Ivy skrifaði:
Good afternoon, I'm looking at the instructions to decrease for the heel and I'm a bit confused. After passing the stitch over a knitted stitch, do I knit until the end of the row, repeating the passing until the last stitch, or do I turn the project to the wrong side and repeat? I'm a bit lost in this and I'd appreciate your answer. Thanks
15.08.2024 - 12:36DROPS Design svaraði:
Hi Ivy, After passing the stitch over the knitted stitch, you turn straight away and work back until you have the same number of stitches left at the other end of the row, then pass the stitch over the knitted stitch. Turn and work until you have 1 stitch less left on the row than last time, pass stitch over knitted stitch, turn and repeat after working back. Continue like this. Happy crafting!
16.08.2024 - 06:33
Sirpa Talman Hoikka skrifaði:
Angående skaftet, jag får inte till varvet med stickor nr 3. Där står 2 räta maskor i hop och sedan 12 räta maskor (=14 maskor föregående varv) och nästa maska är nr 15, eller nr 1 av 33 i resårstickning som enligt mönstret ska vara avig men är en rät. Borde inte resårstickningen från början vara 1 avig, 1 rät istället för 1 rät, 1 avig som det står i mönstret?
16.11.2023 - 10:28DROPS Design svaraði:
Hej Sirpa, det betyder ikke noget om du starter resåren med ret eller avig, det som er vigtigt er at du følger mønsteret som du lavede de 3 første cm :)
17.11.2023 - 11:25
Ute skrifaði:
Bei dem Schaft komme ich auf 66 Maschen, nicht wie in der Anleitung beschrieben 67 Maschen, wenn ich die ersten beiden Maschen der ersten Runde abnehme
29.05.2023 - 18:49DROPS Design svaraði:
Liebe Ute, es wird nur 1 Masche am Anfang der Runde abgenommen: 2 M rechts zusammen, 14 Maschen rechts, 37 Maschen Bündchen, 15 Maschen rechts = 1+14+37+15= 67 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
30.05.2023 - 11:47
Johanne skrifaði:
Elegancesok
22.01.2023 - 12:36
Gabriele skrifaði:
Die Socken möchte ich stricken!
17.01.2023 - 20:23
Eisha skrifaði:
Pampas white
17.01.2023 - 18:22
Suzie-p skrifaði:
Nordic anklet
17.01.2023 - 13:15
Tennis Anyone#tennisanyonesocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar / ökklasokkar úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni. Stærð 35 - 43.
DROPS 238-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-16-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA (á við um tá): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi og niður að tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið laust upp 60-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Nord. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Í næstu umferð er prjónað þannig: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman, prjónið 12-13-14 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með stroffprjón yfir næstu 33-35-37 lykkjur (stroffprjón á að halda áfram með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og á að byrja / enda á 1 lykkju brugðið), prjónið sléttprjón yfir síðustu 13-14-15 lykkjur = 59-63-67 lykkjur. Haldið áfram hringinn með 26-28-30 lykkjur sléttprjón að aftan og 33-35-37 lykkjur stroffprjón framan á sokknum þar til stykkið mælist 4 cm frá uppfitjunarkanti. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Setjið 33-35-37 stroffprjónslykkjurnar á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir 26-28-30 sléttprjónslykkjum á prjóni fyrir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 14-16-16 hællykkjur, prjónið upp 15-15-17 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið stroffprjón eins og áður yfir 33-35-37 lykkjur af þræði á fæti og prjónið upp 15-15-17 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum = 77-81-87 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 33-35-37 stroffprjónslykkjur ofan á fæti. Haldið áfram með stroffprjón yfir þessar lykkjur og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru undir fæti. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 6-6-7 sinnum = 57-61-65 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 17-18-19 cm frá prjónamerki á hæl – mælt undir fæti. Í næstu umferð er prjónað sléttprjón jafnframt því sem fækkað er um 5 lykkjur jafnt yfir þær 33-35-37 stroffprjónslykkjurnar mitt á fæti = 52-56-60 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 18-19-20 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Það eru eftir 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-3-2 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tennisanyonesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 238-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.