DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Summer Sunset

Hekluð hringpeysa úr DROPS Paris. Stykkið er heklað með röndum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-33
DROPS Design: Mynstur w-873
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - L/XL - XXL/XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-250 g litur 63, eyðimerkurrós
100-100-100 g litur 65, ryð
600-650-700 g litur 17, natur
100-100-100 g litur 28, sjávarblár
50-50-50 g litur 09, kóngablár

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5,5.

HEKLFESTA:
13 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
Ca 13 lykkjur og 6 umferðir á hæðina með mynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7392.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju / hálfur stuðull / stuðull.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.

RENDUR:
UMFERÐ 1-2: Heklið með litnum eyðimerkurrós.
UMFERÐ 3: Heklið með litnum ryð.
UMFERÐ 4-5: Heklið með litnum natur.
UMFERÐ 6-7: Heklið með litnum sjávarblár.
UMFERÐ 8: Heklið með litnum kóngablár.
UMFERÐ 9-10: Heklið með litnum natur.
UMFERÐ 11-20: Heklið eins og umferð 1-10.
UMFERÐ 21-30: Heklið eins og umferð 1-10.

ÚRTAKA (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 336 stuðlar), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 28.
Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að hekla 27. og 28. hvern stuðul í 1 stuðul.
Fækkið um 1 stuðul þannig:
* Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar, en þegar bregða á þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju á hring (= mitt að aftan). Þegar hringurinn hefur verið heklaður til loka, heklið hægra og vinstra hliðarstykki. Hliðarstykkin eru hekluð fram og til baka. Síðan er heklaður kantur í kringum allan hringinn og hliðarstykkin. Að lokum eru ermar heklaðar í hring, ofan frá og niður.

HRINGUR:
Heklið 5 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 5,5 með litnum eyðimerkurrós í DROPS Paris og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í 5. loftlykkju. Heklið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan og mynstur þannig:
Heklið A.1 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.2 alls 8 sinnum umferðina hringinn.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 56 loftlykkjubogar í umferð (= 224 lykkjur) og stykkið mælist ca 42 cm að þvermáli.

Heklið nú handveg þannig:
Heklið 1 keðjulykkju um næsta loftlykkjuboga, heklið síðan A.3a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.3b um fyrstu 7-8-8 loftlykkjuboga, heklið 28-32-36 lausar loftlykkjur og hoppið yfir næstu 7-8-9 loftlykkjuboga fyrir handveg, heklið A.3b þar til eftir eru 14-15-17 loftlykkjubogar í umferð, heklið 28-32-36 lausar loftlykkjur og hoppið yfir næstu 7-8-9 loftlykkjuboga fyrir handveg, heklið A.3b yfir síðustu 7-7-8 loftlykkjuboga.
Haldið síðan áfram hringinn með A.3a og A.3b, en yfir 28-32-36 lausar loftlykkjur eru heklaðar 7-8-9 mynstureiningar með A.3b. Í síðustu umferð er jafnframt fækkað um 12 stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 324 stuðlar.
Heklið nú þannig: Heklið A.4a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), A.4b umferðina hringinn. Þegar A.4a og A.4b hefur verið heklað til loka eru 162 loftlykkjubogar í umferð. Stykkið mælist ca 100 cm að þvermáli.
Stærð S/M er nú lokið – heklið áfram eins og útskýrt er að neðan. Heklið eins og útskýrt er í stærð L/XL og XXL/XXXL ef óskað er eftir að stykkið verði lengra (nú er eftir kantur ca 8 cm mitt að aftan).
Klippið þráðinn.
Í stærð L/XL og XXL/XXXL er heklað þannig:

STÆRÐ L/XL og XXL/XXXL:
Heklið með litnum natur.
Heklið A.5b umferðina hringinn – hver umferð byrjar með 3 loftlykkjum og endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð (= kemur í stað fyrsta stuðul í fyrstu umferð og síðasta stuðul í síðustu umferð).
Heklið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu alls 1-2 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 06-113 cm að þvermáli. Klippið þráðinn.

