LAra skrifaði:
Hallo, habe ich richtig verstanden, dass die Rückseite etwas breiter ist als die Vorderseite?
21.08.2022 - 11:55DROPS Design svaraði:
Liebe Lara, also nein, Rückseite wird genauso breit wie Vorderseite (die gleichen Diagramme werden dafür gehäkelt - nur A.7/A.1 an einem Raglan anstatt A.4/A.6 bei den 3 anderen. Viel Spaß beim häkeln!
22.08.2022 - 09:54
Gina skrifaði:
HI, after I work A.1, A.2 4 times, A.3, A.4, A.5 and A.6, then A.2 4 times, A.3, A.4, A.5 and A.7 I have only 128 stitches for size small. How do I get to 208? Do I repeat? Thank you
08.08.2022 - 19:15DROPS Design svaraði:
Dear Gina, after you have worked the diagrams in height you have: A.1 (= 15 sts), * A.2 (=10 sts) 4 times in total (= 40 sts), A.3 (=3 sts), A.4 (=26sts), A.5 (=9 sts) (=40+3+26+9= 78sts)*, A.6 (=26 sts), work from *-* (=78sts) 1 more time and finish with A.7 (=11 sts). You have now 15+78+26+78+11=208 sts. Happy crocheting!
09.08.2022 - 08:47
Gina skrifaði:
Hi, I am confused about the yoke. How many times is this round repeated: Work A.1, * A.2 4-5-5-6-6-7 times in total, A.3, A.4, A.5 *, A.6, work from *-* 1 more time and finish with A.7.\r\nAfter one round I have 124 stitches (size S). Thank you
07.08.2022 - 19:50DROPS Design svaraði:
Dear Gina, work A.1, A.2 4 times, A.3, A.4, A.5 and A.6, then A.2 4 times, A.3, A.4, A.5 and A.7. Happy knitting!
07.08.2022 - 23:45
Edith skrifaði:
Bij de uitleg van de steken in Telpatroon wordt 2 x een symbool gebruikt, maar deze worden bij mij niet weergegeven. Er staat alleen het woordje “symbool”. De eerste kan ik zelf bedenken, maar wat is de tweede?
17.07.2022 - 11:35DROPS Design svaraði:
Dag Edith,
Vermoedelijk werd de pagina niet goed geladen, hopelijk heb je inmiddels het symbool in beeld. Anders even op F5 of Ctrl + F5 drukken.
24.07.2022 - 12:00
Edith skrifaði:
Bij Telpatroon (uitleg van de steken) is bij de tweede bobbel het eerste sterretje vergeten: moet na “haak 3 lossen” en voor “maak 1 omslag”
17.07.2022 - 11:31
Annette skrifaði:
Ich frage mich, wie drei Luftmaschen am Reihenende ein Stäbchen ersetzen können. Am Reihenanfang ist ja eine Kettmasche die Basis. Am Reihenende ergibt sich für mich da nur ein großes Loch. \r\nSchade, dass Sie auf meine letzte Frage auch noch nicht geantwortet haben. Ich würde einfach gerne verstehen, wo ich da einen Denkfehler habe. \r\nDanke
24.06.2022 - 09:32DROPS Design svaraði:
Liebe Annette, Ihre letzte Frage wurde unser Design Team weitergeleitet; damit das Muster nicht versetzt wird, werden die 3 ersten Lm am Anfang der Runde entweder die 1. Masche oder die letzte Masche. Viel Spaß beim häkeln!
24.06.2022 - 13:10
Annette skrifaði:
Ich verstehe Ihre Rechnung nicht. Laut Anleitung häkel ich doch in S zuerst einmal A1-A7 in der gesamten Höhe, dann noch A1a-A7a komplett und dann noch 5 Reihen von A1a-A7a. So lese ich das. Bitte rechnen sie mir das einmal vor. Ich gehe davon aus, das die Raglanzunahmen jeweils 2 Maschen neben den Noppen sind. Also 8 Maschen pro Runde.Das Muster kam nämlich auch, wie in den Diagrammen gezeichnet, immer aus. Sorry!
