Ilse Bilse skrifaði:
Wu derschön, nur schade,daß man die Häuschen nicht füllen kann.
01.12.2024 - 17:34
Ilse skrifaði:
Wu derschön, nur schade,daß man die Häuschen nicht füllen kann.
01.12.2024 - 17:29
Airashii skrifaði:
Hello, Drops Design. Thank you for another great idea and pattern. I wonder if there is any particular reason for wrong measurements in your patterns: the gauge/knitting tension is not correctly written: it should be written 10 CM x 10 CM (= 100 square cm), not 10 x 10 CM (= 100 CM = measurment in length, no hight included and obviously incorrect, also if compared to correctly written measurments in inches (where/when they are given)). Looking forward to your answer. Happy December! Airashii
01.12.2024 - 17:23DROPS Design svaraði:
Dear Airashii, gauge swatches are generally calculated as a 10 x 10 square (that is, 10 cm in length and 10 cm in width) so that the knitter can ensure that the number of stitches (width) and number of rows (length) matches. So 10 x 10 is a correct form of indicating a square shape (such as mentioning a grid as 2x2 or 4x4, it's a form of saying that it's 2 rows by 2 columns, not a row with 4 squares). Otherwise, we would simply write the gauge as 100 cm (with no multiplication needed). The cm is only given so that US knitters know that the measurements given are in cm and not inches (which you can find in the US version of the pattern). Happy knitting!
07.12.2024 - 22:57
Diane skrifaði:
It's a pleasure and a delight to open the Drops' Advent Calendar. Thank you!
01.12.2024 - 17:19
Gudrun skrifaði:
Jedes Jahr freue ich mich auf Ihren Adventkalender - Danke liebes Dropsteam! Die kleinen Häuser sind entzückend, ich freue mich auf's Nacharbeiten.
01.12.2024 - 16:47
Elena skrifaði:
Have been looking forward to seeing the Calendar. Thank you! The Merry Village is absolutely wonderful!
01.12.2024 - 14:35
Elfriede skrifaði:
Kann man die anleitung auch speichern als pdf danke
01.12.2024 - 13:36
Marica skrifaði:
Molto carino e interessante
01.12.2024 - 11:41
Bodmer skrifaði:
Vielen Dank fürs 1. Türchen gefällt mir sehr gut. LG erica
01.12.2024 - 11:34
Viviane Michel skrifaði:
Bonjour je tenais a vous remerciez pour ce joli calendrier de maison J'ai encore beaucoup de laine drops J aimerais le réaliser
01.12.2024 - 09:11
Merry Village#dropsmerryvillage |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónað hús / jólaskraut úr DROPS Alpaca eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1625 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). LITIR: Hvert hús er prjónað í tveimur litum. Það eru tillögur um liti á 4 húsum úr DROPS Alpaca og 2 húsum úr DROPS Lima. HÚS-1: Botn og þak er prjónað í litnum dökk blush DROPS Alpaca. Húsveggur er prjónaður í litnum natur DROPS Alpaca. HÚS-2: Botn og þak er prjónað í litnum nougat DROPS Alpaca. Húsveggur er prjónaður í litnum natur DROPS Alpaca. HÚS-3: Botn og þak er prjónað í litnum dökk grænn DROPS Alpaca. Húsveggur er prjónaður í litnum ljós nougat DROPS Alpaca. HÚS-4: Botn og þak er prjónað í litnum rústrauður DROPS Alpaca. Húsveggur er prjónaður í litnum nougat DROPS Alpaca. HÚS-5: Botn og þak er prjónað í litnum rauður DROPS Lima. Húsveggur er prjónaður í litnum beige DROPS Lima. HÚS-6: Botn og þak er prjónað í litnum dökk bergflétta DROPS Lima. Húsveggur er prjónaður í litnum beige DROPS Lima. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp. Fyrst er botninn og húsveggir prjónað, síðan er þakið prjónað. Hurð og gluggar er saumað út með flatsaum. Húsið er fyllt með vatti áður en botninn er saumaður saman. Lykkja er fest í lokin í toppinn á húsinu. HÚS: Lesið LITIR í útskýringu að ofan og fitjið upp 34 lykkjur á sokkaprjón 3 með lit fyrir botn. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Skiptið yfir í lit fyrir húsvegg, skiptið lykkjunum á sokkaprjóna 3 og prjónið sléttprjón hringinn í 4 cm – mælt eftir garðaprjóni – jafnframt í síðustu umferð er aukið út um 4 lykkjur þannig: Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið 1 lykkju slétt, aukið út um 1 lykkju, prjónið 15 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju, prjónið 15 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju, prjónið 1 lykkju slétt = 38 lykkjur. Skiptið yfir í lit fyrir þak og prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat). Prjónið 1 umferð brugðið og 2 umferðir slétt. Setjið 1 merki í hvora hlið á stykki, þ.e.a.s. 1 merki í byrjun umferðar og 1 merki eftir 19 lykkjur (merkin eru sett á milli 2 lykkja). Nú er prjónað sléttprjón hringinn JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir þak í hvorri hlið. Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið til skiptis í annarri og 3. hverri umferð alls 4 sinnum = 22 lykkjur eftir. Fækkið síðan um 2 lykkjur í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 3 sinnum = 10 lykkjur eftir. Síðasta umferðin er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar = 6 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum lykkjurnar og festið vel. HURÐ OG GLUGGAR: Notið litinn dökk grár í DROPS Alpaca / litinn svartur í DROPS Lima og saumið út hurð og glugga í aðra hliðina á húsinu – sjá mynd. Hurðin er saumuð yfir 4 lykkjur á breiddina og 8-10 umferðir á hæðina, glugginn er saumaður út yfir 4 lykkjur á breiddina og 4 umferðir á hæðina. FRÁGANGUR: Fyllið húsið með vatti og saumið síðan botninn saman – saumið með 1 spori í hverja lykkju. LYKKJA: Klippið 1 þráð DROPS Alpaca / DROPS Lima ca 15 cm, þræðið í gegnum lykkju efst á húsinu og hnýtið hnút í endann. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsmerryvillage eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1625
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.