LOUIS CATHERINE skrifaði:
Combien de pelotes pour ce modèle jambières
03.12.2024 - 17:30
LOUIS CATHERINE skrifaði:
Combien de pelotes pour ce modèle jambières
03.12.2024 - 16:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Louis, vous trouverez la quantité en haut de page, pour chaque taille quand il y en a plusieurs, sous l'onglet "Explications"; autrement dit, il faut ici (taille unique) 300 g DROPS Karisma/50 g la pelote = 6 pelotes Karisma. Bon tricot!
04.12.2024 - 06:54
Torill Hartveit skrifaði:
Jeg forstår ikke hvordan jeg skal strikke M1
04.11.2024 - 19:39DROPS Design svaraði:
Hej Torill, du starter nederst i diagrammet, strikker snoningen på første pind ifølge diagramteksten. Du har en video som viser hvordan du gør :)
05.11.2024 - 08:18
Sara skrifaði:
" ... Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 9 cm. Nú er fækkað um 1 lykkju – lesið ÚRTAKA! Hvoru megin við 34 lykkjur á milli merkiþráða í 2. hverjum cm alls 21 sinnum = 56 lykkjur. " Er verið að tala um í 2. hverri umferð, en ekki cm? Þannig að ég fer úr því að vera með 64 lykkjur á prjóni (34 mynsturlykkjur ekki taldar með)... yfir í 56 lykkjur = Þ.e.a.s. lykkjur fækka um 8L alls 21 sinnum í 2 hverri umferð?
31.07.2024 - 18:54DROPS Design svaraði:
Blessuð Sara. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 9 cm. Nú er fækkað um 1 lykkju – lesið ÚRTAKA! -hvoru megin við 34 lykkjur á milli merkiþráða í með 2 cm millibili alls 21 sinnum = 56 lykkjur. Gangi þér vel.
31.07.2024 - 21:22
Mindfulness Socks#mindfulnesssocks |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðir yoga sokkar / legghlífar með köðlum úr DROPS Karisma.
DROPS 114-38 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á eftir merkiþræði þannig: 2 lykkjur snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri). Fækkið lykkjum á undan merkiþræði þannig: 2 lykkjur slétt saman. LEIÐBEININGAR: Prjónið upp 1 lykkju í fyrstu lykkju sem var felld af, í næstu umferð er þessi lykkja prjónuð saman með lykkjunni á undan. Þetta er gert til að lykkjan á milli affellingar – og uppfitjunarkant teygist ekki. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hægt er að prjóna sokkana (með hæl) eða eins og legghlífar (án hæls). STROFF – LEGGUR: Fitjið upp 100 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 28 lykkjur. Prjónið áfram stroff þannig: * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Þegar stroffið mælist 6 cm er næsta umferð prjónuð þannig: 3 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt í hvora af næstu 2 lykkjum (þ.e.a.s. aukið er út um 2 lykkjur), 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt í hvora af næstu 2 lykkjum, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt í hvora af næstu 2 lykkjum, 3 lykkjur brugðið (merkiþráðurinn er staðsettur á eftir þessari lykkju), prjónið áfram í sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru JAFNFRAMT er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir (nú hefur verið aukið út um 6 lykkjur á milli merkiþráða = 34 lykkjur og 8 lykkjum fækkað að framan = 98 lykkjur alls á prjóni). Næsta umferð er prjónuð þannig: 3 lykkjur brugðið, M.1 (= 4 lykkjur), 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, M.1, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, M.1, 3 lykkjur brugðið og 64 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 9 cm. Nú er fækkað um 1 lykkju – lesið ÚRTAKA! -hvoru megin við 34 lykkjur á milli merkiþráða í með 2 cm millibili alls 21 sinnum = 56 lykkjur. Haldið áfram með mynstur yfir 34 lykkjur á milli merkiþráða og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist 53 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur brugðið og 22 lykkjur sléttprjón. Nú hefur verið fækkað um 6 lykkjur á milli merkiþráða (= 28 lykkjur) = 50 lykkjur alls á prjóni. Prjónið áfram í stroffprjóni yfir allar lykkjur þannig: * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-*. Haldið svona áfram þar til prjónað hefur verið 3 cm stroffprjón. LEGGHLÍFAR: Nú eru allar lykkjur felldar af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. YOGA SOKKAR: Nú eru felldar af fyrstu 28 lykkjur í umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið næstu 22 lykkjur með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og fitjið síðan upp nýjar 28 lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Lesið LEIÐBEININGAR! Setjið 1 merkiþráð, stykkið er nú mælt héðan. Haldið áfram hringinn í stroffprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist ca 12 cm (eða að óskuðu máli) frá merkiþræði eru allar lykkjur felldar af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mindfulnesssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 114-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.