DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7018.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Shell Seeker Cardigan

Hekluð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er heklað neðan frá og upp með gatamynstri og kúlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 240-4
DROPS Design: Mynstur vs-105
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-750-850 g litur 26, perla

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4.

HEKLFESTA:
2 mynstureiningar með A.2 = ca 8½ cm á breidd.
1 mynstureining með A.6 = ca 10 cm á breidd.
18 fastalykkjur á breidd og 18 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7018.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir byrja með 1 loftlykkju. Þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu lykkju, heldur kemur sem viðbót.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9.
A.5/A.7 sýnir hvernig A.6 byrjar/endar á fram- og bakstykki í stærð M, L og XXXL.
A.4/A.8 sýnir hvernig A.6 byrjar/endar á fram- og bakstykki í stærð S, XL og XXL.
A.9 sýnir hálsmál á framstykkjum

MÆLING:
Öll mál sem vísað er í uppskrift eru tekin þegar stykkinu er haldið uppi. Það er vegna þess að mynstrið teygist þegar flíkin er mátuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið heklað fram og til baka hvort fyrir sig að loknu máli. Ermarnar eru heklaðar fram og til baka, neðan frá og upp. Frágangur á stykkinu er útskýrður í uppskrift. Í lokin er heklaður kantur í kringum opið á peysunni og 4 snúrur til að hnýta við miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 202-242-242-282-282-322 LOFTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Belle. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 201-241-241-281-281-321 fastalykkjur + 1 loftlykkja – sjá HEKLLEIÐBEININGAR.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 11 fastalykkjur, heklið A.2 alls 18-22-22-26-26-30 sinnum, heklið A.3 yfir síðustu 10 fastalykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar 2 fyrstu umferðir í (A) í A.1/A.2/A.3 hafa verið heklaðar 1 sinni á hæðina, heklið 4 umferðir í B alls 4 sinnum á hæðina, síðan er 4 umferðir í C heklaðar 1 sinni á hæðina. Þetta mynstur er nú tilbúið og stykkið mælist ca 18 cm frá uppfitjunarkanti.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig:

STÆRÐ S, XL og XXL:
Heklið A.4 yfir lykkjur í A.1, heklið A.6 alls 2-3-3 sinnum (passið uppá að mynstrið sé heklað rétt miðað við lykkjur í A.2), setjið 1 prjónamerki, heklið A.6 alls 5-7-7 sinnum, setjið 1 prjónamerki, heklið A.6 alls 2-3-3 sinnum (A.6 hefur nú verið heklað alls 9-13-13 sinnum og það er 1 prjónamerki í hvorri hlið á fram- og bakstykki), heklið A.8 yfir lykkjur í A.3. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.

STÆRÐ M, L og XXXL:
Heklið A.5, heklið A.6 alls 3-3-4 sinnum (passið uppá að mynstrið sé heklað rétt miðað við lykkjurnar í A.2), setjið 1 prjónamerki, heklið A.6 alls 6-6-8 sinnum, setjið 1 prjónamerki, heklið A.6 alls 3-3-4 sinnum (A.6 hefur nú verið heklað alls 12-12-16 sinnum og það er 1 prjónamerki í hvorri hlið á fram- og bakstykki), heklið A.7 yfir lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar stykkið mælist ca 28-30-30-32-31-33 cm – lestu MÆLING og þú ert í umferð einungis með loftlykkjubogum og fastalykkjum, skiptið stykkinu við bæði prjónamerkin fyrir handveg og hvort stykki er heklað fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, en snúið við handveg þegar 3 loftlykkjubogar eru eftir við prjónamerki (handvegur = 6 loftlykkjubogar) = 12-15-15-18-18-21 loftlykkjubogar (byrjið og endið umferð eins og áður).
Þegar stykkið mælist ca 38-40-41-43-44-46 cm, heklið loftlykkjuboga / fastalykkjur fram og til baka eins og áður yfir allar lykkjur, án þess að hekla kúlur.
JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg mitt að framan þannig: Byrjið frá röngu og heklið eins og áður yfir fyrstu 10-13-12-15-14-17 loftlykkjuboga eins og útskýrt er í A.9 (það eru 2-2-3-3-4-4 loftlykkjubogar eftir mitt að framan), snúið og heklið til baka (A.9 sýnir einungis stærð S, en úrtakan er alveg eins í öllum stærðum, þannig að heklið þann fjölda loftlykkjuboga sem stendur í þinni stærð og fylgið A.9 fyrir úrtöku fyrir hálsmáli). Þ.e.a.s. það er heklað yfir 1 loftlykkjuboga færri í lok annarrar hverrar umferðar við hálsmál alls 3 sinnum eins og útskýrt er í A.9 = 7-10-9-12-11-14 loftlykkjubogar eftir á öxl. Haldið áfram að hekla loftlykkjuboga þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm – munið eftir MÆLING. Klippið þráðinn og festið.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þegar fækka á lykkjum fyrir hálsmáli mitt að framan, byrjið frá réttu og heklið á sama hátt og hægra framstykki (fylgið A.9).

BAKSTYKKI:
Byrjið mynstrið 3 loftlykkjubogum á eftir prjónamerki í hlið, haldið áfram með A.6 fram og til baka eins og áður yfir næstu 24-30-30-36-36-42 loftlykkjuboga (byrjið og endið mynstrið eins og útskýrt er í A.5/A.7), snúið – það eru 3 loftlykkjubogar eftir við prjónamerki í hinni hliðinni.
Þegar stykkið mælist ca 38-40-41-43-44-46 cm – stillið lengdina eftir framstykki, heklið loftlykkjuboga / fastalykkjur fram og til baka eins og áður yfir allar lykkjur, án þess að hekla kúlur.
Þegar stykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm og næsta umferð er hekluð frá réttu – munið eftir MÆLING, heklið öxl þannig:
Heklið fram og til baka eins og áður yfir fyrstu 7-10-9-12-11-14 loftlykkjuboga (byrjið og endið umferð með A.5/A.7 eins og áður). Klippið þráðinn og festið þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm.
Snúið stykkinu, byrjið frá röngu og heklið öxl á sama hátt í hinni hlið á stykkinu (ekki er heklað yfir miðju 10-10-12-12-14-14 loftlykkjubogum = hálsmál).

ERMI:
Heklið 82-82-82-82-102-102 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Belle. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju = 81-81-81-81-101-101 fastalykkjur + 1 loftlykkja.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 11 fastalykkjur, heklið A.2 alls 6-6-6-6-8-8 sinnum, heklið A.3 yfir síðustu 10 fastalykkjur. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.
Þegar 2 fyrstu umferðir í (A) í A.1/A.2/A.3 hafa verið heklaðar 1 sinni á hæðina, heklið 4 umferðir í B alls 2 sinnum á hæðina, síðan er 4 umferðir í C heklaðar 1 sinni á hæðina. Þetta mynstur er nú tilbúið og stykkið mælist ca 11 cm frá uppfitjunarkanti.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig:
Heklið A.5, heklið A.6 alls 4-4-4-4-5-5 sinnum (passið uppá að mynstrið sé heklað rétt miðað við lykkjurnar í A.2), heklið A.7 = 24-24-24-24-30-30 loftlykkjubogar. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka.

STÆRÐ S, M, XXL og XXXL:
Þegar stykkið mælist ca 47-43-41-37 cm, heklið loftlykkjuboga / fastalykkjur fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að hekla kúlur. Heklið þar til ermin mælist 52-48-46-42 cm – munið eftir MÆLING. Klippið þráðinn og festið.
Heklið hina ermina á sama hátt.

STÆRÐ L og XL:
Þegar stykkið mælist 14 cm, aukið út um 1 loftlykkjuboga yst í annarri hlið á stykki með því að hekla 1 loftlykkjuboga + 1 fastalykkju aukalega í fyrsta bogann í umferð. Endurtakið útaukningu í síðasta boganum í umferð þegar stykkið mælist ca 28 cm = 26-26 loftlykkjubogar í umferð.
Þegar stykkið mælist ca 44-40 cm, heklið loftlykkjuboga / fastalykkjur fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að hekla kúlur. Heklið þar til ermin mælist 49-45 cm – munið eftir MÆLING. Klippið þráðinn og festið.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Leggið framstykkið að bakstykki með röngu á móti röngu og heklið aðra öxlina á framstykki saman með samsvarandi öxl á bakstykki þannig: * 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á framstykki, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á bakstykki, 1 loftlykkja *, heklið frá *-* meðfram allri öxlinni, endið með 1 fastalykkju í síðustu lykkju. Klippið frá og festið.
Heklið hina öxlina saman á sama hátt.

