Lucir skrifaði:
Bonjour, Est-ce que quand on fait le dos, on rajoute aussi deux petites bretelles ou ce sont les bretelles du devant qui compte? Merci
30.03.2025 - 09:39DROPS Design svaraði:
Bonjour Lucir, le devant et le dos sont identiques, autrement dit, les bretelles se font de la même façon pour le dos que pour le devant. Bon crochet!
31.03.2025 - 08:56
Danièle Tancrez skrifaði:
Bonjour merci pour ce très beau modèle. J ai une question.. Quand on rejoint les deux bretelles par les mailles faut il faire un rang de brides avant de commencer A3 ? Merci
19.11.2024 - 14:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Trancrez, au 1er rang, vous allez crocheter les bretelles comme avant et la chaînette de l'encolure entre les 2 (les 43 à 63 mailles en l'air entre les 2 bretelles), vous commencez à crocheter A.3 au rang suivant = sur l'envers (commencez par le 2ème rang du diagramme). Bon crochet!
19.11.2024 - 16:07
Linda skrifaði:
Hej. Når stropperne skal hækles sammen til forstykket, står der, at der skal hækles 65 masker over venstre strop. Menes der stangmasker? På forhånd tak for svar. Hilsen Linda
01.08.2024 - 21:28DROPS Design svaraði:
Hej Linda, maskerne du hækler over selve stroppen, skal hækles som du har hæklet hele stroppen, så er det at du hækler alle de luftmasker som skal være imellem stropperne :)
06.08.2024 - 13:35
Petra skrifaði:
Hallo, ist es richtig, dass die Träger tatsächlich nur eine Länge von 6 cm bei Größe XXL haben sollen? Das kommt mir recht kurz vor.
29.07.2024 - 21:40DROPS Design svaraði:
Liebe Petra, die Träger werden ja insgesamt ca 7 cm (siehe Maßskizze), so 6 cm wenn man die Träger separat häkelt dann die 1. Reihe mit beiden Träger + Halsausschnitt. Viel Spaß beim Häkeln!
30.07.2024 - 08:39
Mette skrifaði:
3 staver i samme stav, er det vifte da det menes, eller skal det da felles til 1 stav
23.07.2024 - 16:13
Anto skrifaði:
Ciao per quanto riguarda la 5 riga viene descritto di lavorate per 14 volte il diagramma A.4A ed il restante? In quanto facendo così non completo la riga Grazie per la vostra attenzione
17.07.2024 - 23:46DROPS Design svaraði:
Buongiorno Anto, ha seguito la lavorazione del resto della riga come indicato seguendo gli altri diagrammi? Buon lavoro!
18.07.2024 - 07:54
Carina skrifaði:
Ich verstehe die 5. Reihe leider nicht wirklich? Muss ich A.4A bis zum Ende der Reihe häkeln?
09.07.2024 - 16:52DROPS Design svaraði:
Liebe Carina, in der Anleitung ist genannt, wie oft Sie A.4A häkeln (die Reihe beginnt mit A.2 und ggf. 1 Stb, je nach Größe): A.4A insgesamt 14-15-16-18-20-22 x häkeln, danach häkeln Sie A.4B, dann ggf. 1 Stäbchen und beenden die Reihe mit A.3. Viel Spaß beim Weiterhäkeln!
28.07.2024 - 11:17
Else Bingen Sande skrifaði:
Hva menes med Bol? Hvilken del av plagget er det?
02.07.2024 - 11:30DROPS Design svaraði:
Hej Else, det er for og bagstykke når du har sat arbejdet sammen som kaldes bol :)
02.07.2024 - 14:16
Mandy Finch skrifaði:
Hello, I agree with Heather...the very first row of each side front and back is not counted..the increases start at row 2 and for my size (5th) you do 16 rows total increases. This makes a total of 17 rows therefore you end on row 17 which is a right side row. The next row would be a wrong side row. Could you advise please?
24.06.2024 - 13:00
Heather H skrifaði:
Hi me again. Thanks my issue isn’t with the numbers it’s the fact that the right side that you distinguish at the beginning changes to the wrong side with this count. You state the diagram is to be done on right side but when done working all those increases it is actually the wrong so so my question was does it change or reverse….