20.06.2022 - 21:59DROPS Design svaraði:
Liebe Annette, nach der 6. Reihe in A.4/A.6 haben Sie 18 Maschen in diesen Diagramme (bei der 1. Reihe werden diese Diagramme über 6 Maschen gehäkelt) = 12 Zunahmen in jedem A.4/A.6. Diese Diagramme A.4/A.6 häkeln Sie insgesamt, so haben Sie 4 Mal x 12 Maschen zugenommen: 208+48=256 Maschen. Viel Spaß beim häkeln!
29.06.2022 - 10:42
Annette skrifaði:
Stimmen die angegebenen Maschenzahlen? Wenn das Muster 1 X in der Höhe gehäkelt wurde sind es in Größe S 208 Maschen und nach den 80 Maschen Rapportzunahmen immer noch 208?
17.06.2022 - 23:10DROPS Design svaraði:
Liebe Annette, in S häkeln Sie 1x die Diagramme dann die 5 ersten Runden = 256 Maschen. Die Arbeit misst jetzt ca 20 cm. Viel Spaß beim häkeln!
20.06.2022 - 08:55
Annette skrifaði:
Die Häkelanleitung ist nach den ersten 13 cm unglücklich formuliert. Einfacher zu verstehen wäre es, wenn geschrieben Stände, dass man nun mit dem Muster nach Diagramm A1a fortfahren muss.
09.06.2022 - 11:49DROPS Design svaraði:
Liebe Annette, nach den ersten 13 cm sollen Sie auch die Noppen häkeln, also Sie wiederholen die Diagramme wie zuvor aber nur mit den "a" Teil. Viel Spaß beim häkeln!
09.06.2022 - 13:33
Annette skrifaði:
Hallo noch einmal. Das Problem mit den Noppen habe ich erkannt. Um die LM muss ich häkeln. Ich verstehe nur den Hinweis bezüglich des Lochmusters nicht. Ich bin in Reihe 7 und bisher geht alles auf.
06.06.2022 - 15:30DROPS Design svaraði:
Liebe Annette, dies brauchen Sie später, wenn die Raglanzunahmen fertig sind, und wenn dann das Muster nicht immer beim Raglan schön passt, dann häkeln Sie einfach das Lochmuster anstatt das Muster mit Noppen, dh mit nur Stäbchen und Luftmaschen. Viel Spaß beim häkeln!
07.06.2022 - 10:11
Cloud Catcher#cloudcatchersweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri, kúlum og sólfjaðramynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-32 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Í hverri umferð sem byrjar með stuðlum, er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Í hverri umferð sem byrjar með fastalykkjum, er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Þegar gatamynstrið er heklað (þ.e.a.s. stuðlar og loftlykkjur) er heklað þannig: Þegar umferðin byrjar með 1 stuðli, er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Þegar umferðin byrjar með 1 loftlykkju, er síðasta stuðli skipt út frá fyrri umferð með 3 loftlykkjum þannig: Heklið 3 loftlykkjur (kemur í stað síðasta stuðul), 1 loftlykkja (fyrsta loftlykkja í mynstri), hoppið yfir síðasta stuðul og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju, heklið 1 fastalykkju um fyrstu loftlykkju (þetta er gert til að umferðin færist ekki til). GATAMYNSTUR: Mynstrið er heklað þegar mynsturteikningin gengur ekki jafnt upp yfir laskalínu og undir ermi þannig: UMFERÐ 1: Heklið * 1 stuðul um næstu loftlykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul *, heklið frá *-*. UMFERÐ 2: Heklið * 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðull um næstu loftlykkju *, heklið frá *-*. Stillið af hvaða umferð er byrjað á miðað við mynstur í mynsturteikningu. ÚTAUKNING: Aukið út í lykkju mitt undir ermi þannig: Stillið af að síðasta umferðin sé umferð þar sem lykkjan mitt undir ermi er hekluð sem 1 loftlykkja. Um þessa loftlykkju er heklaður 1 stuðull, 1 loftlykkja og 1 stuðull um sömu loftlykkju (= 1 loftlykkjubogi fleiri). Aukið svona út í hvorri hlið (= alls 2 loftlykkjubogar fleiri). ÚRTAKA (á við um ermar): Heklið 2 fyrstu / síðustu stuðla í umferð saman þannig: Heklið 1 stuðul en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, hoppið yfir 1 stuðul (þ.e.a.s. það er ekki hekluð nein loftlykkja), 1 stuðull um næstu loftlykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull og 1 loftlykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið og ermar halda áfram í hring hvert fyrir sig. BERUSTYKKI: Heklið 84-86-90-98-100-104 loftlykkjur - sjá LOFTLYKKJA í útskýringu að ofan, með heklunál 4 með DROPS Cotton Merino og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan mynstur þannig: Umferðin byrjar í skiptingunni á milli vinstri ermi og bakstykkis. Heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju og aukið út um 0-14-10-18-16-28 stuðla jafnt yfir = 84-100-100-116-116-132 lykkjur. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1, * A.2 alls 4-5-5-6-6-7 sinnum, A.3, A.4, A.5 *, A.6, heklið *-* 1 sinni til viðbótar og endið með A.7. Haldið svona áfram með mynstrið. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar mynstrið hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 208-228-228-248-248-268 lykkjur í síðustu umferð (kúlurnar eru taldar sem 1 lykkja). Stykkið mælist ca 13 cm. STÆRÐ S-M-L-XL: Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1a um loftlykkjubogann á milli 2 fyrstu kúlna, * A.2a alls 5-6-6-7 sinnum á breiddina, A.3a, A.8a, A.4a um loftlykkjubogann á milli 2 næstu kúlna, A.9a, A.5a, A.10a *, A.6a um loftlykkjubogann á milli 2 næstu kúlna, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með A.7a. Heklið fyrstu 5-5-8-9 umerðir í mynstri á hæðina. Í næstu umferð (þ.e.a.s. 6.-6.-9.-10. umferð í mynstri) er kúlunum skipt út í laskalínu (þ.e.a.s. 2 fyrstu kúlurnar í A.1a og mitt í A.4a og A.6a) með stuðlum (þ.e.a.s. 1 kúla = 1 stuðull) = 256-276-300-328 lykkjur. STÆRÐ XXL-XXXL: Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1a um loftlykkjubogann á milli 2 fyrstu kúlna, * A.2a alls 7-8 sinnum á breiddina, A.3a, A.8a, A.4a um loftlykkjubogann á milli 2 næstu kúlna, A.9a, A.5a, A.10a *, A.6a um loftlykkjubogann á milli 2 næstu kúlna, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með A.7a. Haldið svona áfram með mynstur. Í hvert skipti sem A.1a, A.4a, A.6a og A.7a er endurtekið á hæðina, heklið 1 mynstureiningu fleiri af A.2a og A.8a á breiddina á framstykki/bakstykki og 1 mynstureiningu fleiri af A.9a og A.10a á breiddina á hvorri ermi (þ.e.a.s. aukið út um 80 lykkjur í 1 endurtekningu á hæðina). Heklið A.1a til A.7a alls 2-2 sinnum á hæðina = 328-348 lykkjur. Heklið fyrstu 2-4 umferðir af mynstri 1 sinni til viðbótar á hæðina. Í næstu umferð (þ.e.a.s. 3.-5. umferð í mynstri) er kúlunum skipt út í laskalínu (þ.e.a.s. 2 fyrstu kúlurnar í A.1a og mitt í A.4a og A.6a) með stuðlum (þ.e.a.s. 1 kúla = 1 stuðull) = 352-388 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Stykkið mælist ca 20-20-23-24-28-30 cm. Heklið mynstur eins og áður, en yfir A.1a, A.4a, A.6a og A.7a er heklað GATAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan og lesið HEKLLEIÐBEININGAR = 252-272-296-324-348-384 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. Þ.e.a.s. heklið gatamynstur þar sem mynstrið gengur ekki jafnt upp og gatamynstur og kúlur eftir mynsturteikningu eins og áður yfir lykkjur á bakstykki/framstykki og ermum. Þegar stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm klippið þráðinn frá. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Byrjið á að telja frá miðjulykkju á bakstykki (þ.e.a.s. mitt á milli 2 laskalína), teljið 37-40-43-47-51-57 lykkjur að þeim stað sem var byrjun á umferð (þ.e.a.s. teljið aftur á bak), næsta umferð byrjar í / um næstu lykkju. Heklið 1 fastalykkju í /um næstu lykkju, 3 loftlykkjur og heklið mynstur eins og áður yfir næstu 74-80-86-94-102-114 lykkjur (bakstykki), hoppið yfir næstu 51-55-61-67-71-77 lykkjur fyrir ermi og heklið 10 loftlykkjur undir ermi, heklið mynstur eins og áður yfir næstu 75-81-87-95-103-115 lykkjur (framstykki), hoppið yfir síðustu 51-55-61-67-71-77 lykkjur fyrir ermi (ásamt fyrstu 0-1-1-3-3-3 lykkjum sem hoppað var yfir) og heklið 11-10-10-10-10-10 loftlykkjur undir ermi og endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 170-182-194-210-226-250 lykkjur. Í næstu umferð er mynstur heklað eins og áður. Gatamynstur er heklað yfir lykkjur sem voru heklaðar undir ermum og yfir lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri sem er búið að byrja á. Heklaðu e.t.v. blómakúlur yfir lykkjur sem ganga jafnt upp í mynstri undir ermi, ef þig langar til. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 loftlykkjuboga í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 4-4-4-3-2½-2½ cm millibili alls 3-4-4-5-6-6 sinnum = 182-198-210-230-250-274 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, útauknar lykkjur eru heklaðar í gatamynstri eins og þær lykkjur sem eftir eru og ganga ekki jafnt upp í mynsturteikningu. Þegar stykkið mælist 20-20-21-21-21-21 cm, heklið blómakúlur sem nú þegar hefur verið byrjað á, heklið síðan stykkið í gatamynstri. Þegar fram- og bakstykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá skiptingu, heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul um hverja loftlykkju. Klippið þráðinn og festið. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í 5. loftlykkju af 10 loftlykkjum sem voru heklaðar undir ermi, 3 loftlykkjur, heklið gatamynstur yfir lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynsturteikningu, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir lykkjur mitt ofan á ermi og heklið gatamynstur yfir síðustu lykkjur í umferð sem ekki ganga jafnt upp í mynsturteikningu, endið umferð með 1 loftlykkju/stuðul aukalega þannig að gatamynstrið gangi jafnt upp hringinn = 62-66-72-78-82-88 lykkjur. Heklaðu e.t.v. blómakúlur yfir lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri undir ermi, ef þú vilt. Kúlur sem ekki ganga jafnt upp í heila blómakúlu er skipt út fyrir 1 stuðul. Haldið svona áfram hringinn. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju undir ermi. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi í byrjun á næstu umferð – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona til skiptis í byrjun og í lok umferðar með 4-3-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 7-9-11-14-15-16 sinnum = 48-48-50-50-52-56 lykkjur. Þegar ermin mælist 31-30-29-27-26-24 cm frá skiptingu, heklið blómakúlur sem nú þegar hefur verið byrjað á til loka, heklið síðan stykkið í gatamynstri. Þegar ermin mælist 40-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu, heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul um hverja loftlykkju. Klippið þráðinn og festið. Ermin mælist ca 41-40-39-37-36-34 cm frá skiptingu. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið kant í kringum hálsmál með því að hekla 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið þráðinn og festið. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cloudcatchersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.