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið nú einungis yfir 49 loftlykkjuboga í hvorri hlið. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig, án þess að hekla: Hoppið yfir fyrstu 16-17-17 loftlykkjuboga (= upp við hnakka), setjið eitt prjónamerki í næsta loftlykkjuboga, hoppið yfir næstu 47 loftlykkjuboga, setjið eitt prjónamerki í næsta loftlykkjuboga (= vinstri hlið), hoppið yfir næstu 32-31-30 loftlykkjuboga (= niður á fram- og bakstykki), setjið eitt prjónamerki í næsta loftlykkjuboga, hoppið yfir næstu 47 loftlykkjuboga, setjið eitt prjónamerki í næsta loftlykkjuboga (= hægri hlið), nú eru 16-16-17 loftlykkjubogar eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= upp við hnakka).

VINSTRI HLIÐ:
= 49 loftlykkjubogar. Öll vinstri hliðin er hekluð með litnum natur og heklað er fram og til baka. Byrjið frá réttu í loftlykkjuboga með prjónamerki, festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í loftlykkjubogann og heklið þannig:
Heklið A.5a yfir fyrstu 2 loftlykkjubogana, A.5b yfir næstu 45 loftlykkjuboga, A.5c yfir síðustu 2 loftlykkjuboga.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðir á hæðina 2 sinnum til viðbótar (= alls 6 umferðir á hæðina). Klippið þráðinn og festið.

HÆGRI HLIÐ:
Heklið á sama hátt og vinstri hlið – byrjið frá réttu í loftlykkjuboga með prjónamerki.

KANTUR:
Heklið kant frá réttu, í kringum allan hringinn og hliðarstykkin. Byrjið með litnum natur og festið þráðinn með 1 keðjulykkju í byrjun á umferð frá heklaða hringnum (= upp við hnakka).
UMFERÐ 1: Heklið eins og útskýrt er í 10. umferð í A.1 og A.2 umferðina hringinn (= A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). Meðfram hliðar mynsturteikningu á hægri og vinstri hlið (þ.e.a.s. A.5a og A.5c) eru heklaðar ca 5 mynsturteikningar með (2 stuðlum + 3 loftlykkjur = fyrstu 5 lykkjur í 10. umferð í A.2) jafnt yfir = ca 170 loftlykkjubogar í umferð.
UMFERÐ 2-3: Skiptið yfir í litinn eyðimerkurrós og heklið með A.7a og A.7b.
UMFERÐ 4: Skiptið yfir í litinn ryð. Heklið næstu umferð í A.7a og A.7b.
UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn natur: Heklið síðustu umferð í A.7a og A.7b. Klippið þráðinn og festið.