07.06.2024 - 12:40DROPS Design svaraði:
Dear Heather, after all increases have been worked (even numbered of rows) the next row should be worked from RS as you increase 1 stitch on each side 9-10-9-10-12-10 times in total + 2 stitches on each side 1-2-3-4-4-6 times = a total of 10-12-12-14-16-16 rows , starting from RS, the last row will be a row worked from WS) so that the row 1 with A.4 should be a row worked from RS. Happy crocheting!
07.06.2024 - 16:01
Moonstone Meadow#moonstonemeadowtop |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Heklaður toppur / bolur úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með stuðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-22 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð þegar heklað er band á öxl / hlýri, framstykki og bakstykki, heklið 4 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul í umferð. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum þegar heklað er í hring, heklið 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. ATH: Þegar heklað er í hring, snúið stykkinu eftir hverja umferð, þannig að heklað er til skiptist frá réttu og röngu. Þetta er gert til að áferðin verði eins einnig þegar heklað er í hring. MYNSTUR: Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Munið eftir að mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu. Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.1). AUKIÐ ÚT UM 1 STUÐUL: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í 5. lykkju inn frá hlið. AUKIÐ ÚT UM 2 STUÐLA: Aukið út um 2 stuðla með því að hekla 2 stuðla í 5. og 6. lykkju inn frá hlið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Fyrsta eru hekluð 2 laus bönd á öxl / hlýrar fram og til baka, síðan eru heklaðar nýjar lykkjur á milli banda á öxl / hlýra á framstykki. Framstykkið er síðan heklað fram og til baka niður að handvegi jafnframt því sem aukið er út fyrir handvegi í hvorri hlið. Bakstykkið er heklað á sama hátt. Við handveg er framstykkið og bakstykkið sett saman og fram- og bakstykkið er heklað í hring að loka máli. Í lokin eru bönd á öxl / hlýrar saumað saman. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. VINSTRA BAND Á ÖXL / HLÝRI AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 14-14-18-18-20-20 loftlykkjur – lesið LOFTLYKKJA að ofan, með heklunál 3 með DROPS Safran. Snúið og heklið fyrstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 5. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 11-11-15-15-17-17 stuðlar (= 10-10-14-14-16-16 stuðlar + 4 loftlykkjur). Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. heklið A.1 fram og til baka þar til band á öxl / hlýri mælist 7-6-7-7-6-7 cm og síðasta umferð hefur verið hekluð frá röngu. Klippið þráðinn og heklið hægra band á öxl / hlýra eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA BAND Á ÖXL / HLÝRI AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Heklið 14-14-18-18-20-20 loftlykkjur með heklunál 3. Snúið og heklið fyrstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 5. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 11-11-15-15-17-17 stuðlar (= 10-10-14-14-16-16 stuðlar + 4 loftlykkjur). Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið A.1 fram og til baka þar til band á öxl / hlýri mælist 7-6-7-7-6-7 cm og síðasta umferð hefur verið hekluð frá röngu. Nú á að hekla hægra og vinstra band á öxl / hlýra saman við framstykki eins og útskýrt er að neðan (ekki klippa þráðinn). FRAMSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið frá réttu eins og áður yfir hægra band á öxl / hlýra, heklið 43-47-45-51-55-63 loftlykkjur, heklið frá réttu eins og áður yfir vinstra band á öxl / hlýra = 65-69-75-81-89-97 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.3 (byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu) og AUKIÐ ÚT UM 1 STUÐUL – lesið útskýringu að ofan, heklið 1 stuðul í hverja lykkju þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, heklið A.2 (byrjið á 2. umferð í mynsturteikningu) og AUKIÐ ÚT UM 1 STUÐUL = 67-71-77-83-91-99 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið A.2 og aukið út 1 stuðul, heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, heklið A.3 og aukið út um 1 stuðul = 69-73-79-85-93-101 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Heklið A.3 og aukið út um 1 stuðul, heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 6 lykkjur eru eftir, heklið