Tiny Traditions#dropstinytraditions |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður kjóll / sparikjóll fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 6 mánaða – 6 ára.
DROPS Children 50-24 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR MÆLING: Öll mál eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur flíkin til með að verða of löng þegar hún er mátuð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri). Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, endið með 1 lykkju slétt (= 1 lykkja færri). I-CORD AFFELLING: Þegar allar lykkjur hafa verið prjónaðar upp, byrjar affellingin í næstu umferð þannig: Fitjið upp 2 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftið þessum 2 nýju lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjónað er með sitji 2 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn sem prjónað er með á stykkinu, þannig að það myndast lítill snúru kantur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið til baka 2 lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu. Endurtakið UMFERÐ 1 þar til 2 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 2 lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á I-cord kantinum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Pilsið og mittislindinn er prjónað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er prjónuð líning fyrir mittislinda og síðan mittislindi með mynstri. Lykkjufjöldinn tvöfaldast og pilsið er síðan prjónaður niður á við. Það er prjónuð líning neðst á pilsinu. Líningin er brotin inn og saumuð við rönguna á pilsinu. Vestið er prjónað fram og til baka neðan frá og upp. Lykkjur eru prjónaðar upp í mittislinda og vestið er prjónað í eitt upp að handvegi. Stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Gerður er frágangur við axlir og í lokin er prjónaður upp i-cord kantur meðfram opi í hálsmáli og í kringum handveg. LÍNING (mittislindi): Fitjið upp 120-132-144-156-168 lykkjur á hringprjón 3 með litnum Svartur – það er mikilvægt að fitja ekki upp of fast. Prjónið sléttprjón hringinn. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar stykkið mælist 10 cm, prjónið 1 umferð þannig: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið frá *-* út umferðina (= uppábrot). MITTISLINDI: Prjónið A.1 (= 12 lykkjur) hringinn yfir allar lykkjur (= 10-11-12-13-14 mynstureiningar). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist mittislindinn ca 11 cm og stykkið mælist alls ca 21 cm frá uppfitjunarkanti (ásamt líningu). KJÓLL/PILS: Setjið 1 merki í umferð, héðan er nú stykkið mælt frá. Haldið áfram með litinn Svartur og prjónið þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 240-264-288-312-336 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð – svo ekki myndist gat. Prjónið sléttprjón hringinn þar til kjóllinn/pilsið mælist 17-24-28-33-41 cm frá merki – lesið LEIÐBEININGAR MÆLING – nú eru eftir ca 10 cm að loka máli + líning. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist kjóllinn/pilsið ca 27-34-38-43-51 cm frá merki – munið eftir LEIÐBEININGAR MÆLING. LÍNING (neðst á pilsi/kjól): Haldið áfram með litinn Svartur og prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot). Prjónið þar til líningin mælist 10 cm frá uppábroti, fellið síðan laust af. FRÁGANGUR-1: Brjótið líninguna efst í mittislinda inn að röngu og saumið niður í líninguna á kjólinn/pilsið með litnum Svartur – saumið í fyrstu umferð sem var prjónuð í litnum Svartur eftir mittislinda og passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur, saumið í aðra hverja lykkju. Ef líningin á mittislinda er of stutt eða of löng er hægt að jafna hana til áður en saumað er - líningin er 1 cm styttri en mittislindinn þannig að hún á ekki að rúllast út eftir frágang. Saumið líninguna neðst á kjólinn/pilsið inn að röngu á stykki á sama hátt. VESTI: Prjónið nú upp lykkjur fyrir vestið, prjónið upp lykkjur neðst á mittislindanum í skiptingunni á milli pils og mittislinda. Notið litinn rauður, byrjið við miðju að framan á innanverðri hlið mittislinda – passið upp að byrjun umferðarinnar á mittislindanum sé í hliðinni fyrir miðju undir erminni og prjónið upp 1 lykkju í hverja lykkju = 120-132-144-156-168 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á stykki: Setjið fyrsta merkiþráðinn eftir fyrstu 30-33-36-39-42 lykkjur (= framstykki) og 1 merkiþráð þegar eftir eru 30-33-36-39-42 lykkjur (= framstykki), þ.e.a.s. það eru 60-66-72-78-84 lykkjur á milli merkiþráð fyrir bakstykki – merkiþræðirnir eru notaðir þegar lykkjur eru felldar af fyrir handveg. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni frá miðju að framan – jafnframt í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið við miðju að framan – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 8-9-9-10-10 sinnum, síðan í 6. hverri umferð 4 sinnum (= alls 12-13-13-14-14 lykkjur færri í hvorri hlið) – þ.e.a.s. úrtaka fyrir v-hálsmáli heldur áfram eftir að stykkinu hefur verið skipt upp í mitti í framstykki og bakstykki. JAFNFRAMT þegar vestið mælist 13-14-15-16-17 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki þannig: Prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-3-4-4-4 lykkjur á undan fyrsta merkiþræði, fellið af næstu 6-6-8-8-8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 54-60-64-70-76 lykkjur eins og áður (það eru eftir 3-3-4-4-4 lykkjur á undan síðasta merkiþræði), fellið af næstu 6-6-8-8-8 lykkjur fyrir handveg, prjónið út umferðina eins og áður. Ekki klippa þráðinn, snúið stykkinu og prjónið framstykkið til loka eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Prjónið fram og til baka eins og áður JAFNFRAMT sem fækkað er um 1 lykkju fyrir handveg í hverri umferð frá réttu – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum fyrir handveg svona alls 3-4-5-6-8 sinnum (= 3-4-5-6-8 lykkjur færri fyrir handveg) – munið eftir að haldið er áfram að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli eins og áður. Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka, eru 12-13-14-15-16 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til framstykkið mælist 23-25-27-29-31 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – munið eftir LEIÐBEININGAR MÆLING. Fellið af. BAKSTYKKI: = 54-60-64-70-76 lykkjur. Prjónið fram og til baka eins og áður JAFNFRAMT sem fækkað er um 1 lykkju fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum fyrir handveg svona alls 3-4-5-6-8 sinnum (= 6-8-10-12-16 lykkjur færri fyrir handveg) = 48-52-54-58-60 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni þar til bakstykkið mælist 20-22-24-26-28 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, í næstu umferð á að fella af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 13-14-15-16-17 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 22-24-24-26-26 lykkjur, prjónið 13-14-15-16-17 lykkjur eins og áður. Prjónið síðan axlir hvora fyrir sig þannig: Prjónið fram og til baka eins og áður JAFNFRAMT sem fækkað er um 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsmáli = 12-13-14-15-16 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – bakstykkið á að vera jafn langt og framstykkin. Fellið af. Kjóllinn mælist 50-59-65-72-82 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR-2: Saumið axlir saman með lykkjuspori. Ef þess er óskað er hægt að festa þráð lóðrétt í gegnum líninguna, mittislindann og vestið undir hvorri ermi til að halda mittislindanum á sínum stað. I-CORD KANTUR: Nú á að prjóna kant í litnum Svartur í kringum hvorn handveg og meðfram öllu hálsmálinu. Í kringum handveg er prjónað þannig: Notið hringprjón 3 og litinn Svartur. Byrjið neðst í handvegi og prjónið upp 58-64-70-76-82 lykkjur í kringum handveg. Í næstu umferð er fellt af með I-CORD AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan. Endurtakið í kringum hinn handveginn. Í kringum hálsmál er prjónað þannig: Notið hringprjón 3 og litinn Svartur. Byrjið við miðju að framan neðst í v-hálsmáli, prjónið upp 144-156-166-180-190 lykkjur jafnt yfir í kringum hálsmál – passið uppá að prjóna upp 1 lykkju í hverja lykkju sem felld var af fyrir hálsmáli á bakstykki. Í næstu umferð er fellt af með i-cord affellingu á sama hátt og í kringum handveg. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropstinytraditions eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.