Mireille Lehoulle skrifaði:
Bonjour est-ce qu'il serait possible d'avoir les explications de ce modèle tricoté aux aiguilles ? merci
10.05.2025 - 10:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lehoulle, il n'existe qu'une version crochet de ce modèle, si vous préférez une version tricot, vous pouvez par exemple ne tricoter qu'une seule moufle en suivant un modèle - par exemple de moufles feutrées, ici. Bon tricot!
12.05.2025 - 07:43
Anna skrifaði:
Thank you very much for the instructions on knitting a mitten-potholder. I will tell you what problems I had - maybe it will help someone (maybe I don't know the language well and didn't understand it right away). The number of loops is given for three sizes, you need to choose a size, and, accordingly, the number of loops, and I thought you need to put markers. But then everything became clear, thank you for the good instructions! I knitted from textile yarn
23.10.2024 - 14:36
April skrifaði:
Hi this appears to be for a right hand? How can I make a left hand one?
23.06.2024 - 09:46DROPS Design svaraði:
Dear April, this pattern is rather smmetric, yo you can use it with both hand. The only thing, is the little loop that can be put on the other side. Happy Stitching!
23.06.2024 - 15:17
Helen Henricsson skrifaði:
Finns det någon video på hur man virkar grillvanten?
20.03.2024 - 10:51DROPS Design svaraði:
Hej Helen. Nej dessvärre finns det ingen video till hela mönstret, men det finns videor för de olika maskorna. Mvh DROPS Design
20.03.2024 - 14:30
Marina skrifaði:
Som vanlig kommer Drops med en ubrukelig oppskrift hvor forklaring er så på jordet dumt forklart, at etter 1 runde var arbeidet vridd og lite gøy å fortsette på. Tror ikke jeg har funnet èn oppskrift hvor forklaring er så lett å forstå at selv et barn klarer det. Har ikke problemer med oppskrifter fra andre, så det er ikke JEG som er problemet. Ubrukelig nettside.
19.03.2023 - 07:47
Valérie skrifaði:
Hello. Is there any chance to have the pattern to be made for felting for effective heat protection ? Love your patterns
13.02.2022 - 23:05
Annika Lindow skrifaði:
Hej! Går det åt 200 gram garn till en grillvante?
11.01.2022 - 16:38DROPS Design svaraði:
Hej Annika. Ja det stämmer. Mvh DROPS Design
12.01.2022 - 14:25
Holiday Mitts#dropsholidaymitts |
|
![]() |
![]() |
Heklaður ofnhanski úr 2 þráðum DROPS Paris. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1550 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð er hekluð 1 loftlykkja – þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur kemur sem viðbót. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. ÚRTAKA: Heklið 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur um heklunálina), bregðið þræðinum 1 sinni uppá heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 fastalykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- OFNHANSKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá hönd að fingrum. Allur vettlingurinn er heklaður með 2 þráðum. OFNHANSKI: Byrjið með heklunál 5,5 og 2 þráðum í lit vínrauður í DROPS Paris. Heklið 46-48-52 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA. Snúið stykkinu, hoppið yfir fyrstu 12 loftlykkjur (= lykkja til upphengis), síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 34-37-40 fastalykkjur. Tengið stykkið saman í hring með því að hekla 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Skiptið yfir í 1 þráð í lit vínrauður og 1 þráð í lit plóma í DROPS Paris (= 2 þræðir). Heklið síðan stykkið í hring með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-18 cm, heklið op fyrir þumal þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju, heklið 11-13-14 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 15-16-18 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af þeim 18-20-21 fastalykkjum sem eftir eru = 30-34-36 lykkjur (11-13-14 loftlykkjur og 19-21-22 fastalykkjur). Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til stykkið mælist 24-26-27 cm (nú eru eftir 5-6-7 umferðir til loka máls). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 15-17-18 fastalykkjur. Fækkið nú lykkjum hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Heklið 2 fastalykkjur saman á undan og á eftir báðum prjónamerkjum – sjá ÚRTAKA (= 4 fastalykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 5-6-7 sinnum = 10-10-8 fastalykkjur eftir. Snúið stykkinu og leggið stykkið flatt. Heklið síðan 10-10-8 fastalykkjur saman í gegnum bæði lögin = 5-5-4 fastalykkjur. Klippið þræðina frá og festið. Snúið stykkinu með réttuna út. Stykkið mælist ca 28-30-32 cm ofan frá og niður. ÞUMALL: Notið heklunál 5,5 og 1 þráð í lit vínrauður og 1 þráð í lit plóma (= 2 þræðir). Heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 15-16-18 fastalykkjum meðfram opi fyrir þumal og heklið 11-12-14 fastalykkjur í loftlykkjuröð sem var hekluð = 26-28-32 fastalykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki á eftir 13-14-16 fastalykkjum. Heklið síðan þumal hringinn með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Þegar heklaðar hafa verið 2-3-3 umferðir með fastalykkjum, fækkið lykkjum í næstu umferð þannig: Heklið 2 fastalykkjur saman á undan og á eftir báðum prjónamerkjum – munið eftir ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-5 sinnum = 10-12-12 fastalykkjur eftir. Í næstu umferð er hekluð 1 fastalykkja í hverja af 2-0-0 fyrstu fastalykkjum, heklið síðan næstu fastalykkjur saman 2 og 2 =6-6-6 fastalykkjur eftir. Snúið þumlinum, leggið flatan og heklið 6-6-6 fastalykkjur saman í gegnum bæði lögin = 3-3-3 fastalykkjur. Klippið þræðina frá og festið. Snúið þumlinum með réttuna út. Þumallinn mælist ca 8-9-10 cm. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsholidaymitts eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1550
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.