A.2 og aukið út um 1 stuðul = 71-75-81-87-95-103 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 5 (= rétta): Heklið A.2 og aukið út um 1 stuðul, heklið 1 stuðul í hverja af 0-0-1-0-0-0 lykkjum, heklið fyrstu umferð í A.4A alls 14-15-16-18-20-22 sinnum, heklið fyrstu umferð í A.4B, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 0-0-1-0-0-0 lykkjum, heklið A.3 og aukið út um 1 stuðul, snúið stykkinu = 73-77-83-89-97-105 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Heklið A.3 og aukið út um 1 stuðul, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-5-2-5-3-1 lykkjur, heklið A.5B alls 4-4-5-5-6-7 sinnum, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-5-2-5-3-1 lykkjum, heklið A.2 og aukið út um 1 stuðul = 75-79-85-91-99-107 lykkjur. Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul og A.2/A.3 yst í hvora hlið. Haldið áfram að auka út um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð fyrir handveg eins og áður, 4-5-4-5-7-5 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. það er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið alls 9-10-9-10-12-10 sinnum ásamt útaukningu eins og útskýrt er að ofan), síðan er AUKIÐ ÚT UM 2 STUÐLA í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan, alls 1-2-3-4-4-6 sinnum = 87-97-105-117-129-141 lykkjur. Heklið síðan síðustu 2 umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið A.2 og aukið út um 2 stuðla, heklið 1 stuðul í næstu 0-1-1-1-1-1 stuðla, heklið A.4A alls 18-20-22-25-28-31 sinnum, heklið A.4B, heklið 1 stuðul í næstu 0-1-1-1-1-1 stuðla, heklið A.3 yfir síðustu 6 lykkjur og aukið út um 2 stuðla, snúið stykkinu = 91-101-109-121-133-145 lykkjur. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið A.3 og aukið út um 2 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 2-3-3-3-3-3 stuðlum, heklið A.4B, heklið A.4A alls 18-20-22-25-28-31 sinnum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 6 lykkjur eru eftir, heklið A.2 yfir síðustu 6 lykkjur og aukið út um 2 stuðla = 95-105-113-125-137-149 lykkjur. Klippið og festið þráðinn. Stykkið mælist ca 17-18-19-20-21-22 cm frá loftlykkjuröðinni á bandi á öxl / hlýra. Klippið, festið þráðinn og heklið bakstykkið. BAKSTYKKI: Heklið á sama hátt og framstykki (framstykkið og bakstykkið er alveg eins). Nú eru stykkin sett saman og fram- og bakstykkið er heklað í hring eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: UMFERÐ 1: Byrjið á að hekla 3-3-4-4-5-6 loftlykkjur, heklið síðan 1 stuðul í hverja af 95-105-113-125-137-149 lykkjum frá bakstykki (heklið frá röngu), heklið 6-6-8-8-10-12 loftlykkjur fyrir handveg, heklið 1 stuðul í hverja af 95-105-113-125-137-149 lykkjur frá framstykki (heklið frá röngu), heklið 3-3-4-4-5-6 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar = 202-222-242-266-294-322 lykkjur. Byrjun umferðar = í hlið á fram- og bakstykki, snúið stykkinu. UMFERÐ 2: Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 1 stuðul í hverja lykkju umferðina hringinn = 202-222-242-266-294-322 stuðlar, snúið stykkið. Heklið UMFERÐ 2 þar til heklaðar hafa verið alls 6-6-6-8-8-8 umferðir með stuðlum á fram- og bakstykki og aukið jafnframt út 3 stuðla jafnt yfir í fyrstu umferð = 205-225-245-269-297-325 stuðlar. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli), heklið A.4A alls 51-56-61-67-74-81 sinnum hringinn á fram- og bakstykki, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar, snúið stykkinu. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið 6-6-6-8-8-8 umferðir með stuðlum eins og áður. Heklið síðan A.4A aftur yfir næstu 2 umferðir. Haldið svona áfram með til skiptis 6-6-6-8-8-8 umferðir stuðlar og 2 umferðir með A.4A þar til A.4A hefur verið heklað alls 3 sinnum á hæðina á fram- og bakstykki. Þegar A.4A hefur verið heklað til loka í síðasta skipti, haldið áfram hringinn með stuðlum eins og áður að loka máli JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 7 stuðla jafnt yfir í öllum stærðum = 212-232-252-276-304-332 lykkjur. Heklið þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá loftlykkjuröð á bandi á öxl / hlýra (ca 25-26-27-28-29-30 cm frá þar sem framstykki og bakstykki var sett saman fyrir fram- og bakstykki). Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Saumið saman band á öxl / hlýra. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moonstonemeadowtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.