Natalia skrifaði:
Czym się różni ten szaliczek od Winter Crossover Scarf? Czy tylko tym, że w tym wzorze oczka są dodawane co 10 rzędów a w tym drugim co 8?
01.11.2024 - 09:44DROPS Design svaraði:
Witaj Natalio, ten szaliczek jest dłuższy, jest z innej włóczki i tak jak piszesz - w innej częstotliwości są w nim dodawane oczka. Pozdrawiamy!
01.11.2024 - 09:57
Titine skrifaði:
Bonjour, Je ne vois pas les explications du point dentelle. Pouvez-vous me dire ou chercher s'il vous plait ? Merci ! :)
16.10.2024 - 16:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Titine, suivez les indications des rangs 1 à 4 pour obtenir la bordure picot d'un côté du châle - cf aussi cette vidéo. Bon tricot!
16.10.2024 - 16:22
Katharina skrifaði:
Ich würde gerne wissen, ob 50g Alpaca auch reichen würden. Die Lauflänge von Alpaca ist ja kürzer als die vom Originalgarn. Danke
26.09.2024 - 20:52DROPS Design svaraði:
Liebe Katharina, das können wir aber leider nicht bestätigen, wie gesagt ist die Lauflänge von Flora länger als die von Alpaca. Viel Spaß beim Stricken!
27.09.2024 - 08:48
Hanne Nørgaard skrifaði:
Gentag udtagningen på hver 10.pind som strikkes, der tages ud før mærketråden så der bliver flere og flere masker i retstrik Hvordan kan man tage ud på pind nr 1 og samtidig tage ud på hver 10 pind...da 4 jo ikke går op i 10?
19.09.2024 - 20:43DROPS Design svaraði:
Hei Hanne. Økningen som gjøres ved hver 3. pinne (etter merketråden) lager et hullmønster, som gjentas hele sjalet, mens økningene på hver 10. pinne (før merketråden) strikkes vridd rett på neste pinne (skal ikke bli hull) er en generell økning. mvh DROPS Design
23.09.2024 - 11:49
Moc Thuy VU skrifaði:
Pourriez vous me montrer comment je dois tricoter les mailles lisières de ce modèle. mes sincères remerciements
01.09.2024 - 21:28DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vu, dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter des mailles lisières I-cord de chaque côté, pour le châle, tricotez ces mailles ainsi en début de rang sur l'endroit et en fin de rang sur l'envers (de l'autre côté, on va tricoter la bordure picot). Bon tricot!
02.09.2024 - 09:22
Fern Valley Scarf#fernvalleyscarf |
|
![]() |
![]() |
Prjónað lítið sjal úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað frá hlið í garðaprjóni og picotkanti.
DROPS 253-33 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR: Í byrjun hverrar umferðar eru prjónaðar 2 kantlykkjur þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Í lok hverrar umferðar eru prjónaðar 2 kantlykkjur þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Endurtakið þetta í byrjun og í lok hverrar umferðar bæði frá réttu og röngu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, frá hlið að hlið í garðaprjóni með gatamynstri meðfram kanti. SJAL: Fitjið upp 8 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Flora. Lesið KANTLYKKJUR og GARÐAPRJÓN í útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 kantlykkjur, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, setjið einn merkiþráð hér (látið merkiþráðinn halda áfram upp úr innan við ystu 4 lykkjur í vinstri hlið séð frá réttu) og prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og prjónið 2 kantlykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 kantlykkjur, prjónið slétt fram að merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 2 sinnum uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur í hvora af síðustu 2 lykkjum í umferð (prjónið í fremri og aftari lið á lykkjum). Það eru 5 lykkjur og 2 uppslættir á eftir merkiþræði. UMFERÐ 4 (= ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 1 lykkju slétt, steypið öftustu lykkjunni á hægri prjóni yfir fremri lykkjuna (2 lykkjur færri), prjónið 1 lykkju slétt, sleppið niður öðrum uppslættinum, prjónið hinn uppsláttinn slétt, prjónið 1 lykkju slétt (merkiþráðurinn situr hér), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið 2 kantlykkjur. Prjónið eins og umferð 1 til 4 einu sinni til viðbótar. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram að prjóna eins og umferð 1 til 4 jafnframt því sem í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan merkiþræði. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – það á ekki að myndast gat. Endurtakið útaukningu í 11. hverri umferð sem er prjónuð, aukið er út á undan merkiþræði þannig að það verða fleiri og fleiri lykkjur í garðaprjóni. Prjónið og aukið út svona þar til stykkið mælist ca 50 cm á lengd, það eru ca 31 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 13 cm mælt á breiddina. Prjónið 16 umferðir í mynstri eins og áður án útaukninga. Haldið áfram að prjóna eins og umferð 1 til 4 jafnframt því sem í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju – fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman á undan merkiþræði frá réttu. Endurtakið úrtöku í 11. hverri umferð sem er prjónuð, þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð. Prjónið 8 umferð mynstur eins og áður án úrtöku og fellið af. Stykkið mælist ca 103 cm. Klippið og festið þráðinn. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fernvalleyscarf eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 253-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.