ERMI:
Ermar eru heklaðar í hring frá handvegi og niður með litnum natur og með heklunál 5,5.
Festið þráðinn með 1 keðjulykkju mitt undir hægri ermi og heklið þannig: Heklið A.6a (= sýnir hvernig umferðin byrjar og endar) yfir fyrstu 2 loftlykkjuboga, A.6b um hvern af næstu 5-6-7 loftlykkjubogum upp að toppi á ermi, haldið áfram með 5-6-7 mynstureiningar A.6b um loftlykkjuboga sem voru heklaðir fyrir handveg og endið með A.6c um síðustu 2 loftlykkjuboga = 14-16-18 einingar með 3 stuðlum + 1 loftlykkju fyrir ermi. Haldið svona áfram hringinn – lykkjum er fækkað eins og útskýrt er í A.6a og A.6c. Í umferð með stjörnu í mynsturteikningu (= umferð með stuðlum) er fækkað um 4-8-8 stuðla jafnt yfir í umferð – munið eftir ÚRTAKA = 42-46-54 stuðlar í umferð.
Þegar öll mynsturteikningin hefur verið hekluð á hæðina, heklið mynsturteikningu frá umferð með ör upp að umferð á undan umferð með stjörnu. Endurtakið síðan 2 umferðir á undan umferð með stjörnu þar til ermin mælist ca 26-27-28 cm – eða að óskaðri lengd (nú er eftir kantur ca 7 cm að loka máli). Stillið af að endað sé eftir umferð á undan umferð með stjörnu, þannig að mynstrið á kanti sem á að hekla gangi jafnt upp.
Heklið nú kant þannig:
UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn eyðimerkurrós. Heklið umferð með stjörnu í A.6a til A.6c = 34-38-46 stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið næst síðustu umferð í A.6a til A.6c.
UMFERÐ 3. Skiptið yfir í litinn ryð. Heklið síðustu umferð í A.6a til A.6c.
UMFERÐ 4: Skiptið yfir í litinn natur. Heklið umferð með ör í A.6a til A.6c.
Klippið þráðinn og festið. Ermin mælist ca 33-34-35 cm. Heklið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.03.2023
Leiðrétting: EFNI:...100-100-100 g litur 28, sjávarblár, 50-50-50 g litur 09, kóngablár
Yfirfarið á vefsvæði: 21.04.2023
ERMI:..Í umferð með stjörnu í mynsturteikningu (= umferð með stuðlum) er fækkað um 4-8-8 stuðla jafnt yfir í umferð – munið eftir ÚRTAKA = 42-46-54 stuðlar í umferð...

Mynstur

symbols = byrjið hér – þessi loftlykkjuhringur er útskýrður í uppskrift. Haldið áfram frá tákni yfir punkti á hring og heklið til vinstri
symbols = 1 loftlykkja - ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju / hálfur stuðull / stuðull.
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga / loftlykkjuhring
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan
symbols = í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar 3 loftlykkjur koma í stað síðasta stuðul í umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar 3 loftlykkjur koma í stað síðasta stuðul í umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur (= koma ekki í stað fyrsta stuðul). Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð
symbols = byrjið í þessari umferð. Fyrri umferð hefur nú þegar verði hekluð
symbols = heklið 2 stuðla saman um loftlykkjubogann þannig: Heklið 1 stuðul um loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul til viðbótar um sama loftlykkjuboga, en þegar þræðinum er brugðið um heklunálina í lokin og uppslátturinn dreginn í gegn á að draga þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri)
symbols = 1 hálfur stuðull
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju
symbols = 1 keðjulykkja í loftlykkju
symbols = byrjið á næstu umferð, þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Ginette Merckx wrote:

Country flag Gigi wrote: Ik begrijp de boord afwerking niet ! Boord een en terug is gedaan… maar dan Hoe moet ik de boord afwerken ? En waar beginnen als je 6 toeren heen een terug hebt ????

18.04.2024 - 09:11

country flag Gigi wrote:

Country flag Gigi wrote: Ik begrijp de boord afwerking niet ! Boord een en terug is gedaan… maar dan Hoe moet ik de boord afwerken ? En waar beginnen als je 6 toeren heen een terug hebt ????

17.04.2024 - 13:09

country flag Marianne Kristoffersen wrote:

Hej, när jag har gjort min ring med fem luftmaskor så kan jag inte hitta hur många maskor det ska vara runt ringen. Komplicerat mönster, Mvh Marianne Kristoffersen

14.04.2024 - 17:53

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Du starter med å hekle 5 luftmasker og setter de en en ring. For å finne ut hvilken farger du skal hekle med, les STRIPER. Når du har satt de 5 luftmaskene i en ring hekler du etter diagram A.1 (A.1 viser hvordan omgangen starter og slutter), deretter hekles A.2 totalt 8 ganger rundt på omgangen / rundt ringen. Altså, hekle 3 luftmasker(=1 stav), deretter hekles det 2x8 staver (=16 staver om ringen). Avslutt omgangen med 1 kjedemaske i 3. luftmaske på begynnelsen av omgangen. mvh DROPS Design

15.04.2024 - 14:33

country flag MARIANNE KRISOTFFERSEN wrote:

