Cécile skrifaði:
Après avoir fait les augmentations du devant du chausson, il faut commencer les côtes. Vous dites tricoter trois mi Jersey et 12 mai suivantes en côte à partir. D’où faut-il commencer ces trois mail Jersey du marqueur de début de tour du premier marqueur d’augmentation ? Merci de votre retour
02.09.2026 - 13:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Cécile, vous tricotez ce tour en commençant par le début du tour, c'est le même début qu'auparavant, vous aurez ainsi les mailles du dessus du pied en côtes et les autres mailles en jersey. Bon tricot!
03.09.2026 - 18:09
Brugere skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas pourquoi il faut couper le fil après les 24 mailles? LES 6 dernières mailles avant l ouverture du dessus de pied ont en fait quoi? Pour l arrière du chausson vous dites commencer sur l envers faut il retourner l ouvrage completement? Pour avoir le point mousse face à nous ?? Je ne comprends pas vraiment. Merci pour votre aide . Cordialement
16.02.2022 - 10:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Brugere, on termine le dernier tour par les 24 mailles jersey pour terminer le tour comme avant. Ensuite vous coupez le fil et vous tricotez la suite du chausson en rangs (= allers et retours) en commençant sur l'envers et en tricotant la 1ère maille à droite des mailles rabattues (vu sur l'endroit). Bon tricot!
16.02.2022 - 11:31
Michèle PREVOST skrifaði:
Je propose Chaleur discrète
08.08.2021 - 02:42
Alexandra Janse skrifaði:
À pas de souris
05.08.2021 - 09:45
Avely skrifaði:
Snowflake walk
04.08.2021 - 10:05
Helen skrifaði:
Nice simple design.
04.08.2021 - 06:55
Erna skrifaði:
Sense & sensibility
04.08.2021 - 02:36
Yvonne Faasen skrifaði:
Nice and cosy
03.08.2021 - 16:06
Grandma's Softies#grandmassoftiesslippers |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðar tátiljur úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köntum í stroffprjóni. Stærð 35 – 43.
DROPS 227-58 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með merki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með merki í), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá tá og upp að rist, síðan er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna að miðju aftan á hæl. Tátiljan er saumuð saman fyrir miðju að aftan og fram að tá. FRAMAN Á TÁTILJU: Fitjið upp 22 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Setjið 2 merki í stykkið með því að setja 1 merki í fyrstu lykkju og 1 merki í 12. lykkju í umferð (= í hliðar á tátilju). Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við báðar lykkjur með merki í – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 4-5-6 sinnum = 38-42-46 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-10-11 cm, prjónið stroffprjón fyrir miðju á fæti, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 3 lykkjur sléttprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 12-14-16 lykkjur, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 22-24-26 lykkjur sléttprjón. Prjónið svona þar til stykkið mælist 14-14-15 cm frá uppfitjunarkanti. Mátið e.t.v. tátiljuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú á að fella af lykkjur fyrir miðju á fæti, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 3 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fellið af næstu 7-9-11 lykkjur (fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur), prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið og prjónið 22-24-26 lykkjur sléttprjón. Klippið þræðina og festið. Afgangur á tátilju er prjónaður fram og til baka á hringprjón 3,5 eins og útskýrt er að neðan. AFTAN Á TÁTILJU: Það eru 31-33-35 lykkjur í umferð. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt í hvorri hlið (séð frá röngu). Nú hafa verið prjónaðar 3 umferðir fram og til baka og næsta umferð er prjónuð frá réttu, aukið út um 1 lykkju innan við ystu 4 lykkjur í hvorri hlið – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 4-5-6 sinnum í hvorri hlið = 39-43-47 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 20-22-25 cm frá uppfitjunarkanti. Nú eru eftir ca 2 cm að loka máli. Mátið e.t.v. tátiljuna og prjónið að óskaðri lengd. Setjið 1 merki í miðju lykkju í umferð – það eiga að vera 19-21-23 lykkjur hvoru megin við lykkju með merki í. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki í – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum = 33-37-41 lykkjur eftir. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu og látið endann á þræðinum vera ca 20 cm langan, það á að nota hann síðar fyrir frágang. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið affellingarkantinn saman tvöfaldan og saumið tátiljuna saman við miðju að aftan – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Saumið saman opið framan á tá með lykkjuspori – saumið 11 lykkjur ofan á fæti saman við 11 lykkjur undir færi. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #grandmassoftiesslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-58
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.