Linda skrifaði:
Mooi, graag ook een trui met dit huisjesmotief. Zou mooi zijn!
06.01.2026 - 14:09
MONIQUE skrifaði:
Désolé, je viens de trouver mon erreur. Ce sont bien des maisons sur la photo, mais j'ai vu également le modèle avec les petits bonhommes. Bref, le smartphone n'est pas un instrument adéquat après le réveillon pour chercher de nouveaux modèles de chaussettes à tricoter. Bonne fête et encore toutes mes excuses
26.12.2025 - 10:11
MONIQUE skrifaði:
Bonjour, n'y aurait il pas un problème de grille ? On voit des bonhommes sur les photos et la grille représente des maisons . Bonne fête de fin d'année
26.12.2025 - 10:06
Anny Gullbekkhei skrifaði:
Fine
23.12.2025 - 10:24
Anny skrifaði:
Synes de var fine
23.12.2025 - 10:22
Dea skrifaði:
I love it.
22.12.2025 - 18:13
Frosty Town Socks#frostytownsocks |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með norrænu mynstri og húsum. Stærð 35 - 43. Þema: Jól.
DROPS 261-72 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um tá): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um tá): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-16-18 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Sokkarnir eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna frá legg og niður að tá. Þegar hællinn er prjónaður niður á við að il, bíða lykkjurnar ofan á fætinum og þegar hællinn hefur verið prjónaður að áætlaðri lengd, eru hælúrtakan gerð. Síðan eru lykkjur teknar upp hvoru megin við hælinn og prjónað er í hring yfir allar lykkjur á fæti samtímis sem lykkjum er fækkað í hvorri hlið á fæti. Þegar óskaðri lengd á fæti hefur verið náð, endið með að prjóna tá. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. LEGGUR/ STROFF: Fitjið upp 68-68-80 lykkjur jafnt yfir á sokkaprjóna 2,5 með litnum Natur í DROPS Nord. Prjónið 1 umferð sléttprjón, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 2 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3, setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= miðja að aftan). Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum fyrir miðju aftan á sokknum. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: Lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið A.1 alls 3-3-4 sinnum, prjónið síðan A.2 alls 1-1-0 sinnum í kringum legginn. Haldið svona áfram með mynstur. Munið að fylgja prjónfestunni. Samtímis í hverri umferð með merktri með ör í mynsturteikningu, er lykkjum fækkað jafnt yfir þannig: ÖR-1: Fækkið um 4-2-5 lykkjur jafnt yfir = 64-66-75 lykkjur. ÖR-2: Fækkið um 4-2-5 lykkjur jafnt yfir = 60-64-70 lykkjur. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 10 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið síðan sléttprjón með litnum Kastanía. Þegar stykkið mælist 11 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 3-3-4 sinnum = 54-58-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-17-18 cm prjónið hæl og fót eins og útskýrt er að neðan. HÆLL: Haldið eftir fyrstu 14-15-16 lykkjum í umferð fyrir hæl, setjið næstu 26-28-30 lykkjur á þráð (= fyrir miðju ofan á fæti), og haldið eftir síðustu 14-15-16 lykkjum í umferð fyrir hæl = 28-30-32 hællykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 merki í stykkið fyrir miðju í síðustu umferð – stykkið er síðar mælt frá þessu merki. Prjónið HÆLÚRTAKA – lesið leiðbeiningar að ofan. FÓTUR: Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 14-16-18 hællykkjurnar, prjónið upp 16-16-17 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón yfir 26-28-30 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 16-16-17 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hæl = 72-76-82 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar hér. Setjið 1 merkiþráð hvoru megin við 26-28-30 lykkjur ofan á fæti. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og fækkið lykkjum í hvorri hlið þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á undan fyrsta merkiþræði ofan á fæti slétt saman og prjónið síðan fyrstu 2 lykkjur á eftir seinni merkiþræði ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 4-4-5 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 8 sinnum = 48-52-56 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 15-16-18 cm frá merki á hæl – mælt undir fæti. Nú er prjónað A.3 hringinn á fæti. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 18-19-21 cm frá merki á hæl – mælt undir fæti. Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað sléttprjón með litnum Natur að réttu máli. Það eru nú eftir ca 4-5-6 cm að loka máli – mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd með litnum Natur áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 24-26-28 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón með litnum Natur- JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-3-2 sinnum = 12 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá merki á hæl, mælt undir fæti. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostytownsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 261-72
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.