Susanne Daugaard skrifaði:
Hej tak for opskrift
14.10.2024 - 09:38
Julia skrifaði:
Laut Diagramm A1 werden 3x 5 Maschen in eine aufgenommen (drei Mal sind Sterne im Muster A1), aber im Foto sind ganz klar nur zwei zu sehen. Wenn ich es genau nach A1 stricke, bekomme ich auch eine "Raute" mehr und das Muster sieht insgesamt länger aus als auf dem Foto. Wie ist es richtig?
13.06.2024 - 23:56DROPS Design svaraði:
Liebe Julia, in diesem Video zeigen wir, wie man so ein Muster strickt, beachten Sie nur, daß diese Masche im Video 7 Mal (anstatt nur 5 Mal für die Socken) gestrickt wird, sonnst wird das Muster ziemlich gleich sein. Viel Spaß beim Stricken!
14.06.2024 - 07:42
Katharina Bauer skrifaði:
Habe mich in diese süßen Söckchen verliebt. Nach Anleitung stricken ist leider nicht mein Ding. Aber diese habe ich geschafft. Vielen, vielen Dank für das tolle Lochmuster. Werde gerne noch mal etwas nach Euren Anleitungen stricken. Alles Liebe Katharina
06.05.2024 - 13:38
Guri Joranger skrifaði:
Hvor er diagram a 1?
11.08.2023 - 20:34DROPS Design svaraði:
Hei Guri, Diagrammene finner du på bunn av sida. God fornøyelse!
16.08.2023 - 06:49
Κατερίνα Χαιρετάκη skrifaði:
Hello, how am I going to make the star at the diagram?
28.06.2023 - 20:00DROPS Design svaraði:
Hi :) Just work as explained under 3rd symbol, so that you will increase 4 sts in the stitch with the star (there are now 5 sts on needle). In this video for a similar pattern, we show at time code 2:30 how to work 7 times 1 stitch in the same stitch, work the same way but only 5 times to increase only 4 sts. Happy knitting!
29.06.2023 - 12:45
Marianne skrifaði:
Hej Jeg har svært ved at forstå a.1 Det er 10 masker pr “pind” altså den første linje. Hvis den strikkes rundt, giver det 40 masker hvad med de sidste 2 (8) ? 🧐
09.12.2022 - 22:03DROPS Design svaraði:
Hei Marianne. Usikker på hva du mener med de siste 2 (8), hvilken str. strikker du? A.1 strikkes over 6 masker, men når du følger diagrammet vi maskeantallet minske og når du strikker siste omgang av A.1, består A.1 av 5 masker. mvh DROPS Design
12.12.2022 - 14:21
Karen skrifaði:
Hi there I have a question regarding this part work rib (knit 1, purl 2) for 1-1-2 (2) cm. Does that mean I knit 1 and then I purl 2 together
31.08.2022 - 21:34DROPS Design svaraði:
Hi Karen, No, you knit 1, purl 2, knit 1, purl 2 to the end of the round, then repeat until you have reached the rib-length for your size. Happy knitting!
01.09.2022 - 06:44
Ingrid skrifaði:
Kunt u in simpele bewoordingen uitleggen hoe ik dit patroon moet breien? Ik heb inmiddels 2 cm boordpatroon gebreid en moet nu beginnen aan patroon A.1.
09.05.2022 - 16:45DROPS Design svaraði:
Dag Ingrid,
Na de boord brei je A.1 in de rondte (dus je herhaalt A.1 steeds in de breedte over de hele toer, dan brei je de volgende toer van A.1 en zo verder. Je leest A.1 van rechts naar links en van onder naar boven.
10.05.2022 - 08:30
Bellflower Socks#bellflowersocks |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað með gatamynstri og stroffprjóni. Stærð 1 mánaða – 2 ára.
DROPS Baby 43-12 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-6 (7) lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-6 (7) lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-5-5 (6) lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-5-5 (6) lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 8-10-10 (10) lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi og niður að tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 42-48-48 (54) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 1-1-2 (2) cm. Prjónið síðan A.1 yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 35-40-40 (45) lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 7-7-8 (8) cm. Prjónið sléttprjón þar til sokkurinn mælist 7-8-9 (10) cm. HÆLL OG FÓTUR: Haldið eftir fyrstu 18-20-20 (22) lykkjum á prjóni fyrir hæl og þær 17-20-20 (23) lykkjur sem eru eftir eru settar á þráð (ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3½-4-4½ (5) cm – setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – síðar á að mæla stykkið frá þessu prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 8-10-10 (10) hællykkjur, prjónið upp 9-10-12 (13) lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón yfir 17-20-20 (23) lykkjur af þræði ofan á fæti og aukið út um 1-0-0 (1) lykkju, prjónið upp 9-10-12 (13) lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 44-50-54 (60) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 18-21-21 (24) lykkjur ofan á fæti. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan fyrra prjónamerki og 1 lykkju á eftir seinna prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-7-8 (9) sinnum = 32-36-38 (42) lykkjur. Prjónið áfram þar til sokkurinn mælist 8-9-10 (12) cm frá prjónamerki á hæl. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 16-18-19 (21) lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-4-5 (6) sinnum = 8-8-6 (6) lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 11-12-13 (15) cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bellflowersocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.