DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9724.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 239-17
DROPS Design: Mynstur r-807
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-450-500-550-600 g litur 61, ljós moldvarpa
150-150-150-200-200-200 g litur 09, muskat
150-150-150-150-200-200 g litur 08, natur
100-100-100-100-100-150 g litur 86, bleikur sandur
50-50-50-50-50-100 g litur 85, sinnep

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.

HEKLFESTA:
1 ferningur mælist ca 10½ x 10½ cm.
20 stuðlar á breidd og 10 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9724.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir með stuðlum byrja á 3 loftlykkjum. Þessar 3 loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðuls. Umferðin endar með 1 stuðli í 3. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð.

LITIR (á við um ferninga):
UPPFITJUN og UMFERÐ 1: litur sinnep
UMFERÐ 2: litur muskat
UMFERÐ 3: litur bleikur sandur
UMFERÐ 4: litur natur
UMFERÐ 5: litur ljós moldvarpa

LITASKIPTI:
Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu loftlykkju frá byrjun á umferð, bregðið þræðinum einu sinni um heklunálina með nýja litnum og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni. Festið þræðina jafnóðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
A.1 er heklað í hring.
A.2 til A.4 er heklað fram og til baka.

FRÁGANGUR Á FERNINGUM (framstykki):
Sjá mynsturteikningu A.5 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru ferningarnir heklaðir. Ferningarnir eru heklaðir saman fyrir framstykki og bakstykki. Síðan eru hliðarstykkin hekluð og ermar fram og til baka í stykkjum. Frágangur á peysunni er útskýrður í uppskrift. Að lokum er heklaður kantur í kringum alla peysuna og 2 snúrur til að hnýta mitt að framan.

HEILL FERNINGUR:
Lesið LOFTLYKKJA, LITIR og LITASKIPTI í útskýringu að ofan. Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum sinnep í DROPS Muskat og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Síðan er mynstur heklað í hring eftir mynsturteikningu A.1.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka, klippið þræðina og festið. Heklið alls 36-36-38-38-60-60 heila ferninga.

HÁLFUR FERNINGUR:
Lesið LOFTLYKKJA, LITIR og LITASKIPTI í útskýringu að ofan. Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum sinnep í DROPS Muskat og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Síðan er mynstur heklað fram og til baka eftir mynsturteikningu A.2.
Þegar A.2 hefur verið heklað til loka, klippið þræðina og festið. Heklið alls 2 hálfa ferninga í öllum stærðum.

FERNINGAR HEKLAÐIR SAMAN:
Leggið ferningana á báðum framstykkjunum eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.5 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) og passið uppá að allir ferningarnir liggi með réttuna upp.
Ferningarnir á hvoru framstykki eru fyrst heklaðir saman á lengdina og síðan á breiddina.
Notið litinn ljós moldvarpa til að hekla saman. Leggið 2 ferninga kant í kant þannig að hægt sé að hekla þá saman. Það á að hekla 21 lykkju meðfram hvorri hlið á ferningunum, þ.e.a.s. 19 lykkjur með fram hlið á ferningi + 2 loftlykkjur frá hvorum hornboga.
Byrjið í horni og heklið þannig: * Stingið heklunálinni frá réttu í gegnum aftari lykkjubogann á öðrum ferningnum, síðan er heklunálinni stungið frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á hinum ferningnum, sækið þráðinn og dragið í gegnum báðar lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* þar til þessir 2 ferningar hafa verið heklaðir saman meðfram allri annarri hliðinni á ferningunum, heklið 1 loftlykkju, síðan er heklað frá *-* meðfram 2 næstu ferningum alveg eins.
Heklið svona þar til allir ferningarnir í þessari röð hafa verið heklaðir saman. Þegar allar raðirnar með ferningum hafa verið heklaðar saman á lengdina, heklið allar raðirnar með ferningum saman á breiddina alveg eins. ATH: Í stærð L, XL, XXL og XXXL kemur hálfi ferningurinn efst á öxl til með að tilheyra framstykkjum og hálfi ferningurinn tilheyrir bakstykki.

Ferningarnir á bakstykki eru heklaðir saman alveg eins með 4-4-4-4-6-6 ferninga á breiddina og 5-5-5-5-5 ferningar á hæðina.

Heklið axlirnar saman alveg eins – ATH: Í stærð S og M er heklað saman mitt á öxl, í stærð L, XL, XXL og XXXL er heklað saman á bakstykki.

HLIÐARSTYKKI:
Heklið 14-22-30-42-10-22 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ljós moldvarpa í DROPS Muskat. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 13-21-29-41-9-21 fastalykkja.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.3A í fyrstu lykkju, heklið A.3B alls 2-4-6-9-1-4 sinnum, heklið A.3C yfir síðustu 4 lykkjurnar. Haldið svona áfram með A.3 fram og til baka þar til hliðarstykkið mælist 32-31-35-34-33-32 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Klippið þráðinn og festið. Heklið annað hliðarstykki alveg eins.

