Birgit skrifaði:
Auf wie vielen Nadeln werden die 6 Maschen für das Herz verteilt und ist die Zunahme ein Doppelumschlag?
28.01.2025 - 15:48DROPS Design svaraði:
Liebe Birgit, die Maschen verteilen Sie, wie Sie es möchten, Sie können diese 6 Maschen (ungelmäßig) verteilt auf 4 Nadeln oder mit 2 Maschen auf je 3 Nadeln verteilen. Die Zunahmen werden mit nur 1 Umschlag bearbeitet: 1 Umschlag, 2 Maschen (mit der Markierung dazwischen), 1 Umschlag. Viel Spaß beim Stricken!
29.01.2025 - 09:10
Jen skrifaði:
Is there an error in this pattern? When making the upper portion of the heart there only seem to be decreases at the bugging and end of the round, but I THINK at here should be 2 decreases in the middle of the row to help form the V. I worked this in the round on 2 needles, as front and back (with a third ‘working needle) . I think the decreases need to be at the end of each needle, not round.
03.01.2025 - 14:48DROPS Design svaraði:
Dear Jen, when working part 1 and 2 you can see that you work decreases on round 1 and round 3. In round 1 you only decrease in the sides, while on round 3 you will also decrease in the center (the marker), as well as the sides. You will shape for the V on this 3rd round. Happy knitting!
05.01.2025 - 19:22
Iga skrifaði:
Dzień dobry, wydaje mi się, że we wzorze robótka jest niepoprawnie podzielona i powinno być do przerobienia 19 oczek, a nie 20, aby w kolejnej części poprawnie móc zdjąć połowę robótki na nitkę. Czy mogłabym prosić o weryfikację tego?
18.12.2024 - 20:59DROPS Design svaraði:
Witaj Igo, o którym etapie we wzorze piszesz?
23.12.2024 - 10:18
Ornella skrifaði:
Non riesco a capire perché il modello è in maglia rasata nelle spiegazioni ci sono tutti ferri a diritto?
18.12.2024 - 09:17DROPS Design svaraði:
Buonasera Ornella, il modello è lavorato in tondo con i ferri a doppia punta, quindi si lavora a diritto. Buon lavoro!
18.12.2024 - 16:51
Ornella skrifaði:
Impossibile da realizzare ....
17.12.2024 - 21:53
Marie Le May skrifaði:
J'ai 60 ans d'expérience en tricot et j'avoue que les explications pour ce modèle me causent des difficultés. En 2022 j'ai pourtant réalisé plus de 25 marque-pages (souris)...
16.12.2024 - 19:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Le May, n'hésitez pas à nous indiquer quelle partie vous pose problème pour que nous puissions vous aider. Bon tricot!
18.12.2024 - 09:19
Laura Lentini skrifaði:
Spiegate in maniera contorta. Questo non mi spinge a comperare la vostra lana che trovo però di ottima qualità
14.12.2024 - 08:23
Helene Richard skrifaði:
Serais-ce possible d'avoir un video explicatif.....j'ai beau relire je ne comprend pas le patron :-(
13.12.2024 - 12:33
Ina Demmler skrifaði:
Vielen Dank für dieses süße Türchen und frohe Weihnachten für alle!
13.12.2024 - 08:24
Winter Pine Hearts#dropswinterpinehearts |
|
![]() |
![]() |
Prjónað hjarta / jólaskraut úr DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað í hring í sléttprjóni, neðan frá og upp. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1636 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hvorri hlið (merkið situr á milli þessa 2 lykkja). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HJARTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hjartað er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. HJARTA: Fitjið upp 6 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Fiesta. Setjið 1 merki í byrjun umferðar og 1 merki eftir 3 lykkjur (= hliðar). UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: Prjónið slétt og aukið út 2 lykkjur við hvert merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri) = 10 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið slétt. Prjónið eins og umferð 2 og 3 þar til aukið hefur verið út alls 10 sinnum á hæðina = 46 lykkjur og síðasta umferð er umferð án uppsláttar. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Fléttið 2 lykkjur fyrir miðju að framan og 2 lykkjur fyrir miðju að aftan á hjartanu þannig: UMFERÐ 22: Prjónið 10 lykkjur slétt, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman af kaðlaprjóni, prjónið 20 lykkjur slétt, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman af kaðlaprjóni, prjónið 10 lykkjur slétt = 44 lykkjur. Nú skiptist stykkið þannig: UMFERÐ 23: Prjónið 11 lykkjur slétt, setjið næstu 22 lykkjur á þráð og prjónið síðustu 11 lykkjur slétt. Hjartað skiptist mitt í fléttunni / kaðlinum í hvorri hlið og hjartað er prjónað til loka í hring í 2 stykkjum. STYKKI-1: Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= í hlið á hjartanu) og 1 merkiþráð eftir 11 lykkjur (= í miðju á hjartanu við skiptingunni). UMFERÐ 1: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt = 20 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt = 16 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Endurtakið umferð 1 til 4 1 sinni til viðbótar = 10 lykkjur. UMFERÐ 9: * Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 6 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar. Herðið á þræði og festið vel. Fyllið hjartað með vatti áður en stykki-2 er prjónað. STYKKI-2: Setjið til baka 22 lykkjur af þræði á sokkaprjóna og prjónið þannig: ATH! Passið uppá að fylla hjartað með vatti á meðan prjónað er. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= í hlið á hjartanu) og 1 merkiþráð eftir 11 lykkjur (= í miðju á hjartanu við skiptingunni). UMFERÐ 1: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt = 20 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt = 16 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Endurtakið umferð 1 til 4 1 sinni til viðbótar = 10 lykkjur. UMFERÐ 9: * Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 6 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar. Herðið á þræði og festið vel. FRÁGANGUR: Þræðið þráð í gegnum lykkjur frá uppfitjunarkanti, herðið á þræði þannig að lokað verði fyrir opið neðst. Festið þráðinn vel. Saumið e.t.v. nokkur spor í miðju þar sem hjartað skiptist. LYKKJA: Klippið snúru að eigin vali eða afgangsgarn ca 20 cm, þræði í gegnum lykkju fyrir miðju á hjartanu og hnýtið hnút efst. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropswinterpinehearts eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1636
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.