Marta skrifaði:
Dzień dobry. Robię rozmiar 4 dla 48 oczek. W pięciu jest napisane przy przerobić 2 oczka dzersejem, 26 oczek ściągaczem i 22 oczka dzersejem na piętę - to nam daje w sumie 50 oczek.
06.06.2025 - 10:50DROPS Design svaraði:
Witaj Marto, te 2 pierwsze oczka dżersejem prawym należą do pięty. Czyli masz 26 o. ściągaczem na wierzch stopy i 22 o. dżersejem na piętę = razem 48 o. Pozdrawiamy!
06.06.2025 - 11:18
Anne Gro Edvardsen skrifaði:
Hei. Jeg strikker str 29-31 og spør om dere kan se på dette, jeg får det ikke til å stemme: Sett 1 merke i hver side på sokken slik at det blir 16-16-18-20-20-22-24 masker oppå foten og 16-18-20-20-22-24-26 masker under foten»\r\nJeg har 22 m oppå foten og 16 under.\r\nMvh Anne Gro Edvardsen
24.05.2025 - 19:48
Ester skrifaði:
Það er talað um sokkaprjon 3mm í uppskriftinni á Íslensku en á að vera 3,5mm :) Kveðja
20.02.2025 - 13:51
Beatrice skrifaði:
Can I knit socks on two needles
12.02.2025 - 10:02DROPS Design svaraði:
Dear Beatrice, we have some patterns for socks worked back and forth on straight needles but not for kids - find them here. Happy knitting!
12.02.2025 - 13:13
Anonym skrifaði:
Hva mens med at det står Legg opp 40-44-44-48-48-52-60 masker på settpinner 3,5 med DROPS Fiesta. Strikk vrangbord rundt (= 2 rett / 2 vrang) i 8-9-11-13-15-16-17 cm. Er det hvor mange masker man skal ha på hver pinne? Det hadde vært greit om dere pratet i videoene, og viste mye saktere
10.11.2024 - 20:34DROPS Design svaraði:
Hei, Når det er en serie med tall, som f.eks 40-44-44-48-52-60, er hvert tall for en bestemt størrelse (første tall er for størrelse 24/25, andre tall for størrelse 26/28, osv), Så hvis du strikker størrelse 24/25, legger du opp 40 masker og strikker vrangbord i 8 cm. Håper dette hjelper og god fornøyelse!
11.11.2024 - 11:57
Gudrun Maria Gudmundsdottir skrifaði:
Needle size 3,5 but then in patter you say cast on xx stitches on needle size 3. It should be needles size 3,5 right?
16.10.2024 - 15:47DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Gudmundsdottir, thanks for noticing, you should work with needle size 3.5 mm, pattern has been now fixed. Happy knitting!
17.10.2024 - 09:01
Lily Leaper Socks#lilyleapersocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir stuttir sokkar fyrir börn í stroffprjóni úr DROPS Fiesta. Stærð 24 - 43.
DROPS Children 48-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-8-7-7-6-6-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-8-7-7-6-6-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-7-6-6-5-5-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-7-6-6-5-5-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 8-8-10-10-12-12-14 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið 3 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið er staðsett á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi niður að tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 40-44-44-48-48-52-60 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með DROPS Fiesta. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 8-9-11-13-15-16-17 cm. Nú er prjónað sléttprjón og stroffprjón frá byrjun umferðar þannig: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= tilheyrir hæl), prjónið stroffprjón eins og áður (byrjar með 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 22-22-22-26-26-30-30 lykkjur (endar með 2 lykkjur brugðið), prjónið sléttprjón út umferðina. Prjónið svona þar til stykkið mælist 9-10-12-14-16-17-18 cm. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Nú er prjónaður hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 22-22-22-26-26-30-30 lykkjur og setjið þær á þráð (miðja ofan á fæti) og prjónið út umferðina í sléttprjóni = 18-22-22-22-22-22-30 lykkjur fyrir hæl. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni yfir hællykkjurnar í 5-5-5½-5½-6-6-6½ cm. Setjið 1 merki mitt í síðustu umferð – síðar á að mæla stykkið frá þessu merki. Prjónið HÆLÚRTAKA – lesið útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 8-8-10-10-12-12-14 hællykkjur, prjónið upp 11-11-12-12-13-13-14 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón yfir 22-22-22-26-26-30-30 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 11-11-12-12-13-13-14 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hæl = 52-52-56-60-64-68-72 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 merki hvoru megin við 22-22-22-26-26-30-30 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón undir fæti og stroffprjón eins og áður ofan á fæti jafnframt því sem lykkjum er fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á undan fyrra merki ofan á fæti slétt saman og prjónið fyrstu 2 lykkjur á eftir seinna merki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 6-6-6-6-5-5-5 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 4-3-3-4-6-6-6 sinnum = 32-34-38-40-42-46-50 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 11-13-13½-15-17-18-20 cm frá merki á hæl, mælt undir fæti. Nú er afgangur af stykki prjónað í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 12-14-14½-16-18-19½-21 cm frá merki á hæl, mælt undir fæti. Það eru eftir 3-3-3½-4-4-4½-5 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 merki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 16-16-18-20-20-22-24 lykkjur ofan á fæti og 16-18-20-20-22-24-26 lykkjur undir fæti. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-3-4-4-4-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-3-3-4-4-4-5 sinnum = 8-10-10-8-10-10-10 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjur, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 15-17-18-20-22-24-26 cm frá merki á hæl, mælt undir fæti. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lilyleapersocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 48-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.