ERMI:
Heklið 62-66-70-74-78-82 loftlykkjur með heklunál 3,5 og litnum ljós moldvarpa í DROPS Muskat. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 61-65-69-73-77-81 fastalykkjur.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.3A í fyrstu lykkju, heklið A.3B alls 14-15-16-17-18-19 sinnum, heklið A.3C yfir síðustu 4 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist ca 10 cm, aukið út um 1 stuðlahóp í byrjun á umferð og 1 stuðlahóp í lok umferðar eins og útskýrt er í A.4. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist ca 24-24-22-20-18-18 cm = 77-81-85-89-93-97 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 36-35-34-32-30-28 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Heklið þar til ermin mælist ca 39-40-41-42-32-33 cm. Klippið þráðinn og festið.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Setjið 1 prjónamerki 21-22-23-24-25-26 cm frá miðju á öxl og niður á framstykki/bakstykki. Prjónamerkin merkja dýptina á handvegi.
Saumið hliðarstykkin niður við framstykkin/bakstykki. Uppfitjunarkanturinn á hliðarstykkjum á að vísa niður. Byrjið neðst og saumið stykkin saman kant í kant upp að prjónamerkjum.
Saumið ermasauma – byrjið neðst og saumið kant í kant upp að prjónamerkjum.
Saumið ermakúpuna við handveg – strekkið aðeins á ermakúpunni þegar þessi saumur er saumaður svo að ermakúpan passi við handveg. Saumið klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR:
Notið litinn ljós moldvarpa, byrjið við annað hliðarstykkið meðfram neðri kanti á peysu, heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* meðfram neðri kanti, upp meðfram framstykki, í kringum hálsmál, niður meðfram framstykki og síðan meðfram neðri kanti að byrjun á umferð, endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið þráðinn og festið.

SNÚRA TIL AÐ HNÝTA SAMAN:
Notið litinn ljós moldvarpa og heklið eina loftlykkjuröð ca 80-80-90-90-100-100 cm. Hnýtið hnút í hvorn enda. Leggið snúruna saman tvöfalda. Þræðið lykkjuna á snúrunni í gegnum einn loftlykkjuboga neðst í v-hálsmáli á öðru framstykkinu, þræðið endana í gegnum lykkjuna og herðið að. Gerið aðra snúru alveg eins og festið snúruna neðst í v-hálsmáli á hinu framstykkinu.

Mynstur

symbols = byrjið hér – þessi loftlykkjuhringur er útskýrður í uppskrift. Haldið áfram frá tákni yfir punkti á hring og heklið til vinstri
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 keðjulykkja í loftlykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuhringinn

symbols = heklið 2 tvíbrugðna stuðla um loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báða þessa tvíbrugðnu stuðla, bregðið þræðinum einu sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = heklið 3 tvíbrugðna stuðla um loftlykkjuna, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum hvern af þessum tvíbrugðnu stuðlum, bregðið þræðinum einu sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni
symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig hekla á lykkjurnar – byrjið í næstu umferð í mynsturteikningu
symbols = 1 hálfur stuðull um loftlykkjubogann
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju / loftlykkjuboga / í lykkjuna fyrir neðan
symbols = sum loftlykkju / loftlykkjuboga
symbols = 3 loftlykkjur í byrjun á umferð. Þegar heklað er í hring endar umferðin með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju
symbols = saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Dea wrote:

Waarom moet je bij maat S en M 36 hele vierkanten haken, bij maten L en XL 38, en bij maat xxl en xxxl maar liefst 60. Klopt dit wel ?

25.04.2024 - 13:07

country flag Anke Van Drempt-Dienske wrote:

Duidelijker aangeven HOE de zijkant gehaakt moet worden. IK kom er niet uit . \r\nHOE moet ik in toer 2 de 3 lossen maken , eerst een halve vaste en dan de 3 lossen? FRUSTREREND !!!!\r\nKan ik dit kantpatroon misschien op een VIDEO vinden .?\r\nVriendelijke groeten Anke

20.03.2024 - 11:21

country flag Annagun Martinsson wrote:

Tournesol Cardigan Virkad kofta. Hej! Virkar denna kofta men förstår inte diagrammet A5, Rutan som är halv vid axeln, ska det vara en hel ruta? Tycker att koftan blir mycket urringat bak vid halsen. Har ni någon bild på koftan bakifrån? Önskar svar på min fråga. Tack!

18.03.2024 - 12:36

DROPS Design answered:

Hei Annagun. Vi har dessverre ingen bilder bak. Om du hekler str. L-XL-XXL-eller XXXL vil halve ruten øverst på skulderen tilhøre forstykkene og halve ruten tilhøre bakstykket Altså du hekler en hel rute, men den deler seg oppe ved skulderen. mvh DROPS Design

02.04.2024 - 09:28

country flag Georgiana Argento wrote:

Hi, my question: if I make this sweater ( 239-17) in one color how much total yarn will I need ? Also is there any way you can send me this pattern ? I used to be able to print the patterns off the computer but not any more.. Thank you so much. I printed so many of your patterns off the computer. You have a great collection of patterns.I've made many baby blankets and children's socks from your patterns . Thanks again. Georgiana

15.03.2024 - 00:02

DROPS Design answered:

Dear Georgiana, as this pattern was worked with different colour we only have the amount with all the colours and we don't have the jacket anymore, so the best would be to add all amount for each colour, you might probably required a bit less. To get the pattern be printed feel free to ask your DROPS Store while ordering yarn. See list of DROPS store for USA here. Happy crocheting!

