 41-43-45-49-53-57-61 fastalykkjur. Snúið stykkinu. Byrjið á 2. umferð (1. umferðin hefur nú þegar verið hekluð), heklið A.1 (= 2 lykkjur) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferðinni, heklið A.4 yfir 7 lykkjur (= kantlisti). Endurtakið mynsturteikningu á hæðina. Lestu báða næstu kafla áður en þú heklar áfram, það á að fækka lykkjum fyrir V-HÁLSMÁL og HANDVEG. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 40-40-44-42-40-46-46 cm, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli innan við ystu 7 lykkjur við miðju að framan (fækkið lykkjum frá réttu í umferð með stuðlum) – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð með stuðlum alls 7-7-7-9-9-10-10 sinnum. HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46-47 cm, fækkið um 2-2-2-2-4-6-10 lykkjur fyrir handveg í hlið – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 32-34-36-38-40-41-41 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka eins og áður yfir þessar lykkjur. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70-72 cm, heklið A.4 fram og til baka einungis yfir ystu 7 lykkjur við miðju að framan (= kantur í hálsmáli aftan í hnakka), ekki er heklað yfir þær 25-27-29-31-33-34-34 lykkjur sem eftir eru á öxl. Heklið fram og til baka þar til kantur í hálsmáli mælist ca 5-5-5-5½ 5½-6½-6½ cm frá öxl – kantur í hálsmáli á að teygjast aðeins út þegar hann er saumaður við hálsmál aftan í hnakka. Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR-1: Saumið axlasaumana og saumið hliðarsaumana frá undir handvegi og niður þar til ca 10 cm eru eftir = klauf. Saumið kant í hálsmáli fyrir miðju að aftan og saumið kant í hálsmáli við hálsmál aftan í hnakka. ERMAR: Ermarnar eru heklaðar ofan frá og niður, fram og til baka. Notið heklunál 5 og DROPS Air. Byrjið frá röngu og heklið 53-55-59-61-65-67-71 fastalykkjur meðfram handvegi. Byrjið í 2. umferð (1. umferðin hefur nú þegar verið hekluð). Heklið A.2 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1. lykkju í A.1. Endurtakið mynsturteikningu á hæðina. Þegar ermin mælist 1-1-1-1-3-6-7 cm setjið eitt merki í hvora hlið á ermi – þau eru notuð við frágang: Nú er fækkað um 1 lykkju í hvora hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum innan við 1 lykkju í hvorri hlið í ca 4-3-4-3-3-2-2 cm hverjum cm alls 4-4-4-5-5-6-6 sinnum = 45-47-51-51-55-55-59 lykkjur. Þegar ermin mælist 29-30-30-30-30-30-30 cm aukið út 3 lykkjur jafnt yfir í umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið út í ca 6. hverjum cm alls 3 sinnum = 54-56-60-60-64-64-68 lykkjur. Heklið þar til ermin mælist 48-50-49-48-48-49-48 cm frá öxl – endið með umferð með fastalykkjum eða stuðlum (án loftlykkja á milli). Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR-2: Saumið ermasauma og saumið botninn á handvegi fram að merki – sjá teikningu. BELTI MEÐ I-CORD: Notið heklunál 5 og DROPS Air. Heklið 3 loftlykkjur. Byrjið í 2. loftlykkju frá heklunálinni og heklið þannig: * stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna *, heklið frá *-* einnig í næstu loftlykkju = 3 lykkjur á heklunálinni. UMFERÐ 1: Lyftið 2 ystu lykkjunum af heklunálinni og haldið þessum lykkjum fyrir framan stykkið þannig að þær rakni ekki upp, þráðurinn á að vera aftan við stykkið * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni (= 1 loftlykkja) *, stingið heklunálinni í næstu lykkju sem lyft var af og haldið, heklið frá *-*, stingið heklunálinni í seinni lykkjuna sem lyft var af og haldið og heklið frá *-* = 3 lykkjur á heklunálinni. Endurtakið UMFERÐ 1 þar til beltið mælist ca 150-200 cm – eða að óskaðri lengd. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stormbreezejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.