Caroline skrifaði:
Dear Garnstudio people, I dont understand how the two triangles are joined together, there is nothing in the instruction beside linking them with the strap for the back. However in the pictures it looks link there is an extra 4rows of around 10 trebles in between the triangles, before adding the strap. Is this correct? Thanks a lot!
13.08.2026 - 23:29
Caroline Krul skrifaði:
Ik probeer dit patroon te haken, maar snap niet hoe je aan t begin van een driehoek van 28 stokjes (in de lossen eronder) ineens tot 60! stokjes komt?? Ik maak de XL maat…
12.07.2026 - 22:06DROPS Design svaraði:
Dag Caroline,
Je haakt eigenlijk rondom de ketting van lossen, dus aan beide kanten van de ketting. Hierdoor kom je in totaal op 60 stokjes.
14.07.2026 - 21:02
Paola skrifaði:
Buonasera. Non capisco cosa significhi “lavorare 1m.a in ognuna delle 20 catenelle dall’altro lato della riga di catenelle=44 m.a. + 1 catenella” Grazie
05.06.2026 - 20:30DROPS Design svaraði:
Buonasera Paola, significa che deve lavorare a entrambi i lati della catenella. Buon lavoro!
08.06.2026 - 22:46
Cherry on Top Bikini#cherryontopbikini |
|
![]() |
![]() |
Heklaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er heklað í stuðlum með böndum og sólfjaðrakanti. Stærð XS - XXL.
DROPS 267-11 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur í stað fyrstu fastalykkju. LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru heklaðir 2 þríhyrningar, einn fyrir hægri hlið og einn fyrir vinstri hlið. Síðan eru þessir 2 þríhyrningar heklaðir saman og hekluð eru bönd hvoru megin við neðri kantinn á þríhyrningunum (= til að festa toppinn fyrir miðju að aftan). Það eru heklaðir hlýrar/bönd í toppinn á hvorum þríhyrningi (= til að hneppa eða hnýta saman aftan í hnakka). Í lokin er heklaður kantur í kringum toppinn. Toppurinn er festur fyrir miðju að aftan með 2 tölum og með 1 tölu (eða hnút) aftan í hnakka. ÞRÍHYRNINGUR: Heklið 21-24-27-27-32-38 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan með DROPS Safran með heklunál 3. Heklið fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 stuðul í 5. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 15-18-21-21-26-32 loftlykkjum, heklið (2 stuðla, 1 loftlykkju, 2 stuðla) í síðustu loftlykkju í umferðinni, snúið stykkinu, hoppið yfir síðustu loftlykkjuna (þ.e.a.s. loftlykkjuna sem var verið að hekla í) og haldið áfram með 1 stuðul í hverja af þeim 17-20-23-23-28-34 loftlykkjum sem eftir eru í hinni hliðinni á loftlykkjuröðinni = 38-44-50-50-60-72 stuðlar + 1 loftlykkja. Snúið stykkinu og haldið áfram fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul hvoru megin við loftlykkjuröðina og heklið (2 stuðla, 1 loftlykkju, 2 stuðla) um loftlykkju í toppi á hverri umferð. Munið að fylgja heklfestunni. Haldið svona áfram þar til heklaðar hafa verið alls 11-12-13-14-14-15 umferðir með stuðlum, en í síðustu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út þannig að það vera 40-44-48-52-56-64 stuðlar hvoru megin við loftlykkju í toppi á þríhyrningi (= alls 80-88-96-104-112-128 stuðlar). Stykkið mælist ca 8½-9-10-11-11-11½ cm frá loftlykkjuröðinni. Heklið 1 þríhyrning til viðbótar á sama hátt, en þegar heklað hefur verið til loka eru heklaðar 4 umferðir fram og til baka með 1 stuðul í hvern af 8 neðstu stuðlum. Klippið þráðinn og saumið 8 neðstu stuðlana við vinstri hlið á hinum þríhyrningnum. Klippið