Hipp Hipp Hurra Jacket |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 6 mánaða – 6 ára.
DROPS Children 44-3 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Litamynstur er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við öll prjónamerki (8 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið lykkjuna með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður, síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað fram og til baka, prjónaður er faldur neðst á fram- og bakstykki sem brotinn er upp og saumaður upp við fram- og bakstykki. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir kant í hálsmáli og mynstur er prjónað fram og til baka í lokin. BERUSTYKKI: Fitjið upp 79-83 (91-95-95) lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum grár. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð slétt og aukið er út um 16-12 (20-16-24) lykkjur jafnt yfir = 95-95 (111-111-119) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Í næstu umferð frá réttu eru sett 4 prjónamerki í stykkið, 1. útaukning fyrir laskalínu er gerð og mynstur er prjónað þannig: VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 12-12 (16-16-20) lykkjur, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, setjið 1 prjónamerki. VINSTRI ERMI: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 16-16 (16-16-12) lykkjur, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, setjið 1 prjónamerki. BAKSTYKKI: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 24-24 (32-32-40) lykkjur, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, setjið 1 prjónamerki. HÆGRI ERMI: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir næstu 16-16 (16-16-12) lykkjur, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, setjið 1 prjónamerki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 yfir næstu 12-12 (16-16-20) lykkjur, A.2 og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með útaukningu hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 18-20 (21-22-24) sinnum = 239-255 (279-287-311) lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Prjónið þar til stykkið mælist 12-13 (14-15-16) cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 30-32 (36-38-42) lykkjur (= framstykki), setjið næstu 57-61 (65-65-69) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7 lykkjur undir ermi, prjónið A.1 yfir næstu 62-66 (74-78-86) lykkjur (bakstykki), setjið næstu 57-61 (65-65-69) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7 lykkjur undir ermi, A.1 yfir næstu 30-32 (36-38-42) lykkjur, A.2 og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 139-147 (163-171-187) lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með A.2 og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar fram- og bakstykki mælist 4-6 (5-7-7) cm frá skiptingu, stillið af að næsta umferð sé frá röngu, skiptið yfir í litinn ljós sægrænn og prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Næsta umferð (frá réttu) prjónið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni (uppábrot). Prjónið nú fald þannig: Í næstu umferð (frá röngu) aukið út um 2-0 (2-0-2) lykkjur jafnt yfir, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn = 141-147 (165-171-189) lykkjur. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (þessi lykkja er prjónuð í sama lit og A.4), prjónið A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir, A.4 og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (þessi lykkja er prjónuð í sama lit og A.4). Fellið af með grár þegar A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Faldurinn mælist ca 3 cm. FRÁGANGUR: Brjótið uppá faldinn neðst á peysunni að röngu og saumið fallega niður með litnum grár. ERMI: Setjið 57-61 (65-65-69) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-68 (72-72-76) lykkjur. Ermar eru prjónaðar í hring. Prjónið A.1 hringinn. Setjið 1 prjónamerki í miðju á 7 nýjum lykkjum. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1-1 (1½-1½-2) cm millibili alls 9-11 (11-11-10) sinnum = 46-46 (50-50-56) lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-17 (20-23-26) cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 10-10 (10-10-12) lykkjur jafnt yfir = 36-36 (40-40-44) lykkjur. Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 17-20 (23-26-29) cm frá skiptingu, skiptið yfir í litinn ljós sægrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur (uppábrot). Prjónið nú fald þannig: Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn. Prjónið A.7 hringinn. Prjónið með litnum grár þar til faldurinn mælist 3 cm frá uppábroti. Fellið af. Brjótið uppá faldinn neðst á ermi að röngu og saumið fallega niður með litnum grár. Prjónið hina ermina alveg eins. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 1 lykkju frá réttu í hverja lykkju í fyrstu umferð í hálsmáli (þ.e.a.s. umferð prjónuð slétt frá réttu) með litnum grár á hringprjón 3,5 = 79-83 (91-95-95) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (þessi lykkja er prjónuð í sama lit og A.6), prjónið A.5 þar til 2 lykkjur eru eftir (= 19-20 (22-23-23) sinnum á breidd), A.6 og 1 kantlykkja í garðaprjóni (þessi lykkja er prjónuð í sama lit og A.6). Þegar A.5 og A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist kantur í hálsmáli ca 3 cm. Næsta umferð prjónuð frá réttu með litnum ljós sægrænn þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni (uppábrot). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (þessi lykkja er prjónuð í sama lit og A.8), prjónið A.7 þar til 2 lykkjur eru eftir, A.8 og 1 kantlykkja í garðaprjóni (þessi lykkja er prjónuð í sama lit og A.8). Þegar A.7 og A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónuð 1 umferð sléttprjón með litnum grár og aukið út um 10 lykkjur jafnt yfir. Fellið af. FRÁGANGUR: Brjótið niður faldinn í hálsmáli að röngu á peysu og saumið fallega niður með litnum grár. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp ca 46 til 66 lykkjur frá réttu innan við 1 kantlykkju á framstykki með litnum ljós sægrænn á hringprjón 3,5, passið uppá að kanturinn sé ekki stífur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka. Fellið af. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið eins og vinstri kantur að framan, en í síðustu umferð eru gerð hnappagöt frá röngu þannig: Prjónið 8 lykkjur, fitjið upp 5 nýjar lykkjur (1 hnappagat), prjónið 10-12 (12-14-17) lykkjur slétt, fitjið upp 5 nýjar lykkjur (1 hnappagat), prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. FRÁGANGUR: Saumið tölur í innan við vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |