Diane skrifaði:
Goedemiddag, Bedankt voor de reactie. Alhoewel het een makkelijk patroon is ,heb ik er heel wat uurtjes inzitten om het kloppend te krijgen, Had gelukkig een bolletje extra bestelt maar die kan ik inmiddels wel afschrijven door iedere keer weer uithalen en opnieuw beginnen maar dat geeft niks . Het is me inmiddels wel gelukt (YEAH) maar wel door jullie hulp!...Ik zag het gewoon niet! Bedankt.
06.04.2023 - 16:06
Diane skrifaði:
Goedenavond ik snap het gewoon niet, Ik ben bij toer 3 van A6 bij de lussen maar het klopt gewoon niet ik tel telkens maar 23 lussen(ben met de mouw bezig) de vorige toeren zijn wel 24 lussen....het patroon telt wel 24 lussen.... Wat gaat er fout
29.03.2023 - 20:22DROPS Design svaraði:
Dag Diane,
Misschien komt het door de manier waarop je de vasten in de vorige toer haakt? Kijk goed naar de toer waar het sterretje bij staat om te zien hoe je de steken in de vorige toer haakt, zodat je uitkomt met 24 lossen. Hopelijk helpt dit.
05.04.2023 - 19:30
Diane skrifaði:
Goedemorgen Ik ben met de mouw bezig en blijf bij toer 3 van A6 hangen er staat dat elke toer 24 lussen heeft maar bij toer 3 begin je met 1 keerlosse en een vaste dan 5 losse en een vaste in de 2de lus en dan heb je als de toer af is 23 losse want de eerste lus sla je in principe over als je het patroon leest. Klopt het patroon dan niet of doe ik iets fout?
28.03.2023 - 10:59DROPS Design svaraði:
Dag Diane,
De toer met de ster is al gehaakt en de eerste toer is de toer met lossenboogjes, deze heeft precies 6 lossenboogjes. Aan het eind van de toer haak je een vaste om de lossenlus, dan keer je het werk en haak je het eerst lossenboogje. Aan het eind van de volgende toer haak je een stokje in de eerste losse van de vorige toer.
28.03.2023 - 21:27
Emmanuelle skrifaði:
Je suis entrain de faire ce modèle avec le fil Drops Belle comme indiqué J'ai commencé avec un crochet n° 4 comme préconisé et le modèle était 2 fois trop grand. Pour correspondre aux mesures données dans les explications, j'ai recommencé en crochet n°3, c'est un peu moins fluide mais beaucoup plus joli et adapté à la taille choisie.
06.03.2023 - 14:37
Sara skrifaði:
Ciao! Ho iniziato questo modello con il filato e l’uncinetto consigliati. Arrivata alla prima ripetizione degli schemi del davanti (circa 5/6 cm) e misurando la larghezza (taglia s) è molto più grande di quella indicata (viene 66cm e non 43). Infatti, lavorando il campione, 18 maglie con l’uncinetto 4 misurano 12 cm e non 10! Comunque facendo la proporzione per 43 cm le maglie montate dovrebbero essere 77 e non 102. Come mai questa grande discrepanza? Risulta anche a voi? Grazie
02.03.2023 - 21:37DROPS Design svaraði:
Buonasera Sara, ha lavorato il campione prima di iniziare a lavorare il capo? La misura di uncinetto riportata è solo indicativa: deve utilizzare la misura che le permette di ottenere il campione indicato. Buon lavoro!
06.03.2023 - 20:43
Paqui Fernandez Gonzalez skrifaði:
Verano eterno
22.01.2023 - 12:05
Melanie skrifaði:
Rose
21.01.2023 - 11:44
Monica skrifaði:
Dune
20.01.2023 - 08:49
Elin skrifaði:
Summer Clouds
19.01.2023 - 20:01
RACHEL CLARK skrifaði:
Summer Day
19.01.2023 - 13:32
Shell Seeker Sweater#shellseekersweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 240-3 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir byrja með 1 loftlykkju. Þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu lykkju, heldur kemur sem viðbót. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. MÆLING: Öll mál sem vísað er í uppskrift eru tekin þegar stykkinu er haldið uppi. Það er vegna þess að mynstrið teygist þegar flíkin er mátuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er heklað fram og til baka, neðan frá og upp. Ermarnar eru heklaðar fram og til baka, neðan frá og upp. Frágangur á stykkinu er útskýrður í uppskrift. Í lokin er heklaður einfaldur kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Heklið 102-122-122-142-142-162 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Belle. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 101-121-121-141-141-161 fastalykkjur + 1 loftlykkja – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 11 fastalykkjur, heklið A.2 alls 8-10-10-12-12-14 sinnum, heklið A.3 yfir síðustu 10 fastalykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar 2 fyrstu umferðirnar (A) í A.1/A.2/A.3 hafa verið heklaðar 1 sinni á hæðina, heklið 4 umferðir í B alls 4 sinnum á hæðina, síðan er 4 umferðir í C heklaðar 1 sinni á hæðina. Þetta mynstur er nú tilbúið og stykkið mælist ca 18 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.4, heklið A.5 alls 5-6-6-7-7-8 sinnum (passið uppá að mynstrið sé heklað rétt miðað við lykkjurnar að neðan), heklið A.6. