Julia skrifaði:
Hello! I'm going to crochet design DROPS 242-39 (both - hat and scarf). Could you please send me a chart and detailed instruction of this design? Thank you so much for your help. Best regards, Julia
19.01.2024 - 19:41DROPS Design svaraði:
Dear Julia, we only have written pattern to the set, both hat and scarf. Should you have any question, please feel free to use this section so that one of our expert team can try to help you. Happy crocheting!
22.01.2024 - 07:52
Britt skrifaði:
Fargekodene og navn stemmer ikke med navn og fargekoder i garnbutikkene. For eksempel Alpaca uni 6309 jeansblå finnes ikke i butikkene, der er det en uni 6309 turkis-grå som ikke ligner. Dette gjelder alle fargene i oppskriften. Regner med at jeg har gjort noe feil her, hvordan går jeg fram for å skaffe riktige farger?
09.10.2023 - 13:06DROPS Design svaraði:
Hej Britt, Jo de stemmer, her ser du farvekortet i DROPS Alpaca: DROPS Alpaca
17.10.2023 - 12:07
Chris skrifaði:
Agree. Pls. add more crochet patterns.
06.08.2023 - 10:08
Vanilla skrifaði:
Woods fairytales
04.08.2023 - 17:42
MT skrifaði:
Agreed. All my votes went to almost all the crocheted items. There needs to be more variety in crocheted garments
04.08.2023 - 06:24
Mí skrifaði:
Lovely combo. But there are not enough crochet patterns to chode from and vote for. 🙁
03.08.2023 - 17:14
Cottage Garden Set#cottagegardenset |
|
![]() |
![]() |
Hekluð húfa og hálsklútur úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Húfan er hekluð í hring, ofan frá og niður. Hálsklúturinn er heklaður fram og til baka með röndum.
DROPS 242-39 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um húfu): Það er heklað í hring í spíral án þess að enda umferðina (til að koma í veg fyrir sýnilega skiptingu í stykkinu), setjið 1 prjónamerki eða merkiþráð í byrjun umferðar til að auðveldara sé að sjá hvar umferðin byrjar. Í 2. umferð eru 2 fyrstu stuðlarnir heklaðir í 3. loftlykkju (1. stuðull) frá byrjun á 1. umferð, heklið eins og útskýrt er í uppskrift þar til heklað hefur verið í alla stuðla frá 1. umferð. Umferðin endar ekki, heldur er 1. stuðull í byrjun á næstu umferð heklaður í 1. stuðul frá fyrri umferð. Í síðustu umferð er heklað þannig til að koma í veg fyrir hak í skiptingunni: Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir, heklið 1 hálfan stuðul í næsta stuðul, heklið 1 fastalykkju í síðasta stuðul og endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. stuðul í byrjun á umferð. ÚTAUKNING (á við um húfu): Aukið er út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul. RENDUR (á við um hálsklút): Heklið með 2 þráðum DROPS Alpaca. Litur 618, nougat er notaður í gegnum allt stykkið, hinum litunum er einungis skipt út til að mynda rendur. RÖND 1: Heklið 5 cm með litnum 4010, ljós lavender. RÖND 2: Heklið 12 cm með litnum 6309, gallabuxnablár. RÖND 3: Heklið 5 cm með litnum 7139, vatnsblár. RÖND 4: Heklið 12 cm með litnum 4010, ljós lavender. RÖND 5: Heklið 5 cm með litnum 6309, gallabuxnablár. RÖND 6: Heklið 12 cm með litnum 7139, vatnsblár. Síðan eru rendurnar endurteknar áfram að loknu máli. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um hálsklút): Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður í 2 þráðum DROPS Alpaca. HÚFA: Notið heklunál 3,5 og 1 þráð í litnum ljós lavender og 1 þráð í litnum nougat (2 þræðir). Heklið 4 loftlykkjur – lesið LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan. Tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur (koma í stað 1. stuðul), heklið 10 stuðla um hringinn, heklið 1 stuðul um 3 loftlykkjur í byrjun á umferð = 12 stuðlar. UMFERÐ 2: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 3: * 1 stuðull í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* = 36 stuðlar. UMFERÐ 4: * 1 stuðull í hvorn af 2 fyrstu stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, heklið frá *-* = 48 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 5-7: Haldið áfram með útaukningu á sama hátt, þ.e.a.s. aukið er út um 12 stuðla í hverri umferð – aukið út á sama stað og í fyrri umferð, þ.e.a.s. það verður 1 stuðull fleiri á milli hverra útaukninga í hverri umferð = 84 stuðlar. UMFERÐ 8: Heklið 1 umferð með stuðlum JAFNFRAMT er aukið út um 4-8-10 stuðla jafnt yfir í umferð – lesið ÚTAUKNING = 88-92-94 stuðlar. Stykkið mælist ca 9 cm. Heklið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 30-30-32 cm ofan frá ( munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR þegar á að hekla síðustu umferðina). Klippið þræðina frá og festið. Brjótið uppá neðri kantinn á húfunni ca 7 cm að réttu. HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. HÁLSKLÚTUR: Allt stykkið er heklað í 2 þráðum DROPS Alpaca og í röndum – lesið RENDUR að ofan. Heklið 28 LOFTLYKKJA – lesið útskýringu að ofan, með litnum nougat og litnum ljós lavender með heklunál 4,5. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* 3 sinnum til viðbótar = 22 stuðlar. Heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram fram og til baka í röndum þar til stykkið mælist ca 170 cm. Klippið þræðina og festið. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cottagegardenset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 242-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.