15.03.2024 - 09:31

country flag Annagun Martinsson wrote:

Hej ! Förstår inte diagrammet A5, Rutan som är halv vid axeln, tycker att det blir mycket urringat bak vid halsen. Har ni någon bild på koftan bakifrån?

13.03.2024 - 09:51

DROPS Design answered:

Hej Annagun, det har vi desværre ikke, vi forstår ikke rigtig hvor du mener, kan du evt lave en hel rude istedet for ½ hvis den bliver for udringet?

19.03.2024 - 11:27

country flag Dorothee wrote:

Hm, also ein Bild vom Rücken würde mir glaube ich weiterhelfen! Ich weiß auch nicht genau ob wir von den gleichen Quadraten reden. Die zwei äußeren Quadrate gehören 1/2 zur Rückseite und zur Vorderseite. Die zwei mittleren nur zur Rüchseite?!? LG Dorothee

04.03.2024 - 13:39

DROPS Design answered:

Liebe Dorothee, Rückenteil ist 4 Quadrate in der Breite und 5 Quadrate in der Höhe (wie ein Rechteck) = 20 Quadrate + 8 Quadrate für jedes Vorderteil + 1 Quadrat für jede Schulter, so haben Sie: 20+8+1+8+1= 38 Quadrate insgesamt. Viel Spaß beim Häkeln!

04.03.2024 - 15:39

country flag Dorothee wrote:

Hallo, sehr schöne Jacke🥰! Ich hänge gerade bei dem zusammenhäckeln der Vorder und Rückseite. Was passiert mit den 2 halben Quadraten von den 4 Qudraten, die bei Größe L zu den Vorderteilen gehören? Geben die einen Kragen am Nacken🤔. Denn die obere Reihe von der Rückseite die über die Schultern mit der Vorderseite verbunden wird betrifft ja nur die 2 äußeren Quadrate😬. LG Dorothee

04.03.2024 - 08:22

DROPS Design answered:

Liebe Dorothee, diese 2 halben Quadraten werden zum Hals zusammengehäkelt, wie in der Skizze gezeigt, dh neben dem 4. Quadrat von unten gezählt, oder misverstehe ich Ihre Frage?

04.03.2024 - 10:10

country flag Carina Richard wrote:

Hej Jag kan inte förstå sidostyckena ,hur kan man virka A3C över de sista 4 maskorna där är ju bara en stolpe i diagrammet. Och hur fortsätter jag sen fram o tillbaka ?

16.11.2023 - 14:05

DROPS Design answered:

Hej Carina, jo i A.3C afslutter du rækken med en stolpe i 4:e m, så vender du arbejdet og virkar 3 luftmaskor i början av varvet osv :)

17.11.2023 - 10:50

country flag Van Damme Eveline wrote:

Ik begrijp de uitleg niet van het rugpand en er is ook geen foto te zien, ofwel zijn er vierkanten/halve vierkanten te kort ofwel klopt het patroon niet, foto of patroon van de achterkant is ook niet te zien, dus graag meer verduidelijking, eventueel met schema. Bedankt

27.10.2023 - 11:31

DROPS Design answered:

Dag Eveline,

Onderaan de paragraaf over 'VIERKANTEN SAMEN HAKEN' staat een regel over hoeveel vierkanten er in de breedte en de hoogte op het achterpand komen. Dit zijn dezelfde vierkanten, met ook dezelfde afmetingen als die je voor de voorpanden hebt gehaakt. Als je alle vierkanten voor de panden aan elkaar hebt gehaakt heb je een rechthoekige lap voor het achterpand en 2 lappen voor de voorpanden zoals in het schema onderaan.

28.10.2023 - 10:23

country flag Betina wrote:

Hej Når jeg hækler sidestykket i xxl med 10 masker, bliver det helt skævt. Det er som om, der er for mange masker i bunden. Hvad gør jeg forkert ?

31.08.2023 - 10:41

DROPS Design answered:

Hei Betina. Sidestykket hekles over 9 masker (bortsett fra 1. rad / 10 masker). Sett maskemarkører etter hvert diagram, så har du en bedre oversikt. Hekle A.3a over 1 maske (sett en maskemarkør), hekle A.3b over 4 masker (sett en maskemarkør), hekle A.3c over de 4 siste maskene, snu. Nå skal du hekle A.3a over A.3a, A.3b over A.3b og A.3c over A.3c og hele tiden over 9 masker. mvh DROPS Design

11.09.2023 - 13:20