Varför finns det en förklaring med luftmaskan?? --- VAD ÄR DET FÖR UPPDATERING med garnet marinblå och blå? DET ÄR JU LIKADANT som i beskrivningen!!! Uppdaterad online: 08.03.2023 Rättelse GARNÅTGÅNG: ... 100-100-100 g färg 28, marinblå 50-50-50 g färg 09, kungsblå

12.04.2024 - 18:34

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Det fins en forklaring på 1 luftmaske slik at man hekler den riktig. Det er fort gjort å hekle for stramt, lar "løkken" bli like stram som hakket rett under kroken istedenfor tykkelsen på selve heklenålen (den lange delen). Da oppskriften ble publisert var det en annen garnmengde, og dersom noen har skrevet ut oppskriften med feil garnmengde kan de se at garnmengden er blitt forandret 08.03.2023. Etter denne datoen vil riktig garnmengde stå i selve oppskriften og under rettelse linken. mvh DROPS Design

15.04.2024 - 13:14

country flag Ineke wrote:

Het aantal steken klopt niet

13.07.2023 - 14:56

country flag Ineke wrote:

Mijn cirkel is af, maar ik heb veel meer steken. 240 Hoe moet ik dan beginnen met de zijkanten? Welke steken verhouding? Ik heb deze vraag een paar weken geleden ook al gesteld!

13.07.2023 - 14:55

DROPS Design answered:

Dag Ineke,

Komt jouw stekenverhouding in de breedte verder wel overeen met die van het patroon? Dan zou je het te veel aan steken evenredig kunnen verdelen over de steken tussen de armsgaten, dus aan de bovenkant bij de hals en aan de onderkant van de cirkel. Het aantal te haken lossen en steken die over slaat voor de armsgaten blijft wel gelijk.

13.07.2023 - 19:40

country flag Pate wrote:

Piirroksen a6 tähdellä merkityn pylväskerroksen jälkeen pylväitä on s-koossa 44, mutta seuraavan kerroksen lopetus ei sovi tähän pylväsmäärään, vaan se on sovitettu 46 pylvääseen. Tämä vaikuttaa koko loppuhihan pylväsmääriin, ja hihasta tulee leveämpi kuin ohjeessa. Onko ohjeessa virhe ja miten hiha kuuluu virkata 44:n pylvään kerroksen jälkeen?

06.03.2023 - 15:28

DROPS Design answered:

Hei, tarkistamme ohjeen ja teemme siihen tarvittaessa korjauksen.

16.03.2023 - 19:13

country flag Lisa wrote:

Als je naar het originele patroon kijkt moet toer 4 en 5 naturel zijn en niet woestijnroos. Tip;,Mocht je breed geschouderd zijn raad ik je aan om de grootste maat te haken. Die valt bij mij normaal (misschienntikkienstrak terwijl ik maat L/XL heb shirt/vest maat. Erg leuk patroon met veel afwisseling. Mijn eerste patroon die ik volg en probeer en het is met een beetje puzzelen goed te doen. Ik ben nu bij toer 21, dus nog wel een stuk te gaan :)

21.01.2023 - 00:45

country flag Silvia wrote:

Goedendag, \r\n\r\nIn het patroon onder het kopje strepen staat toer 4-5 woestijnroos, maar als je naar de foto kijkt dan is toer 4-5 naturel.\r\nDit klopt ook met het aantal bollen garen denk ik, want naturel heb ik het meeste van gekocht!!!!

29.10.2022 - 23:51

country flag Jeannine wrote:

Guten Tag, wie viele Stäbchen gehören in den Ring? Finde nirgends eine Angabe. Häkelschrift kann ich lesen, aber werde auch leider aus dieser nicht schlau. Lg

19.09.2022 - 10:26

DROPS Design answered:

Liebe Jeannine, A.2 wird 8 Mal in der Runde gehäkelt, bei der 1. Runde in A.2 häkeln Sie 2 Stäbchen x 8 Rapporte = 16 Stb nach der 1. Runde. Viel Spaß beim häkeln!

19.09.2022 - 11:28