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist ca 28-30-30-32-31-33 cm – lestu MÆLING og þú ert núna í umferð einungis með loftlykkjubogum og fastalykkjum, fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið, þetta er gert þannig: Klippið þráðinn, snúið stykkinu, hoppið yfir fyrstu 3 loftlykkjuboga (3 loftlykkjubogar + 3 fastalykkjur) í mynstri (= 1/2 mynstureiningar í A.5), heklið A.5 eins og áður yfir næstu 24-30-30-36-36-42 loftlykkjuboga (byrjið og endið umferð með A.4/A.6 eins og áður), þ.e.a.s. ekki er heklað yfir síðustu 3 loftlykkjur í umferð (= 1/2 mynstureiningar í A.5). Haldið áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist ca 42-44-45-47-48-50 cm, heklið loftlykkjuboga / fastalykkjur fram og til baka eins og áður yfir allar lykkjur, án þess að hekla kúlur. Þegar stykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm og næsta umferð er hekluð frá réttu – munið eftir MÆLING, heklið öxl þannig: Heklið fram og til baka eins og áður yfir fyrstu 7-10-9-12-11-14 loftlykkjubogar (byrjið og endið umferð með A.4/A.6 eins og áður). Klippið þráðinn og þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Snúið stykkinu, byrjið frá röngu og heklið öxl á sama hátt í hinni hliðinni á stykkinu (ekki er heklað yfir miðju 10-10-12-12-14-14 loftlykkjubogum = hálsmál). FRAMSTYKKI: Heklið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm. Nú eru heklaðir loftlykkjubogar / fastalykkjur fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að hekla kúlur. Að auki er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli mitt að framan þannig: Byrjið frá réttu og heklið eins og áður yfir fyrstu 10-13-12-15-14-17 loftlykkjuboga eins og útskýrt er í A.7, snúið og heklið til baka (A.7 sýnir einungis stærð S, en úrtakan er alveg eins í öllum stærðum, þannig að heklið þann fjölda loftlykkjuboga sem stendur í þinni stærð og fylgið A.7 fyrir úrtöku fyrir hálsmáli). Þ.e.a.s. það er heklað yfir 1 loftlykkjuboga færri í lok annarrar hverrar umferðar við hálsmál alls 3 sinnum eins og útskýrt er í A.7 = 7-10-9-12-11-14 loftlykkjubogar eftir á öxl. Haldið áfram að hekla loftlykkjuboga þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Klippið þráðinn og festið. Snúið stykkinu, byrjið frá röngu og heklið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Heklið 82-82-82-82-102-102 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Belle. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 81-81-81-81-101-101 fastalykkjur + 1 loftlykkja. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 11 fastalykkjurnar, heklið A.2 alls 6-6-6-6-8-8 sinnum, heklið A.3 yfir síðustu 10 fastalykkjurnar. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar 2 fyrstu umferðir í (A) í A.1/A.2/A.3 hafa verið heklaðar 1 sinni á hæðina, heklið 4 umferðir í B alls 2 sinnum á hæðina, síðan er 4 umferðir í C heklaðar 1 sinni á hæðina. Þetta mynstur er nú tilbúið og stykkið mælist ca 11 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.4, heklið A.5 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum (passið uppá að mynstrið sé heklað rétt miðað við lykkjur í A.2), heklið A.6 = 24-24-24-24-30-30 loftlykkjubogar. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. STÆRÐ S, M, XXL og XXXL: Þegar stykkið mælist ca 47-43-41-37 cm, heklið loftlykkjuboga / fastalykkjur fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að hekla kúlur. Heklið þar til ermin mælist 52-48-46-42 cm – munið eftir MÆLING. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. STÆRÐ L og XL: Þegar stykkið mælist 14 cm, aukið út um 1 loftlykkjuboga yst í annarri hlið á stykki með því að hekla 1 loftlykkjuboga + 1 fastalykkju aukalega í fyrsta bogann í umferð. Endurtakið útaukningu í síðasta boganum í umferð þegar stykkið mælist ca 28 cm = 26-26 loftlykkjubogar í umferð. Þegar stykkið mælist ca 44-40 cm, heklið loftlykkjuboga / fastalykkjur fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að hekla kúlur. Heklið þar til ermin mælist 49-45 cm – munið eftir MÆLING. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Leggið framstykkið að bakstykki með röngu á móti röngu og heklið aðra öxlina á framstykki saman með samsvarandi öxl á bakstykki þannig: * 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á framstykki, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á bakstykki, 1 loftlykkja *, heklið frá *-* meðfram allri öxlinni, endið með 1 fastalykkju í síðustu lykkju. Klippið frá og festið. Heklið hina öxlina saman á sama hátt. Heklið hliðarsauma saman þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju á framstykki, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrstu lykkju á bakstykki, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja um næstu lykkju á framstykki, 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja um næstu lykkju á bakstykki *, heklið frá *-* meðfram allri hliðinni. Heklið hinn hliðarsauminn á sama hátt. Heklið ermarnar saman frá neðri kanti þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju í annarri hliðinni á erminni, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrstu lykkju í hinni hliðinni á erminni, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju í annarri hliðinni á erminni, 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju á hinni hliðinni á erminni *, heklið frá *-* þar til ca 5 cm eru eftir efst á erminni. Klippið þráðinn og festið. Heklið niður ermakúpuna við handveginn alveg eins og ermin var hekluð saman, þ.e.a.s. * 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á framstykki / bakstykki, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á ermakúpu, 2 loftlykkjur *, heklið frá *-* meðfram allri ermakúpunni / handvegi. Síðan er klaufin hekluð efst á erminni niður við botninn á handvegi alveg eins – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu á annarri öxlinni, heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fastalykkja um næstu lykkju / loftlykkjuboga *, heklið frá *-* í kringum hálsmál, endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Klippið þráðinn og festið. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #shellseekersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.