Kickie skrifaði:
Kan jag få detta mönster utskrivet? Jag är bra på att virka men kan inte läsa diagram.
25.03.2025 - 14:10DROPS Design svaraði:
Hej Kickie. Vi har dessvärre inte möjlighet att skriva ut det, men se gärna på denna lektion som handlar om hur du läser ett virkdiagram så kommer du säkert klara det! Mvh DROPS Design
26.03.2025 - 08:04
Babeth skrifaði:
Bonjour Je ne comprends pas pourquoi nous travaillons en aller retour puisque nous fermons le cercle de mailles au premier rang Merci
02.12.2024 - 16:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Babeth, crocheter alternativement sur l'endroit et sur l'envers permet de garder le début des tours en ligne droite au milieu dos. Bon crochet!
03.12.2024 - 08:46
Asbjørg skrifaði:
Er det slik at man syr sammen arbeidet i ryggen og under ermene til slutt? I og med at arbeidet hekles fram og tilbake?
13.11.2024 - 12:39DROPS Design svaraði:
Hei Asbjørg. Nei, du hekler frem og tilbake, men på slutten av omgangene hekles det 1 kjedemaske i den 3.luftmaskene fra begynnelsen av omgangen før arbeidet snus slik at neste omgang kan hekles fra den andre siden av arbeidet. Du hekler altså midt bak sammen hver gang du snur arbeidet. mvh DROPS Design
18.11.2024 - 11:52
Flo skrifaði:
Bonjour y a t il sur le site des leçons ou on peut apprendre à faire un raglan au crochet ou des modèles pas à pas ?j'appréhende pour me lancer Merci
18.10.2024 - 11:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Flo, vous trouverez ici des vidéos qui montrent comment crocheter un empiècement/un raglan, mais il faudra toujours vous référer aux explications pour ce qui est du nombre de mailles, de la façon d'augmenter etc... Bon crochet!
18.10.2024 - 15:49
Caramel Apple#caramelapplesweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Daisy. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-37 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. ATH! Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri frá réttu og frá vinstri til hægri frá röngu. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. UPPLÝSINGAR HEKL: Hver umferð byrjar með 3 loftlykkjum, þessar lykkjur koma í stað fyrsta stuðuls. Í lok umferðar er hekluð 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar áður en stykkinu er snúið þannig að hægt er að hekla næstu umferð frá hinni hliðinni á stykkinu. Umferðin er hekluð til skiptis frá réttu og frá röngu, mynsturteikningin er þess vegna lesin til skiptis frá hægri og vinstri. Byrjun á umferð er fyrir miðju aftan á peysunni. LEIÐBEININGAR HEKL: Ef óskað er eftir því að byrjun á umferð sé í skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi (í stað fyrir miðju að aftan), er hægt að hekla þannig: Byrjið á að hekla A.2 (= á milli hægri ermi og bakstykkis, mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri), heklið A.1 yfir lykkjur fyrir ermi, heklið A.3, heklið A.1 yfir lykkjur á framstykki, heklið A.2, heklið A.1 yfir lykkjur fyrir ermi, heklið A.3, heklið A.1 yfir lykkjur frá bakstykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í A.2. Snúið stykkinu. Frá röngu er mynsturteikning lesin frá vinstri til hægri. Til að byrjun á umferð geti verið í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi þá verður í lok hverrar umferðar að hekla keðjulykkjur fram að stuðlum á undan útaukningu í A.2 áður en stykkinu er snúið. Útaukning í A.2 (= á milli hægri ermi og bakstykkis) er gerð í lok umferðar frá röngu og í byrjun á umferð frá réttu. ATH! Passið uppá að þegar stykkinu er skipt upp fyrir fram- og bakstykki og ermar, notið merkiþræði og passið uppá að ermarnar séu staðsettar samhverft í hvorri hlið á stykki. 2 STUÐLAR SAMAN: Þegar útaukningu á berustykki er lokið er heklað um hvern loftlykkjuboga þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni um loftlykkjubogann, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Lykkjum er fækkað í byrjun og lok umferðar þannig: Heklið fyrsta stuðul eins og áður (þ.e.a.s. 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul), heklið næstu 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gengum næstu lykkju og sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum 2 lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, það eru 3 lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Heklið eins og áður þar til 3 stuðlar eru eftir í umferð, fækkið um 1 stuðul á sama hátt og heklið 1 stuðul í síðasta stuðul í umferð. Nú hefur verið fækkað um 2 lykkjur í umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað fram og til baka frá miðju að aftan, umferðin er hekluð til skiptis frá réttu og frá röngu og heklað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið heklað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað til loka niður á við fram og til baka eins og áður, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar heklaðar fram og til baka á sama hátt. Í lokin er heklaður kantur í kringum hálsmál. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BERUSTYKKI: Lesið UPPLÝSINGAR HEKL og LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan. Notið DROPS Daisy og heklunál 4, heklið 8-92-96-100-104-108 loftlykkjur og tengið saman loftlykkjurnar í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Lesið LEIÐBEININGAR HEKL í útskýringu að ofan. UMFERÐ 1 er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir 12-13-14-13-14-15 loftlykkjur (= hálft bakstykki), A.2 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.1 yfir 18-18-18-22-22-22 loftlykkjur (= ermi), A.3 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.1 yfir 24-26-28-26-28-30 loftlykkjur (= framstykki), A.2 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.1 yfir 18-18-18-22-22-22 loftlykkjur (= ermi), A.3 í næstu loftlykkju (= laskalína), A.1 yfir 12-13-14-13-14-15 loftlykkjur (= hálft bakstykki). Á eftir fyrstu umferð eru 92-96-100-104-108-112 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð. Setjið eitt merki eftir 46-48-50-52-54-56 stuðla = ca mitt að framan) – stykkið er mælt héðan. Snúið stykkinu. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka. Það eru 124-128-132-136-140-144 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð, lykkjum er skipt á milli loftlykkjuboga þannig: 26-26-26-30-30-30 stuðlar fyrir hvora ermi og 36-38-40-38-40-42 stuðlar fyrir bakstykki / framstykki. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Nú er heklað og aukið út eins og útskýrt er í A.4 yfir A.2 og A.5 yfir A.3, heklið svona alls 12-12-11-15-17-20 sinnum á hæðina, þ.e.a.s. heklaðar eru alls 16-16-15-19-21-23 umferðir frá byrjun umferðar. Það eru 268-272-264-316-344-384 stuðlar og 4 loftlykkjur í umferð, lykkjum er skipt upp á milli loftlykkjuboga þannig: 50-50-48-60-64-70 stuðlar fyrir hvora ermi og 84-86-84-98-108-122 stuðlar fyrir bakstykki / framstykki. Nú er heklað og aukið út eins og útskýrt er í A.6 yfir A.4 og A.7 yfir A.5, heklið svona alls 0-1-5-1-1-0 sinnum á hæðina. Það eru alls 268-280-304-324-352-384 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferð, lykkjum er skipt á milli loftlykkjuboga þannig: 50-52-58-62-66-70 stuðlar fyrir hvora ermi og 84-88-94-100-110-122 stuðlar fyrir bakstykki / framstykki. Nú hafa verið heklaðar alls 16-17-20-20-22-24 umferðir frá byrjun á stykki og stykkið mælist ca 18-19-22-22-24-27 cm frá merki fyrir miðju að framan. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul, um hvern loftlykkjuboga eru heklaðir 2 STUÐLAR SAMAN – lesið útskýringu að ofan = 272-284-308-328-356-388 stuðlar. Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul þar til berustykkið mælist 19-20-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er hekluð, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið A.1 yfir 42-44-47-50-55-61 stuðlar (= hálft bakstykki), hoppið yfir 52-54-60-64-68-72 stuðla (= ermi), heklið 6-8-8-12-12-14 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið A.1 yfir 84-88-94-100-110-122 stuðla (= framstykki), hoppið yfir 52-54-60-64-68-72 stuðla (= ermi), heklið 6-8-8-12-12-14 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið A.1 yfir 42-44-47-50-55-61 stuðla (= hálft bakstykki). Nú er fram- og bakstykkið heklað til loka á meðan ermar eru látnar bíða. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-192-204-224-244-272 lykkjur. Heklið A.1 yfir 42-44-47-50-55-61 stuðla, heklið 1 stuðul í hverja af 6-8-8-12-12-14 loftlykkjum, heklið A.1 yfir 84-88-94-100-110-122 stuðla, heklið 1 stuðul í hverja af 6-8-8-12-12-14 loftlykkjum, heklið A.1 yfir 42-44-47-50-55-61 stuðla = 180-192-204-224-244-272 stuðla. Haldið svona áfram fram og til baka þar til peysan mælist ca 47-49-51-52-54-56 cm frá merki mitt að framan. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMAR: Stillið af að byrjað sé frá réttu eða röngu þannig að áferðin sem er á berustykki haldi áfram á ermum. Byrjið í 4-5-5-7-7-8 loftlykkju sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki – munið eftir UPPLÝSINGAR HEKL. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju, heklið 1 stuðul í hvern af 52-54-60-64-68-72 stuðlum sem hoppað var yfir á ermi og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 3-4-4-6-6-7 loftlykkjum undir ermi, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá miðju undir ermi. Snúið stykkinu. Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hverja lykkju eins og áður. Þegar ermin mælist ca 3 cm er fækkað um 1 stuðul hvoru megin við merkiþráðinn – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 stuðlar færri). Fækkið lykkjum svona í ca hverjum 12-11-5-3½-3½-3 cm alls 4-4-7-10-10-12 sinnum = 50-54-54-56-60-62 stuðlar. Heklið þar til ermin mælist ca 47-46-44-44-43-41 cm. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið DROPS Daisy og heklunál 4, festið þráðinn með 1 keðjulykkju í loftlykkju á milli berustykkis og hægri ermi. Heklið 1 loftlykkju, * hoppið yfir 1 loftlykkju frá uppfitjunarkantinum og heklið 1 fastalykkju í næstu loftlykkju, heklið 1 loftlykkju *, heklið frá *-* í kringum allan kant í hálsmáli, endið með 1 keðjulykkju í 1. keðjulykkju. Klippið og festið þráðinn. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #caramelapplesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.