Coconut Grove Cardigan#coconutgrovecardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað neðan frá og upp með kúlumynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 235-16 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað 1. stuðuls. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, heklið 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1. fastalykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. BAKSTYKKI: Notið heklunál 4,5 og 1 þráði í hvorri tegund (2 þræðir). Heklið 78-84-90-98-108-118 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA. Snúið stykkinu og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 75-81-87-95-105-115 stuðlar – sjá HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið með 1 stuðli í hvern stuðul þar til heklaðar hafa verið alls 6 umferðir. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir 3-6-9-5-10-7 lykkjur, heklið A.2 alls 9-9-9-11-11-13 sinnum á breiddina og heklið A.3 yfir 0-3-6-2-7-4 lykkjur. Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð til loka á hæðina endurtakið mynsturteikningu á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 34-35-36-37-38-39 cm, gerið handveg í næstu umferð þannig: Klippið þráðinn, hoppið yfir fyrstu 1-2-3-5-8-10 lykkjur í umferð og festið þráðinn með 1 keðjulykkju í næstu lykkju – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Stillið mynstrið af þannig að ekki er heklað kúlumynstur yst við handveg. Nú er heklað áfram mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ XS: Heklið A.1 yfir næstu 2 lykkjur, heklið A.2 alls 8 sinnum á breiddina, heklið fyrstu 7 lykkjur í A.2 einu sinni til viðbótar, þar til 1 lykkja er eftir í umferð. Það eru 73 lykkjur í umferð. STÆRÐ S, M, L, XL, XXL: Heklið A.1 yfir næstu 4-6-8-10-5 lykkjur, heklið A.2 alls 9-9-9-9-11 sinnum á breiddina, heklið A.3 yfir næstu 1-3-5-7-2 lykkjur, það eru eftir 2-3-5-8-10 lykkjur í umferð. Það eru 77-81-85-89-95 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Lestu allan kaflann áður en þú heklar áfram! = 73-77-81-85-89-95. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, heklið A.1 yfir miðju 31-33-33-35-35-37 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, heklið hálsmál í næstu umferð frá réttu þannig: Heklið eins og áður yfir fyrstu 23-24-26-27-29-31 lykkjur, heklið næstu 2 lykkjur saman. Snúið stykkinu. HÆGRI ÖXL BAKSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): = 24-25-27-28-30-32 lykkjur. Heklið 1 umferð frá röngu eins og áður – stillið af að kúlumynstur sé ekki heklað yst við hálsmál. Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá réttu = 23-24-26-27-29-31 lykkjur. Heklið eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af að endað sé með umferð með stuðlum. Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkju. VINSTRI ÖXL BAKSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá réttu og hoppið yfir 23-25-25-27-27-29 lykkjur fyrir hálsmáli. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í næstu lykkju og heklið þannig: Heklið 2 fyrstu lykkjur saman og heklið út umferðina eins og áður – stillið af að kúlumynstur sé ekki heklað yst við hálsmál. Heklið 1 umferð frá röngu eins og áður. Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá réttu = 23-24-26-27-29-31 lykkjur. Heklið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af að endað sé með umferð með stuðlum. Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkju. HÆGRA FRAMSTYKKI: Notið heklunál 4,5 og 1 þráð í hvorri tegund. Heklið 45-48-51-55-60-65 loftlykkjur – munið eftir LOFTLYKKJA. Snúið stykkinu og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 42-45-48-52-57-62 stuðlar. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR þar til heklaðar hafa verið alls 6 umferðir. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið: A.1 yfir 8-8-11-9-11-13 lykkjur, heklið A.2 alls 4-4-4-5-5-5 sinnum, heklið A.3 yfir 2-5-5-3-6-9 lykkjur. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka er mynsturteikningin endurtekin á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 34-35-36-37-38-39 cm – stillið af eftir bakstykki svo að handvegur sé gerður í sömu umferð – heklið frá réttu þar til 1-2-3-5-8-10 lykkjur eru eftir að hlið, snúið stykkinu. Heklið yfir 41-43-45-47-49-52 lykkjur eins og áður, en stillið mynstrið af þannig að ekki sé heklað kúlumynstur yst við handveg. Lestu allan kaflann áður en þú heklar áfram! Þegar stykkið mælist 43-45-46-48-49-51 cm heklið A.1 yfir fyrstu 22-22-23-23-24-24 lykkjur – mynstrið heldur áfram eins og áður yfir hinar lykkjurnar. Þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm, skiptist stykkið fyrir hálsmáli. Í næstu umferð frá röngu er heklað fram þar til 16-16-17-17-18-18 lykkjur eru eftir. Snúið stykkinu. Heklið 2 næstu lykkjur saman, heklið út umferðina eins og áður (stillið af að kúlumynstrið komi ekki alveg við hálsmálið). Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá réttu = 23-24-26-28-29-32 lykkjur. Heklið eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af að það verði alveg eins og bakstykkið. Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkju. VINSTRA FRAMSTYKKI: Notið heklunál 4,5 og 1 þráð í hvorri tegund. Heklið 45-48-51-55-60-65 loftlykkjur – munið eftir LOFTLYKKJA. Snúið stykkinu og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 42-45-48-52-57-62 stuðlar. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR þar til heklaðar hafa verið alls 6 umferðir. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið: A.1 yfir 2-5-5-3-6-9 lykkjur, heklið A.4 alls 4-4-4-5-5-5 sinnum, heklið A.3 yfir 8-8-11-9-11-13 lykkjur. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka er mynsturteikningin endurtekin á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 34-35-36-37-38-39 cm – stillið af eftir bakstykki svo að handvegur sé gerður í sömu umferð – klippið þráðinn og hoppið yfir 1-2-3-5-8-10 lykkjur í byrjun á umferð frá hlið, festið þráðinn með 1 keðjulykkju í næstu lykkju og heklið áfram yfir 41-43-45-47-49-52 lykkjur eins og áður, en stillið mynstrið af þannig að ekki sé heklað kúlumynstur yst við handveg. Lestu allan kaflann áður en þú heklar áfram! Þegar stykkið mælist 43-45-46-48-49-51 cm heklið A.1 yfir síðustu 22-22-23-23-24-24 lykkjur – mynstrið heldur áfram eins og áður yfir hinar lykkjurnar. Þegar stykkið mælist 45-47-48-50-51-53 cm, skiptist stykkið fyrir hálsmáli. Í næstu umferð frá réttu er heklað fram þar til 16-16-17-17-18-18 lykkjur eru eftir. Snúið stykkinu. Heklið 2 næstu lykkjur saman, heklið út umferðina eins og áður (stillið af að kúlumynstrið komi ekki alveg við hálsmálið). Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá réttu = 23-24-26-28-29-32 lykkjur. Heklið eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af að það verði alveg eins og bakstykkið. Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkju. ERMI: Notið heklunál 4,5 og 1 þráði í hvorri tegund (2 þræðir). Heklið 46-48-50-52-54-56 loftlykkjur. Snúið stykkinu og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju út umferðina = 43-45-47-49-51-53 stuðlar. Heklið A.1 yfir 19-20-21-22-23-24 lykkjur, heklið A.2, A.3 er heklað yfir 16-17-18-19-20-21 lykkjur. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 8 cm. Nú er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju innan við 1 lykkju í hvorri hlið. Aukið svona út með ca 8-5½-5½-5-4-4 cm millibili þar til aukið hefur verið út alls 5-7-7-8-9-9 sinnum í hvorri hlið = 53-59-61-65-69-71 lykkjur. Heklið áfram þar til ermin mælist 52 cm í öllum stærðum, stillið af að það séu minnst 2 umferðir án kúlumynsturs efst á ermi. Klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkju. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi í við handveg – sjá teikningu. Saumið hliðarsaum og saum neðanverðu á ermum í eitt. Saumið tölur í vinstri kant að framan – tölum er hneppt í gegnum kant að framan í hægri hlið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið heklunál 4,5 og 1 þráði í hvorri tegund (2 þræðir). Byrjið framan á hægra framstykki frá réttu og heklið kant fram og til baka í kringum hálsmálið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju um/í næstu lykkju *, heklið frá *-* fram að síðustu lykkju, það eru ca 36-37-38-39-41-43 loftlykkjubogar – endið með 1 fastalykkju í ystu lykkju á vinstra framstykki. UMFERÐ 2: Heklið 1 umferð þar sem heklaðir eru 2 stuðlar um hvern loftlykkjuboga (= ca 72-74-76-78-82-86 stuðlar). UMFERÐ 3-4: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #coconutgrovecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.