Robi skrifaði:
Buon giorno, come è possibile, dopo aver diviso il cuore (piccolo) e aumentato a 23 maglie, che il quarto giro sia a diritto? Grazie
28.12.2023 - 10:34DROPS Design svaraði:
Buongiorno Robi, dopo la divisione le due parti si lavorano in tondo. Buon lavoro!
30.12.2023 - 10:48
Morganmagic skrifaði:
Blijven de patronen nadien ook beschikbaar? ik raak eindeloos achter maar wil zoveel nog wel maken...
15.12.2021 - 21:11DROPS Design svaraði:
Dag Morganmagic,
Ja hoor, de patronen blijven gewoon op de site staan. Ieder patroon heeft een nummer, dus je kunt hem zo weer opzoeken. Je kunt ook patronen toevoegen aan een eigen lijst met favorieten, door het hartje helemaal bovenaan de pagina te gebruiken.
20.12.2021 - 16:49
Winter's Love#dropswinterslove |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð hjörtu úr DROPS Merino Extra Fine. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1556 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Prjónið að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (prjónamerki situr í þessari lykkju), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við bæði prjónamerkin. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HJÖRTU - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hjörtun er prjónuð í hring á sokkaprjóna frá botni og upp. LÍTIÐ HJARTA: Fitjið upp 6 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Merino Extra Fine. UMFERÐ 1: Prjónið slétt, setjið 2 prjónamerki í stykkið, setjið þau í 2. og 5. lykkju í umferð. UMFERÐ 2: Prjónið slétt og aukið út 2 lykkjur við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 3: Prjónið slétt. Prjónið eins og umferð 2 og 3 þar til útaukningar hafa verið gerðar alls 8 sinnum á hæðina = 38 lykkjur og síðasta umferð er umferð án uppsláttar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fléttið 2 lykkjur mitt að framan og 2 lykkjur mitt að aftan á hjarta þannig: UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur og aukið út hvoru megin við fyrri lykkjuna sem er með prjónamerki, prjónið 8 lykkjur. * Næstu 2 lykkjur eru fléttaðar til að koma í veg fyrir göt þegar stykkið skiptist síðar, þetta er gert þannig: Setjið næstu lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni *, prjóni sléttar lykkjur og aukið út hvoru megin við lykkju með prjónamerki, prjónið 8 lykkjur, prjónið frá *-* og prjónið að byrjun á umferð. Það eru 42 lykkjur í umferð. Nú skiptist stykkið þannig: UMFERÐ 5: Prjónið slétt og umferðin endar mitt á milli 2 síðustu lykkja sem voru fléttaðar saman. Síðan er prjónað yfir næstu 21 lykkjur í umferð, setjið þær 21 lykkjur sem eftir eru á þráð. Hjartað skiptist mitt í fléttunni í hvorri hlið og hjartað er prjónað til loka í 2 hlutum héðan. UMFERÐ 1: Prjónið slétt og aukið út um 2 lykkjur við prjónamerki = 23 lykkjur. UMFERÐ 2-3: Prjónið slétt. UMFERÐ 4: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið fram að 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið yfir 2 næstu lykkjum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunum yfir prjónuðu lykkjuna. Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og prjónið 2 lykkjur slétt saman = 19 lykkjur. UMFERÐ 5: Prjónið slétt. Prjónið eins og umferð 4 þar til eftir eru alls 7 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum síðustu lykkjurnar. Herðið á þræði og festið vel. Fyllið hjartað með vatti áður en hinn hlutinn er prjónaður. Setjið til baka 21 lykkjur af þræði á sokkaprjóna og prjónið eins og fyrri hluti, passið uppá að fylla hjartað með vatti á meðan prjónað er. FRÁGANGUR: Þræðið þráð í gegnum lykkjur frá uppfitjunarkanti, herðið á þræði þannig að opið neðst niðri lokist. Festið þráðinn vel. Saumið e.t.v. eitt spor eða tvö í miðju þar sem hjartað skiptist. STÓRT HJARTA: Fitjið upp 6 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Merino Extra Fine. UMFERÐ 1: Prjónið slétt, setjið 2 prjónamerki í stykkið, setjið þau í 2. og 5. lykkju í umferð. UMFERÐ 2: Prjónið slétt og aukið út 2 lykkjur við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 3: Prjónið slétt. Prjónið eins og umferð 2 og 3 þar til útaukningar hafa verið gerðar alls 11 sinnum = 50 lykkjur og síðasta umferð er umferð án uppsláttar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fléttið 2 lykkjur mitt að framan og 2 lykkjur mitt að aftan á hjarta þannig: UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur og aukið út hvoru megin við fyrri lykkjuna sem er með prjónamerki, prjónið 8 lykkjur. * Næstu 2 lykkjur eru fléttaðar til að koma í veg fyrir göt þegar stykkið skiptist síðar, þetta er gert þannig: Setjið næstu lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni *, prjóni sléttar lykkjur og aukið út hvoru megin við lykkju með prjónamerki, prjónið 8 lykkjur, prjónið frá *-* og prjónið að byrjun á umferð. Það eru 42 lykkjur í umferð. Nú skiptist stykkið þannig: UMFERÐ 5: Prjónið slétt og umferðin endar mitt á milli 2 síðustu lykkja sem voru fléttaðar saman. Síðan er prjónað yfir næstu 21 lykkjur í umferð, setjið þær 21 lykkjur sem eftir eru á þráð. UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur og aukið út hvoru megin við fyrri lykkjuna sem er með prjónamerki, prjónið 11 lykkjur. * Næstu 2 lykkjur eru fléttaðar til að koma í veg fyrir göt þegar stykkið skiptist síðar, þetta er gert þannig: Setjið næstu lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni *, prjóni sléttar lykkjur og aukið út hvoru megin við lykkju með prjónamerki, prjónið 11 lykkjur, prjónið frá *-* og prjónið að byrjun á umferð. Það eru 54 lykkjur í umferð. Nú skiptist stykkið þannig: UMFERÐ 5: Prjónið slétt og umferðin endar mitt á milli 2 síðustu lykkja sem voru fléttaðar saman. Síðan er prjónað yfir næstu 27 lykkjur í umferð, setjið þær 27 lykkjur sem eftir eru á þráð. Hjartað skiptist mitt í fléttunni í hvorri hlið og hjartað er prjónað til loka í 2 hlutum héðan. UMFERÐ 1: Prjónið slétt og aukið út um 2 lykkjur við prjónamerki = 29 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið slétt og aukið út 2 lykkjur við prjónamerki = 31 lykkjur. UMFERÐ 4-6: Prjónið slétt. UMFERÐ 7: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið fram að 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki í, lyftið yfir 2 næstu lykkjum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunum yfir prjónuðu lykkjuna. Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð og prjónið 2 lykkjur slétt saman = 27 lykkjur. UMFERÐ 8: Prjónið slétt. Prjónið eins og umferð 7 þar til eftir eru alls 7 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum síðustu lykkjurnar. Herðið á þræði og festið vel. Fyllið hjartað með vatti áður en hinn hlutinn er prjónaður Setjið til baka 27 lykkjur af þræði á sokkaprjóna og prjónið eins og fyrri hluti, passið uppá að fylla hjartað með vatti á meðan prjónað er. FRÁGANGUR: Þræðið þráð í gegnum lykkjur frá uppfitjunarkanti, herðið á þræði þannig að opið neðst niðri lokist. Festið þráðinn vel. Saumið e.t.v. eitt spor eða tvö í miðju þar sem hjartað skiptist. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropswinterslove eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1556
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.