Ocean Haze Top#oceanhazetop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur úr 2 þráðum DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í garðaprjóni með i-cord, rúllukanti og klauf í fyrir miðu að aftan. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. 3 KANTLYKKJUR I-CORD: FYRSTU 3 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. SÍÐUSTU 3 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. LEIÐBEININGAR MÆLING: Vegna þyngdar á garninu og garðaprjóni, þá eru öll mál tekin þegar stykkinu er haldið upp, til að koma í veg fyrir að stykkið verði of sítt / langt þegar það er mátað. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, 1 lykkja í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). LOK UMFERÐAR: Prjónið eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja í garðaprjóni og 3 kantlykkjur eins og áður (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið 1 kantlykkju sléttprjón, 2 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prj´na eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). LOK UMFERÐAR: Prjónið eins og áður þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur garðaprjón og 1 kantlykkja í sléttprjóni (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um hliðar á framstykki/bakstykki): Prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, 1 lykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón þar til 4 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni og 3 kantlykkjur eins og áður. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Framstykkið og bakstykkið er prjónað hvort fyrir sig. Stykkið er prjónað neðan frá og upp og stykkin saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli (= rúllukantur) fram og til baka. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 56-62-68-76-84-94 lykkjur á prjón 5,5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Cotton Merino (= 2 þræðir) og prjónið rúllukant þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 3 KANTLYKKJUR I-CORD, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 kantlykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 3 kantlykkjur i-cord, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 kantlykkjur i-cord. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 3 kantlykkjur i-cord, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 kantlykkjur i-cord. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, með 3 kantlykkjur i-cord í hvorri hlið eins og áður. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm – lesið LEIÐBEININGAR MÆLING, aukið út 1 lykkju í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út 1 lykkju í hvorri hlið í hverjum 6-7-7-7-7-7 cm alls 3 sinnum = 62-68-74-82-90-100 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm – munið eftir LEIÐBEININGAR MÆLING. Í byrjun næstu 2 umferða eru felldar af 3-4-5-5-6-7 lykkjur fyrir handveg = 56-60-64-72-78-86 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni með 3 kantlykkjum i-cord í hvorri hlið eins og áður. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir og næsta umferð er prjónuð frá réttu, byrjar úrtaka fyrir handveg – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fækkið um 1 lykkju 6-6-8-11-14-16 sinnum í hvorri hlið. Síðan er lykkjum fækkað fyrir handveg í 4. hverri umferð: 1 lykkja 5-6-6-5-4-4 sinnum í hvorri hlið, jafnframt þegar stykkið mælist 36-37-38-40-41-42 cm – munið eftir LEIÐBEININGAR MÆLING, setjið miðju 14-14-14-14-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Prjónið síðan garðaprjón með 3 kantlykkjur i-cord eins og áður og 1 lykkju sléttprjón að hálsmáli. Í næstu umferð frá réttu, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 1 lykkju 3-4-4-5-5-6 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir handveg og hálsmáli hefur verið gerð til loka eru 7-7-7-8-8-9 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm – munið eftir LEIÐBEININGAR MÆLING. BAKSTYKKI: Fitjið upp 56-62-68-76-84-94 lykkjur á prjón 5,5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Cotton Merino (= 2 þræðir) og prjónið rúllukant þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 3 kantlykkjur i-cored, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 kantlykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 3 kantlykkjur i-cord, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 kantlykkjur i-cord. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 3 kantlykkjur i-cord, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 kantlykkjur i-cord. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, með 3 kantlykkjur i-cord í hvorri hlið eins og áður. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm – lesið LEIÐBEININGAR MÆLING, aukið út 1 lykkju í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út 1 lykkju í hvorri hlið í hverjum 6-7-7-7-7-7 cm alls 3 sinnum = 62-68-74-82-90-100 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm – munið eftir LEIÐBEININGAR MÆLING. Í byrjun næstu 2 umferða eru felldar af 3-4-5-5-6-7 lykkjur fyrir handveg = 56-60-64-72-78-86 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni með 3 kantlykkjum i-cord í hvorri hlið eins og áður. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir og næsta umferð er prjónuð frá réttu, byrjar úrtaka fyrir handveg – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fækkið um 1 lykkju 6-6-8-11-14-16 sinnum í hvorri hlið. Síðan er lykkjum fækkað fyrir handveg í 4. hverri umferð: 1 lykkja 5-6-6-5-4-4 sinnum í hvorri hlið, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-40-41-42 cm – munið eftir LEIÐBEININGAR MÆLING, skiptist stykkið fyrir klauf fyrir miðju að aftan og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig – ATH: Það eiga að vera jafnmargar lykkjur fyrir hvora öxl eftir að stykkinu hefur verið skipt upp fyrir miðju að aftan (úrtaka fyrir handveg heldur áfram). ÖXL: Prjónið síðan garðaprjón með 3 kantlykkjur i-cord eins og áður. Þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm, fellið af ystu 9-10-10-11-12-13 lykkjur frá hálsmáli = 8-8-8-9-9-10 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan garðaprjón með 3 kantlykkjur i-cord eins og áður og 1 lykkju sléttprjón við hálsmál. Í næstu umferð frá réttu, fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 = 7-7-7-8-8-9 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm – munið eftir LEIÐBEININGAR MÆLING. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 lykkju í hvorri hlið, þannig að einungis verða 2 sýnilegar i-cord lykkjur hvoru megin við sauminn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 5 og 1 þráð í hvorum lit (= 2 þræðir), prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið fyrir miðju að aftan og prjónið upp ca 52 til 78 lykkjur (ásamt lykkjum af þræði fyrir miðju að framan). Prjónið sléttprjón fram og til baka (brugðið frá röngu, slétt frá réttu) með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til kantur í hálsmáli mælist ca 3-3-3½-3½-4-4 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá röngu. HNÝTT SAMAN MEÐ SLAUFU: Klippið silkiborðann í tvo jafnlaga hluta. Saumið annan silkiborðann í hvora hlið í kanti í hálsmáli að aftan – silkiborðinn er saumaður niður í skiptinguna á milli hálsmáls og kants í hálsmáli frá röngu á stykki. Lokið opinu að aftan með því að hnýta slaufu. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oceanhazetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.