Daphné skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas comment se tricote le rang envers de A .4. Faut-il lite le diagramme de gauche à droite ? Où met-on les 2 mailles jersey ? Merci de m'aider.
05.02.2025 - 16:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Daphné, sur l'endroit, on tricote 3-4 fois A.4 et on termine par 2 m jersey, autrement dit, on va tricoter (2 m end, 2 m env, 1 m end, 2 m env, 1 m end, 2 m env)x3 ou 4 et 2 m end. Sur l'envers, on tricote les mailles comme elles se présentent (comme dans A.4, en lisant de gauche à droite): 2 m env, puis (2 m end, 1 m env, 2 m end, 1 m env, 2 m end, 2 m env) x 3ou 4. Bon tricot!
06.02.2025 - 09:07
Betty Dooper skrifaði:
Graag een sokken patroon breien met 4 naalden
31.10.2024 - 12:56DROPS Design svaraði:
Dag Betty Dooper,
Je kunt vrijwel alle sokkenpatronen ook met 4 naalden breien in plaats van met rondbreinaalden. Ook dit patroon, wordt met sokkenbreinaalden gebreid.
31.10.2024 - 19:55
Anne Enebakk skrifaði:
Nydelig mønster og farge. Hælen ser veldig spennende ut. Kant til bretting evt litt lang?
13.01.2024 - 09:37
Frosted Links#frostedlinkssocks |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðir sokkar með köðlum úr DROPS Karisma eða DROPS Fiesta. Stærð 35 - 43.
DROPS 244-39 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 12-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA (á við úrtöku fyrir tá): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi / legg niður að tá. STROFF – LEGGUR: Fitjið upp 60-60-70 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Karisma eða DROPS Fiesta. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (mitt að aftan). Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur í 8 cm (uppábrot efst). Síðan er prjónað A.2 hringinn yfir allar lykkjur (stroffið er núna prjónað gagnstætt) í 2 cm = alls 10 cm stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið A.3 hringinn yfir allar lykkjur. Haldið áfram með A.3 þar til stykkið mælist 24-25-26 cm frá uppfitjunarkanti – endið þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir á eftir umferð með snúningi á kaðli. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Haldið eftir fyrstu 18-18-18 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 28 lykkjur á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 14-14-24 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 32-32-42 hællykkjur á prjóni. Prjónið fyrstu umferð yfir hællykkjur frá réttu þannig: Prjónið A.4 alls 3-3-4 sinnum og endið með 2 lykkjur í sléttprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Í næstu umferð er fækkað um 8-6-12 lykkjur jafnt yfir = 24-26-30 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – síðar á að mæla stykkið frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA – lesið útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 12-14-16 hællykkjur, prjónið upp 13-13-14 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið mynstur eins og áður yfir 28 lykkjur frá þræði ofan á fæti og prjónið upp 13-13-14 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hæl = 66-68-72 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 28 lykkjur ofan á fæti. Haldið áfram með A.5 yfir 28 lykkjur ofan á fæti og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru undir fæti – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti (á undan A.5) slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti (á eftir A.5) snúið slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 5-4-3 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 48-52-58 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 17-18-19 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti – endið þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir á eftir umferð með snúningi í kaðli. Nú eru eftir ca 5-6-7 cm að loka máli e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. Í næstu umferð er fækkað um 6 lykkjur í A.5 með því að prjóna lykkjurnar í hverjum kaðli slétt saman 2 og 2 = 42-46-52 lykkjur. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 22-26-26 lykkjur ofan á fæti og 20-20-26 lykkjur undir fæti. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar 1 cm hefur verið prjónaður í sléttprjóni (3 umferðir), fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚRTAKA (4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-6-7 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4-3-4 sinnum = 10-10-8 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 5-5-4 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostedlinkssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.