Heklið ermarnar saman frá neðri kanti þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju í annarri hliðinni á ermi, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrstu lykkju í hinni hliðinni á ermi, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju í annarri hliðinni á ermi, 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju á hinni hliðinni á ermi *, heklið frá *-* þar til ca 5 cm eru eftir efst á erminni. Klippið þráðinn og festið.

Heklið niður ermakúpuna við handveginn alveg eins og ermin var hekluð saman, þ.e.a.s. * 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á framstykki / bakstykki, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um fyrsta / næsta loftlykkjuboga á ermakúpu, 2 loftlykkjur *, heklið frá *-* meðfram allri ermakúpunni / handvegi. Síðan er klaufin hekluð efst á erminni niður við botninn á handvegi alveg eins – sjá teikningu.

KANTUR MEÐFRAM OPI Á PEYSU:
Byrjið frá réttu neðst í hægra framstykki, heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fastalykkja um næstu lykkju / loftlykkjubogi *, heklið frá *-* upp meðfram framstykki, í kringum hálsmálið og niður meðfram vinstra framstykki. Klippið þráðinn og festið.

SNÚRA:
Heklið loftlykkjuröð ca 60 cm. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum lykkjuna og hnýtið hnút í hvorn enda á snúrunni. Heklið 3 snúrur til viðbótar á sama hátt.
Leggið snúruna saman tvöfalda – þræðið lykkjuna í gegnum ysta loftlykkjubogann mitt framan í hálsmáli, efst í hægra framstykki, þræðið endana í gegnum lykkjuna og herðið að.
Festið aðra snúru á sama hátt ca 10 til 12 cm fyrir neðan þessa.
Festið 2 snúrur á sama hátt í vinstra framstykki. Notið snúrurnar til að hnýta peysuna saman.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan
symbols = 1 loftlykkja til að snúa við með
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan / 1 stuðull um loftlykkjubogann
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 5 fastalykkjur um loftlykkjuboga
symbols = 1 kúla í lykkjuna fyrir neðan – kúlan er hekluð þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í fastalykkjuna fyrir neðan, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna (báðir uppslættirnir er dregnir eins langt og hægt er = ca 1,5 cm) *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum = 6 lykkjur + 1 lykkja á heklunálinni. Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar lykkjurnar + lykkju (= 1 lykkja eftir á heklunálinni)
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig næsta umferð er hekluð í / um lykkjurnar fyrir neðan
symbols = 1 mynstureining
symbols = heklið d við D og e við E
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Marianne Kenny wrote:

I’m not sure about the crochet information does every row start with a chain stitch or just the first two rows? Regards Marianne

02.03.2024 - 04:44

DROPS Design answered:

Dear Marianne, all rows start with a chain stitch, which is used to turn the piece as you work back and forth. Happy crochetting!

03.03.2024 - 19:37

country flag Tracey wrote:

I am starting row 8 of A.8 I have completed the Turing chain and chained 4. Where does the first 1 single chain around chain space go? Is it around the chain space between the first and second bobble stitch? Then chain 5 and complete the second single crochet around the chain space between the 4 th and 5 th bobble stitch? Or is the symbol a 1 single crochet in bobble stitch?

21.02.2024 - 18:28

DROPS Design answered:

Dear Tracey, the single crochets should be worked around the chain stitches, ie edit in the 1st and in the 4th ch-space, ie between 1st and 2nd boble + between 4th and 5th boble. Happy crocheting!

22.02.2024 - 08:52

country flag Leslie wrote:

Working on the body, i am starting row 1 of A.4, A.6 and A.8. This row indicates T symbol which is a single crochet in stitch but I am unsure which stitch to do the single crochet into as the pattern indicates an empty space below and is unclear.

17.02.2024 - 01:59

DROPS Design answered:

Dear Leslie, the row with only T symbols is the row that has already been worked (see charts A.1, A.2 and A.3 and the black asterisk at the beginning of the rows). You start the new charts with the chain spaces over the single crochet row. Happy crochetting!

18.02.2024 - 22:16

country flag Leslie wrote:

I am working on the swatch gauge A2. Only one side of the pattern shows what to do when finished one row and turning to start the next. Start with chain 10 , row 1 - single crochet across. Row 3 left side of pattern reads a single crochet , ch 3 dc, ch 2, dc chain 3 then it repeat until end of row. Now what do I do to turn to start next row?

