Roselyne Adam skrifaði:
Superbe modèle
16.11.2024 - 18:46
Inita Strike skrifaði:
Frost
11.08.2024 - 20:20
Stimla skrifaði:
Classic touch
10.08.2024 - 11:40
Madelaine skrifaði:
Winter Nights Gloves
09.08.2024 - 19:23
Sandra Boyd skrifaði:
These remind me of our Scottish Shetland gloves. It wiil be fun tome my own pair with a modern twist.
08.08.2024 - 15:31
Glacier Blue Gloves#glacierbluegloves |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaðir fingravettlingar úr DROPS Karisma með norrænu mynstri.
DROPS 253-36 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FINGRAVETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá úlnlið að fingurtoppum jafnframt því sem aukið er út fyrir þumal. Þegar útaukningu fyrir þumal er lokið, setjið lykkjur fyrir þumal á þráð og höndin er prjónuð til loka. Síðan er hver fingur prjónaður til loka hver fyrir sig. VINSTRI FINGRAVETTLINGUR: Fitjið upp 52-56 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með 1 þræði ljós gallabuxnablár í DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Síðan er A.1 prjónað hringinn yfir allar lykkjur í umferð – ATH! Sjá stjörnu sem sýnir rúður þar sem á að prjóna þumallinn á vinstri vettlingi – þegar prjónað hefur verið upp að rúðunum, prjónið A.2a yfir þessar lykkjur (= vinstri þumall), jafnframt því sem A.1 er prjónað yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar aukið hefur verið út 5 sinnum á hæðina, setjið 13 þumallykkjur á þráð og fitjaðar eru upp 3 nýjar lykkjur aftan við lykkjur á þræði = 52-56 lykkjur. Haldið áfram með A.1 hringinn. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, setjið fyrstu 21-23 lykkjur ofan á hönd á þráð, haldið eftir næstu 14-14 lykkjum á prjóni og setjið síðustu 17-19 lykkjur innan í hönd á annan þráð. Nú er hver fingur prjónaður til loka fyrir sig. LITLI FINGUR: = 14-14 lykkjur. Fitjið upp 6-8 nýjar lykkju að lykkjum á þráðum = 20-22 lykkjur. Litli fingurinn er prjónaður eftir mynsturteikningu A.3a, A.3b og A.3c. Byrjið mynstrið þannig að A.1x passi yfir A.1x í hlið á vettlingi. Loka mál á litla fingri á að vera ca 5½ -6 cm. Prjónið fyrst A.3a, síðan er A.3b endurtekið á hæðina þar til eftir er ca ½ cm að loka máli, endið með A.3c. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka eru 10-10 lykkjur í umferð, klippið þræðina, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þráðum og festið vel. BAUGFINGUR: Setjið til baka 6-6 lykkjur af hvorum þræði á sokkaprjóna 2,5, prjónið einnig upp 4-5 lykkjur við litla fingur og fitjið upp 4-5 nýjar lykkjur að lykkjum á þráðum = 20-22 lykkjur. Baugfingur er prjónaður eftir mynsturteikningu A.4a, A.4b og A.4c. Byrjið mynstrið yfir lykkjum frá framhlið á vettlingi. Loka mál á baugfingri á að vera ca 7-8 cm. Prjónið fyrst A.4a, síðan er A.4b endurtekið á hæðina þar til eftir er ca ½ cm að loka máli, endið með A.4c. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru 8-10 lykkjur í umferð, klippið þræðina, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þráðum og festið vel. LANGATÖNG: Setjið til baka 6-7 lykkjur af hvorum þræði á sokkaprjóna 2,5, prjónið einnig upp 4-4 lykkjur við baugfingur og fitjið upp 4-4 nýjar lykkjur að lykkjum á þráðum = 20-22 lykkjur. Langatöng er prjónuð eftir mynsturteikningu A.4a, A.4b og A.4c. Byrjið mynstrið yfir lykkjum frá framhlið á vettlingi. Loka mál á löngutöng á að vera ca 7½-8 cm. Prjónið fyrst A.4a, síðan er A.4b endurtekið á hæðina þar til eftir er ca ½ cm að loka máli, endið með A.4c. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru 8-10 lykkjur í umferð, klippið þræðina, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þráðum og festið vel. VÍSIFINGUR: Setjið til baka þær 14-16 lykkjur sem eftir af hvorum þræði á sokkaprjóna 2,5, prjónið einnig upp 6-6 lykkjur við löngutöng = 20-22 lykkjur. Vísifingur er prjónaður eftir mynsturteikningu A.5. Byrjið mynstrið yfir lykkjur sem eru að innanverðu á vettlingi þannig að A.1z passar yfir A.1z í hlið á vettlingi. Loka mál á vísifingri á að vera ca 6½-7½ cm. Prjónið fyrst A.5a, síðan er A.5b endurtekið á hæðina þar til eftir er ca ½ cm að loka máli, endið með A.5c. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru 10-10 lykkjur í umferð, klippið þræðina, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þráðum og festið vel. ÞUMALL: Setjið til baka 13 þumallykkjur á sokkaprjón 2,5, prjónið einnig upp 9 lykkjur aftan við þumal = 22 lykkjur. Þumallinn er prjónaður eftir mynsturteikningu A.2b og A.2c. Byrjið mynstrið þannig að lykkjurnar passi yfir lykkjur sem eru á framhlið á þumli. Loka mál á þumli á að vera ca 5½-6 cm. Prjónið A.2b þar til eftir er ca ½ cm að loka máli, endið með A.2c. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru 10-10 lykkjur í umferð, klippið þræðina, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þráðum og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið eins og vinstri vettlingur, en þumallinn er staðsettur í gagnstæðri hlið – sjá stjörnu í mynsturteikningu. Lykkjur fyrir fingur eru settar á þráð þannig: Haldið eftir fyrstu 8-8 lykkjum og síðustu 6-6 lykkjum á prjóni fyrir litla fingur, setjið næstu 21-23 lykkjur ofan á hönd á þráð og setjið næstu 17-19 lykkjur innan í hönd á annan þráð. Fingurnir eru prjónaðir á sama hátt og á vinstri vettlingi. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #glacierbluegloves eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 253-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.