Marianne Karlson skrifaði:
Har oppskriften fra før, men får ikke tak i 46 rose Trenger til kjolen og jakka. Kan dere hjelpe meg med det? Eventuelt gi meg forslag til alternativt garn? På forhånd takk for hjelpen.
06.06.2025 - 10:06DROPS Design svaraði:
Hei Marianne. Farge 46 rose, er dessverre utgått fra vårt sortiment. Men ta en titt på farge 49, ørkenrose eller 48 blush. Kanskje en av de vil passe. Ellers så må du kontakte butikker som selger DROPS Baby Merino og høre om de har noe igjen av farge 46, rose. mvh DROPS Design
10.06.2025 - 13:22
May Britt Olsen Gulløy skrifaði:
Ved montering, skal omgangens begynnelse være i siden, eller midt bak ?
21.04.2025 - 21:22DROPS Design svaraði:
Hej May, synes du det er finest at have overgangen i siden, så kan du gøre det :)
30.04.2025 - 13:05
Maria skrifaði:
Buongiorno se uso un filato più grosso di quello richiesto (C anziché A) posso usare il modello di una o 2 misure più piccole ? Magari tenendo conto di quante maglie entrano nei 10 cm di campione ? Grazie
30.04.2024 - 12:46DROPS Design svaraði:
Buonasera Maria, per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
01.05.2024 - 21:36
Katrine skrifaði:
Hvor finder jeg diagram a1? Når jeg scroller ned i bunden står der bare to vinduer med “diagram measurementa” som ikke kan åbnes?
10.07.2022 - 21:50DROPS Design svaraði:
Hej Katrine. Nu finns diagrammen där, tack för info! Mvh DROPS Design
12.07.2022 - 08:45
Hipp Hipp Hurra Dress#hipphipphurradress |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 6 mánaða – 6 ára.
DROPS Children 44-1 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. Fyrst er prjónaður mynsturbekkur með faldi og mynstri, síðan er pilsið prjónað áfram niður. Prjónaður er faldur neðst á kjólnum með mynstri. Böndin á öxlum eru prjónuð fram og til baka (frá hlið) og saumuð niður í lokin. Faldurinn er brotinn inn og saumaður að röngu á kjólnum. FALDUR (á mynsturbekk/belti): Fitjið upp 108-120 (132-144-156) lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum plóma. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur (uppábrot). Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð. MYNSTURBEKKUR/BELTI: Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist mynsturbekkurinn ca 11 cm og stykkið mælist alls ca 22 cm (meðtalinn faldur). PILS: HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Prjónið með litnum svartur þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 216-240 (264-288-312) lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. Prjónið sléttprjón hringinn þar til pilsið mælist 17-20 (23-27-29) cm – nú eru eftir ca 8 cm. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist pilsið ca 25-28 (31-35-37) cm. FALDUR (á pilsi): Prjónið með litnum svartur þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur (uppábrot). HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga að myndast göt. Prjónið A.3 yfir allar lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið stykkið með litnum svartur. Prjónið þar til faldurinn mælist 8 cm frá uppábroti, fellið síðan af. FRÁGANGUR: Brjótið niður faldinn efst á kjólnum að röngu að mynsturbekk/belti og saumið við kjólinn með litnum plóma – það á að sauma að umferð sem prjónuð er með litnum plóma á mynsturbekk/belti, ef faldurinn er of stuttur eða of langur er hægt að jafna þetta til, saumið þá með lit í þeirri umferð sem faldurinn er saumaður að mynsturbekk/belti. Gerið alveg eins í neðri kanti, en þá er saumað með litnum svartur. AXLABÖND: Axlaböndin mælast ca 30-34 (38-38-42) cm að lengd, þ.e.a.s. það eru reiknaðir ca 5 cm aukalega í hvorri hlið, þannig að hægt sé að lengja böndin eftir því sem barnið vex. Fitjaðu e.t.v. upp fleiri/færri lykkjur ef þú vilt hafa böndin lengri eða styttri (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 + 2). Fitjið upp 74-82 (90-90-98) lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum svartur. Böndin eru prjónuð fram og til baka í sléttprjóni. Prjónið 6 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (uppábrot). Prjónið A.4 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (kantlykkjur eru prjónaðar í sama lit og fyrsta/síðasta lykkja í A.4). Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið kant fyrir uppábrot frá röngu aftur með litnum svartur þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið ca 6 umferðir (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn), brjótið kantinn niður og passið uppá að faldur fyrir saum dragi ekki axlaböndin saman, prjónið e.t.v. fleiri umferðir. Fellið af. Saumið uppfitjunarkantinn saman við affellingarkant í ystu lykkjubogana. Prjónið annað axlaband alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið axlaböndin við fald fyrir saum efst (þ.e.a.s. frá röngu á mynsturstykki/belti) með fínu spori ca 5 cm niður í hvorri hlið, með ca 8-8 (9-10-10) cm millibili á milli axlabanda mitt að framan og mitt að aftan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hipphipphurradress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 44-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.