05.01.2024 - 22:55

DROPS Design answered:

Dear Leslie, remember that you don't work just A.2. You work A.1, A.2 and A.3 together. A.1 shows the beginning of the rows from the right side and A.3 the beginning of the rows from the wrong side. A.2 is the middle repeat, so there are no starting/finishing stitches in it. Row 4 begins with 1 chain stitch and 1 chain stitch for the pattern. Happy crocheting!

07.01.2024 - 23:55

country flag Leslie wrote:

I am planning on making this in a large but am concerned the sleeves will be too long as the sleeve will stretch. How can I shorten the sleeve length while remaining it to fit into the large armhole?

31.12.2023 - 15:06

DROPS Design answered:

Dear Leslie, if your tension is right the sleeve should fit perfectly the armholes. You can also try on the jacket and adjust the length if needed. Happy crocheting!

02.01.2024 - 11:03

country flag Iseult Holman wrote:

Liebes Drops-Team Erst einmal Kompliment, dieser Cardigan ist wunderschön gearbeitet! Ich habe eine Frage zu A.2: Wird in der Reihe nach den Noppen (bspw. 6) das Stäbchen (in der Reihe der Noppen) einfach übersprungen? D.h. nach der letzten festen Masche um den Luftmaschenbogen einer Noppe wird das Stäbchen darunter übersprungen und gleich eine feste Masche um den nächsten Luftmaschenbogen der nächsten Noppe gehäkelt? Besten Dank und herzliche Grüsse Iseult Holman

14.07.2023 - 06:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau Holman, ja genau, dieses Stäbchen wird übersprungen. Viel Spaß beim häkeln!

27.07.2023 - 10:44

country flag Alyssa wrote:

I’ve just begun this project. My gauge is 18 stitches per 10 cm. I cast on 202 stitches and my starting piece is now 45 inches long…. Which makes sense with the math but not with the provided measurements of this garment. It’s way too big. Am I doing something wrong or are these numbers wrong? Thank you! Alyssa

06.07.2023 - 20:40

country flag Elsa wrote:

Werden in der Reihe nach den Noppen zwischen A1 und A2 und A2 und A3 wirklich keine Luftmaschen gearbeitet. Es müssen immerhin 3 Maschen von der darunter liegenden Noppenreihe überbrückt werden. Die letzte feste Masche in A1 ist zwischen Noppe 4 und Noppe 5 und dann ohne Luftmaschen weiter zwischen Noppe 1 und 2? Danke!

01.07.2023 - 22:16

DROPS Design answered:

Liebe Elsa, ja ganz genau so soll man diese Reihe häkeln. Viel Spaß beim häkeln!

03.07.2023 - 10:21

country flag Stachnick wrote:

Bonjour Mon échantillon de 2X A2 mesure : 11 cm . J 'utilise un crochet 3,5 et le fil belle comme indiqué. Du coup mon ouvrage sera beaucoup trop grand. J'ai recommencé plusieurs fois et mon échantillon est toujours trop grand ? Que puis je faire ? Merci Cordialement

14.06.2023 - 22:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Stachnick, avez-vous essayé avec un crochet plus petit? 3 ou même 2,5 si besoin? N'hésitez pas à bloquer votre échantillon pour vérifier si vous avez bien la taille finale. Bon crochet!

15.06.2023 - 09:14

country flag Angelika wrote:

Anleitung DROPS 240-4 Da kann bei der Maschenanzahl etwas nicht stimmen: 18 feste Maschen in der Breite und in der Höhe ergeben bei mir 10 x 10 cm (wie in der Anleitung erwähnt). 2 Rapporte A.2 ergeben bei mir 12 cm. Gemäss Anleitung sollten es 8.5 cm sein. 1 Rapport A.2 basiert auf 10 festen Maschen, 2 Rapporte folglich basieren folglich auf 20 festen Maschen. Und 20 feste Maschen ergeben (siehe oben) 12 cm und nicht 8.5 cm. Können sie mir helfen? Danke.

09.03.2023 - 10:56

DROPS Design answered:

Liebe Angelika, Verzeihung für späte Antwort; Maschenprobe ist hier richtig, beide Muster sind verschieden und beim A.2 wird die Arbeit enger als mit A.6 , das mehr elastisch ist. Viel Spaß beim häkeln!

18.04.2023 - 10:21