Van Eyck Brigitte skrifaði:
Je viens d’écrire une question et j’ai oublié d’inscrire la provenance de mon message. Je suis du Québec . Je suis incapable d’imprimer un patron gratuit.
31.01.2025 - 17:11
Van Eyck Brigitte skrifaði:
Bonjour! Pourquoi est-ce que je ne peux pas imprimer aucun modèle gratuit? Y -a-t-il un problème sur votre site?
31.01.2025 - 17:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Van Eyck, il y a peut-être eu un bug passager, mais il semble que les modèles peuvent à nouveau être imprimés. Nous allons regarder ce qui a pu se passer, merci pour l'info. Bon tricot!
03.02.2025 - 08:10
Louise skrifaði:
Bonjour, je tricote avec la laine Fabel comme recommandé, mais même avec des aiguilles 3mm, mon échantillon ne colle vraiment pas (45 de large au lieu de 26). Problème : les mailles ont l'air déjà très lâches. Si j'augmente de taille d'aiguilles, ce ne sera pas beau visuellement (ni solide). D'habitude mes échantillons correspondent. Je n'ai pas trop envie de recalculer tout le patron. Que faire?
30.10.2024 - 09:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Louise, 26 mailles en largeur pour 10 cm en Fabel et toutes les laines du groupe de fils A est une tension relativement classique et souvent utilisée dans nos modèles (retrouvez les par exemple ici. Si vous préférez une tension encore plus serrée, il vous faudra adapter les explications en fonction de votre propre tension. Bon tricot!
30.10.2024 - 13:33
Paula skrifaði:
Guten Tag, Ich habe gerade die Maschen an den Seiten aufgenommen nachdem die Ferse fertig gestrickt worden ist. Jetzt wird einmal vor und einmal nach der Markierung zwei Maschen zusammen gestrickt werden (eine Masche abgenommen). Wie erhält man so vier Abnahmen in einer Runde? das wären dann ja nur zwei. Wie sollen in der darauf folgenden Runde die Maschen abgenommen werden und wo? Das ist das erste Mal, dass ich Socken stricke und bis jetzt hat es sehr gut geklappt. Liebe Grüße :)
05.03.2024 - 22:32DROPS Design svaraði:
Liebe Paula, hier wird es nur 2 Maschen abgenommen: 1 vor der Markierung und 1 nach der Markierung, zuert in jeder Runde 4 Mal dann in jeder 2. Runde 7 oder 8 Mal (siehe Größe). Viel Spaß beim stricken!
06.03.2024 - 08:27
Monika skrifaði:
Guten Tag, trotz gestrickter Maschenprobe und passender Maschenanzahl ist meine Socke zu groß. Leider passiert mir das bei verschiedenen Anleitungen und muss dann die Größe anpassen. Manchmal macht dies nicht so richtig Spaß. Habt ihr eine Idee woran das liegen kann bzw. habt ihr einen Tipp, was ich anders machen sollte. Ich würde mich freuen von euch zu hören. Liebe Grüße
20.04.2023 - 09:39DROPS Design svaraði:
Liebe Monika, wenn Ihre Maschenprobe stimmt, dann soll die Socke ca 22-23-25 cm vor der Fersen und ca 20-22-23 cm nach den Abnahmen (vor der Spitze) messen. Sollte es immer zu groß sein, dann können Sie gerne mal schauen, ob Sie lieber eine kleinere Größe stricken sollen. Viel Spaß beim stricken!
20.04.2023 - 13:30
Walking on the Moon#walkingonthemoonsocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni. Stærð 35 - 43.
DROPS 238-33 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-16-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir tá): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 70-74-78 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Fabel. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 64-68-72 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm, fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir = 60-64-68 lykkjur. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 11-12-13 cm = 56-60-64 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 12-13-14 cm. Prjónið síðan hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 13-14-15 lykkjur og haldið eftir lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 30-32-34 lykkjur á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 13-14-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 26-28-30 hællykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 14-16-16 hællykkjur, prjónið upp 15-15-17 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón yfir 30-32-34 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 15-15-17 lykkjur meðfram hinni hlið á hælnum = 74-78-84 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 30-32-34 lykkjur ofan á fæti. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og fækkið lykkjum í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 4 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 7-7-8 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-20 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Nú eru eftir 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður er lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-3-2 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #walkingonthemoonsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 238-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.