Kristina Hobbs skrifaði:
Jeg forstår ikke A1. Hvordan kan det mønster give 16 masker? 1 r, og så samle 3 masker op i lænken mellem 2 masker på pinden under, så 2 v sammen, samle 3 masker op igen og så 1 r - det giver 9 masker?? Skal der strikkes r efter hver opsamlet maske? Hvordan kan 2 v sammen give et samlet lige antal masker?
23.11.2024 - 00:10DROPS Design svaraði:
Hei Kristina. A.1 = 16 masker og når du skal strikke A.1 strikker du slik: 2rett - plukk opp tråden mellom 2 masker under og strikk tråden i bakre maskeledd - 2rett - plukk opp tråden strikk tråden i bakre maskeledd - 2rett - plukk opp tråden og strikk tråden i bakre maskeledd - 1rett - strikk 2 masker vrang sammen - 1rett - plukk opp tråden og strikk tråden i bakre maskeledd - 2rett - plukk opp tråden og strikk tråden i bakre maskeledd - 2rett - plukk opp tråden og strikk tråden i bakre maskeledd - 2rett. Du har nå strikket over 16 masker, økt 6 masker og felt 1 maske = 21 masker på pinnen. mvh DROPS Design
25.11.2024 - 13:59
Frid Alice Henriksen skrifaði:
Hej! Hur varma och vind resistenta blir dessa vantarna?
14.11.2024 - 12:06DROPS Design svaraði:
Hei Frid. DROPS Melody er et varmt mohair aktig garn . Vottene strikkes på pinne 5 som gir en tett masketetthet, men de er nok kanskje ikke kjempe vind resistente. Da ville jeg nok ha anbefalt noen votter som er tovet. mvh DROPS Design
18.11.2024 - 14:17
Coral Whisper Mittens#coralwhispermittens |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir vettlingar úr DROPS Melody með köðlum.
DROPS 253-14 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um þumal): Prjónið fram að lykkju með merki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með merki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Í næsta skipti sem aukið er út er prjónað þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með merki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, þ.e.a.s. aukið er út allan tímann að utan við útauknar lykkjur. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, prjónað er frá úlnlið og upp. Fyrir miðju ofan á vettlingi er prjónaður kaðall. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 32-32-36 lykkjur á sokkaprjóna 5 með DROPS Melody. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff þannig: 1-1-2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3-3-2 lykkjur eru eftir, endið með 2-2-2 lykkjur slétt og 1-1-0 lykkjur brugðið. Haldið áfram hringinn með stroffi í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið 0-0-1 lykkju slétt, prjónið A.1 og prjónið afgang af umferð í sléttprjóni jafnframt því sem aukið er út um 0-2-0 lykkjur = 37-39-41 lykkjur. Setjið eitt merki í stykkið hér, stykkið er núna mælt frá þessu merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 2-2-3 lykkjur slétt, prjónið A.2 (kaðall er fyrir miðju ofan á vettlingi), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 3 lykkjur, setjið 1 merki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju slétt (= þumallykkja – sem er notuð síðar þegar auka á út fyrir þumal), endið með 2 lykkjur slétt. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.2 eins og áður þar til stykkið mælist 2 cm frá merki. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Nú á að auka út fyrir opi fyrir þumal, prjónið sléttprjón og mynstur A.2 eins og áður. JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við þumallykkju – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 3-4-5 sinnum = 43-47-51 lykkjur. Þegar stykkið mælist 5½-6½-7 cm frá merki, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður þar til eftir eru 3-4-5 lykkjur á undan þumallykkju, setjið næstu 7-9-11 lykkjur á þráð (þ.e.a.s. lykkja með merki og 3-4-5 lykkjur hvoru megin við hana), fitjið upp 1 nýja lykkju á bakhlið við þumallykkjur, prjónið afgang af umferð slétt = 37-39-41 lykkjur. Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður þar til stykkið mælist 14-16-17 cm frá merki. Setjið 1 merkiþráð í byrun umferðar og 1 merkiþráð eftir 21-21-23 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 7-7-8 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3, prjónið sléttprjón út umferðina = 33-35-37 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni yfir allar lykkjur, í næstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við 2 merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 5-5-6 sinnum = 13-15-13 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju slétt = 7-8-7 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. ÞUMALL: Setjið 7-9-11 þumallykkjur af þræði á sokkaprjóna 5 og prjónið einnig upp 3 lykkjur á bakhlið á þumli (prjónið upp 1 lykkju á undan lykkju sem fitjuð var upp aftan við þumal, 1 lykkju í lykkju sem fitjuð var upp og 1 lykkju eftir lykkju sem fitjuð var upp aftan við þumal) = 10-12-14 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til þumallinn mælist ca 5½-6-6½ cm. Prjónið allar lykkjur 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn = 5-6-7 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur, en þegar merkja á fyrir þumallykkju er það gert þannig: Prjónið 2-2-3 lykkjur slétt, prjónið A.2 eins og áður, prjónið 4-4-5 lykkjur slétt, setjið 1 merki í næstu lykkju og prjónið þessa lykkju slétt (= þumallykkja – síðar á að nota merkið þegar auka á út fyrir þumal), prjónið út umferðina. Síðan er vettlingurinn og þumallinn prjónaður á sama hátt og vinstri vettlingur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #coralwhispermittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 253-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.