þráðinn. BAND AÐ AFTAN: Nú á að hekla þessa 2 þríhyrning saman og heklað er band meðfram neðri kanti á þríhyrningunum. ATH: Passið uppá að hekla yfir báða þríhyrningana frá réttu! Heklið 59-68-77-87-96-110 lausar loftlykkju (= hægra band að aftan), heklið síðan 48-50-53-56-59-62 fastalykkjur jafnt yfir um ystu stuðlana (= meðfram kanti neðst á öðrum þríhyrningnum), heklið 48-50-53-56-59-62 fastalykkjur jafnt yfir um ystu stuðlana (= meðfram kanti neðst á hinum þríhyrningnum), heklið síðan 59-68-77-87-96-110 lausar loftlykkjur í lok umferðar (= vinstra band að aftan) = 214-236-260-286-310-344 lykkjur. Heklið síðan fram og til baka yfir þessar lykkjur þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju / loftlykkju – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju. UMFERÐ 3 (= ranga): Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. Klippið og festið þráðinn. BAND/HLÝRI TIL AÐ HNÝTA SAMAN / HNEPPA Í HNAKKA: Heklið band í toppi á hvorum þríhyrningi þannig: Byrjið í toppi á þríhyrningi, heklið 1 stuðul í stuðulinn á undan loftlykkjuboga, heklið 2 stuðla um loftlykkjubogann og 1 stuðul í stuðulinn á eftir loftlykkjuboga = 4 stuðlar. Heklið fram og til baka yfir þessa 4 stuðla þar til bandið mælist ca 40-42-44-46-48-50 cm. Klippið og festið þráðinn. Mátið toppinn og stillið e.t.v. lengdina á bandinu, síðar er bandið hnýtt saman aftan í hnakka eða fest með tölu. SÓLFJAÐRAKANTUR: Byrjið frá röngu, yst í horninu efst á HÆGRA BANDI AÐ AFTAN og heklið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1½ cm, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* að hægri þríhyrningnum, passið að hekla 1 fastalykkju í hornið og að fjöldi lykkja sé deilanlegur með 2 + 1. Heklið upp að toppi þríhyrningsins og haldið áfram upp meðfram bandinu á öxl, endið með 1 fastalykkju yst á bandinu, passið að fjöldi lykkja sé deilanlegur með 2 + 1, efst á bandinu á öxl er heklað þannig: 1 fastalykkja í fyrstu stuðulinn, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðla, 1 fastalykkja í síðasta stuðulinn. Heklið síðan niður á bandinu á öxl, niður meðfram hinni hliðinni á hægri þríhyrningnum (endið með 1 fastalykkju og gætið þess að fjöldi lykkja sé deilanlegur með 2 + 1), heklið 1 fastalykkju, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkju á milli þríhyrninganna tveggja, haldið áfram á sama hátt meðfram vinstri þríhyrningnum og bandi á öxl, haldið síðan áfram yfir fastalykkjurnar á vinstri bandi á öxl að aftan (gætið þess að fjöldi lykkja sé deilanlegur með 2 + 1), endið með 1 fastalykkju. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju að miðju fyrsta boga, heklið 1 fastalykkju um fyrsta bogann, * heklið 5 stuðla um næsta boga, 1 fastalykkju um næsta boga *, heklið frá *-*. Klippið frá og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Saumið tvær tölur í vinstra band á öxl, eina tölu yst á bandið og 1 tölu ca 4-5 cm inn á bandið. ATH! Reiknað hefur verið með um 4-5 cm skörun, en mátið toppinn svo hann passi rétt og stillið e.t.v. bilið á milli talna. Tölum er hneppt á milli tveggja stuðla á hægra bandi á öxl. Bandið á öxl í toppnum á hvorum þríhyrningi er hneppt aftan í hnakka, eða fest með tölu. Saumið tölu í annað bandið á öxl og hneppið á milli 2 stuðla á hinu bandinu á öxl. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cherryontopbikini eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.