Margret skrifaði:
“Pull out the strand which was used over the 10-11 stitches for the thumb-opening = 20-22 stitches.” I don’t understand where the extra 10 stitches come from? Only 10 are on the different coloured strand?
28.09.2024 - 14:35DROPS Design svaraði:
Dear Margret, you can see how to do this in the following video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1499&lang=en. Since the differently coloured thread joins together the 10 stitches from one round to the 10 stitches worked over them in the next round, after you take out the thread you will have 20 stitches out. Happy knitting!
29.09.2024 - 20:55
Marie skrifaði:
Hi, just for information : when you have 56 stitches, you have to place a marker every 7 stitches. In the French translation, it says only every 6 stitches ;) Bonjour, pour info, petit manque dans la traduction française : si vous faites la taille L/XL (56mailles), il faudra un marqueur toutes les 7 mailles, et pas toutes les 6. L'info est dans la version anglais mais pas dans la trad en français ;) Bon tricot!
01.01.2024 - 14:08
Estelle skrifaði:
Bonjour, pour les diminutions, vous indiquez 8 diminutions espacées de 6 mailles, ce qui fonctionne si l'on a 48 mailles, mais pas du tout si l'on en a 56, donc comment fait-on ? et également je ne comprends pas on fait un rang de diminutions on tricote ensuite 2 autres rangs puis ensuite un autre rang pour les nouvelles diminutions ? Merci d'avance pour vos réponses
25.11.2023 - 09:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Estelle, effectivement, vous aurez 7 mailles entre chacun des 8 marqueurs dans la 2ème taille. Je transfère de suite à nos stylistes, merci pour votre retour. Bon tricot!
27.11.2023 - 08:30
Emilija skrifaði:
I'm confused. We have 48 stiches to start with. We put 10st on hold, so 38st left. And when we start decreasing, 8 markers 6st apart 8x6=48. How is that?
04.12.2022 - 21:23DROPS Design svaraði:
Hi Emilija, You work the 10 stitches for the thumb-opening with a different coloured strand, then place these 10 stitches back on the left needle and work pattern as before over all stitches = 48 stitches. When you start the thumb, the different coloured strand is pulled out before working the thumb. Hope this helps and happy knitting!
05.12.2022 - 06:52
Kathy skrifaði:
Would it be possible to create a double lined mitten pattern.
01.12.2022 - 18:03
Christmas Time Mittens#christmastimemittens |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðir vettlingar fyrir herra úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í marglitu mynstri með jólatrjám. Þema: Jól.
DROPS 233-15 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Ef óskað er eftir því að gera vettling í stærra eða minna ummáli er hægt að prjóna vettlinginn með hálfu eða heilu númeri grófari/fínni prjónum. Ef prjónað er með hálfu númeri grófari /fínni prjónum þá verður 1 cm meira/minna ummál og í heilu númeri grófari/fínni prjónum verðu ummálið 2 cm meira/minna. LEIÐBEININGAR-2: Til að koma í veg fyrir að vettlingarnir missi teygjanleikan þegar mynstrið er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-3: Hægt er að stilla af lengdina á vettlingnum fyrir byrjun á opi fyrir þumalfingur með því að prjóna færri eða fleiri umferðir áður en prjónað er merki fyrir opi fyrir þumalfingur. ÚRTAKA: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. VINSTRI VETTLINGUR: Sjá LEIÐBEININGAR-1 og fitjið upp 48-54 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum skógargrænn í DROPS Karisma. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1: Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 2: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 3 cm. Prjónið síðan 4 umferðir garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og litinn ljós grár. Lestið LEIÐBEININGAR-2 og prjónið A.1 hringinn á vettlingnum – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 0-2 lykkjur jafnt yfir = 48-56 lykkjur (það er pláss fyrir 6-7 mynstureiningar hringinn á vettlingnum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 alls 6-7 sinnum hringinn á vettlingnum. A.2 er endurtekið á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 14-16 cm – sjá LEIÐBEININGAR-3, prjónið merki fyrir opi fyrir þumalfingur eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 13-16 lykkjur mynstur eins og áður, prjónið 10-11 lykkjur sléttprjón fyrir opi fyrir þumalfingur með þræði í öðrum lit sem aðskilur sig frá stykkinu, setjið síðan til baka þessar 10-11 lykkjur á vinstri prjón og prjónið mynstur eins og áður út umferðina. Haldið áfram með A.2 hringinn yfir allar lykkjur þar til vettlingurinn mælist ca 23-24 cm frá uppfitjunarkanti. Nú eru eftir ca 3-4 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd áður en úrtakan byrjar. Afgangur af vettlingnum er prjónaður í sléttprjón með litnum ljós grár. Setjið 8 prjónamerki í stykkið með 6-7 lykkjur á milli prjónamerkja. Í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA (8 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 3-4 sinnum = 24 lykkjur eftir í báðum stærðum. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 12 lykkjur eftir í báðum stærðum. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6 lykkjur eftir í báðum stærðum. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 26-28 cm ofan frá og niður. ÞUMALFINGUR: Dragið út þráðinn sem prjónaður var yfir 10-11 lykkjur fyrir opi fyrir þumalfingur. Nú eru 20-22 lykkjur. Setjið þessar lykkjur á sokkaprjóna 3, prjónið sléttprjón með litnum ljós grár og prjónið að auki upp 2 lykkjur í hvorri hlið á þumalfingri (hvoru megin við 10-11 lykkjur) = 24-26 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT í 2. umferð er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir = 22-24 lykkjur. Prjónið 2 umferðir án úrtöku. Endurtakið úrtöku í næstu umferð = 20-22 lykkjur. Prjónið þar til þumalfingurinn mælist ca 5½-6 cm. Nú er eftir ca 1 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd fyrir þumalfingur áður en úrtaka byrjar. Prjónið 3 umferðir sléttprjón þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í hverri umferð = 8-10 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 4-5 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Þumalfingurinn mælist ca 6½-7 cm ofan frá og niður. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp jafn margar lykkjur og vinstri vettlingur og prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur þar til stykkið mælist 14-16 cm. Nú er prjónað merki fyrir opi fyrir þumalfingur eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 25-29 lykkjur mynstur eins og áður, prjónið 10-11 lykkjur sléttprjón fyrir opi fyrir þumalfingur með þræði í öðrum lit sem aðskilur sig frá stykkinu, setjið síðan til baka þessar 10-11 lykkjur á vinstri prjón og prjónið mynstur eins og áður út umferðina. Afgangur af vettlingi er prjónaður á sama hátt og vinstri vettlingur. ÞUMALFINGUR: Prjónið þumalfingur á sama hátt og á vinstri vettlingi. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #christmastimemittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.