DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Merino Extra Fine yarn
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 644.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS Children 40-28

#lavenderlacesheadband

DROPS Design: Mynstur me-082-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
2 –3/5 – 6/9 – 10/12 ára
Höfuðmál: ca 48/50 – 50/52 - 52/54 - 54/56 cm
Hæð: 9-9-11-11 cm.

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50-100-100 gr litur 36, ametist

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðal mitt að framan.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 644.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan og saumað saman í lokin.

EYRNABAND:
Fitjið upp 30-30-36-36 lykkjur á sokkaprjón 4 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið mynsturteikningu A.1 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Haldið áfram með mynstur A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið þar til stykkið mælist 22½-23½-24-24½ cm (= helmingur af heildar lengd, mátaðu e.t.v. eyrnabandið og prjónaðu að óskaðri lengd). Nú er gerður snúningur fyrir miðju framan á eyrnabandinu þannig: Setjið fyrstu 15-15-18-18 lykkjur á kaðlaprjón, prjónið þær 15-15-18-18 lykkjur sem eftir eru á prjóni. Prjónið síðan 15-15-18-18 lykkjur af kaðlaprjóni. Haldið áfram fram og til baka með mynstur A.1 eins og áður þar til stykkið mælist ca 45-47-48-49 cm – stykkið á að vera jafn langt hvoru megin við snúning að framan. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Saumið eyrnabandið saman mitt að aftan, saumið innan við uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn. Festið þráðinn.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.10.2021
Leiðrétting í mynsturteikningu A.1 stærð 2 - 3/5 ára.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu<br />
<br />
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir 2 lykkjurnar sem voru prjónaðar = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir 2 lykkjurnar sem voru prjónaðar
þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram að næsta tákni í mynsturteikningu = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram að næsta tákni í mynsturteikningu
Diagram for DROPS Children 40-28
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderlacesheadband eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 40-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Gabriele Kleinert skrifaði:

Ich bekomme es nicht hin, das Strickstück in der Mitte zu verzopfen.\r\nEs sind zu viele Maschen zum verzapfen. Es ist zu kurz um die Nadeln von der Zopfnadel aufzunehmen. Was kann ich tun?

06.03.2025 - 11:08

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Kleinert, in diesem Video zeigen wir (für ein anderes Modell), wie man so ein Stirnband verzöpfen kann; wenn es immer noch zu tricky ist, dann können Sie die Arbeit in 2 teilen, und ein paar cm über beide Hälfte stricken, und dann erst die beide Hälfte vezöpfen, wie wir das in diesem Video (für ein anderes Modell) stricken. Kann das helfen? Viel Spaß beim Stricken!

06.03.2025 - 13:45

country flag Lena Hellquist skrifaði:

Finns det film på hur man gör flätan mitt fram på pannbandet? Eller en tydligare förklaring

27.01.2025 - 11:33

DROPS Design svaraði:

Hej Lena. I denna video ser du hur man kan göra ett pannband med fläta. I mönster DROPS Children 40-28 stickas det dock inte några extra varv som i videon utan maskorna flyttas direkt. Mvh DROPS Design

28.01.2025 - 08:50

country flag Mathy skrifaði:

Hei, bildet er jo ikke samme som oppskriften. Man får jo ikke de små flettene som er på bildet. Hvorfor ikke?

30.10.2024 - 23:16

DROPS Design svaraði:

Hej Mathy, jo det gør du, du starter nederst til højre i diagrammet, vi kan forklare de første masker i de største størrelser: 1rett, 1vrang, ta 1 maske løs av pinnen som om den skulle strikkes rett, strikk 2 rett , løft den løse masken over de 2 maskerne som blev strikket rett (nu har du 4 masker på højre pind), 1 vrang, 3 rett, 1vrang osv... På næste pind strikker du vrang over vrangmaskerne og rett over rettmaskerne og imellem de 2 masker hvor du tog en ind, laver du et omslag. På 3 pind strikker du igen fra højre side i diagrammet: 1 ret, 1vrang, 1ret, 1ret(=omslaget), 1ret, 1 vrang 3 rett osv :)

31.10.2024 - 10:05

country flag Nicole skrifaði:

Vielen Dank. Jetzt hat es geklappt, aber das Muster ist irgendwie verdreht. Habe die zopfmaschen in einer hinreihe abgehoben, die letzten 15 gestrickt und dann die ersten 15. jetzt ist aber quasi die Rückseite oben (vor dem Zopf die Hinreihe). Was muss ich beachten? Vielen Dank schonmal!!

15.10.2024 - 12:39

DROPS Design svaraði:

Liebe Nicole, beachten Sie daß die letzten Maschen auch bei einer Hin-Reihe (wie die ersten Maschen) gestrickt werden, so sind Sie sicher daß die Arbeit nicht gedreht wird. Viel Spaß beim Stricken!

15.10.2024 - 16:48

country flag Nicole skrifaði:

Ich habe eine Frage. Wenn ich den Zopf Stricken will komme ich dabei überhaupt nicht zurecht, weil die Maschen viel zu eng sind. Gibt es einen Tipp? Danke!

15.10.2024 - 08:49

DROPS Design svaraði:

Liebe Nicole, wir haben keinen besonderen Tipp, versuchen Sie die Maschen genauso wie zuvor zu stricken, dh nicht zu eng aber auch nicht zu locker. Nach einpaar Reihen wird es wieder einfacher. Vielleicht können Sie mit einer Rundnadel stricken, so sind Sie veilleicht bequemer? Viel Spaß beim Stricken!

15.10.2024 - 10:35

country flag Tony Dixon skrifaði:

Brilliant, thank you for the explanation makes sense now. Did not help that I was working the graph the wrong way around. Just hoping I can stretch the knitting across to get the 18 stitches off the cable needle later xxxx

18.09.2024 - 15:35

country flag Tony Dixon skrifaði:

DROPS children 40-28 Hi. Sorry I do not understand graph. For groups of 3 stitches. Row 3 I think means … knit 2 together, yarn over needle then knit 3rd stitch ( makes 3 stitches on needle). Row 4 then says …slip 1, knit 2 (therefore using the 3 stitches) then pass the slipped stitch over which just leaves 2 stitches from the 3 on the needle. I know I am misunderstanding something but cannot figure out where I am going wrong. Please help. Thank you.

17.09.2024 - 18:04

DROPS Design svaraði:

Hi Tony, You read the diagrams bottom up and from right to left from the right side or left to right on the wrong side. If it is the first row you are struggling on, this is: K1, P2, slip 1 stitch knit-wise, knit 2 and pass the slipped stitch over the 2 knitted stitches (1 stitch decreased which is replaced by the yarn over on row 2). Hope this helps and happy knitting!

18.09.2024 - 06:48

country flag Anita skrifaði:

Vad betyder när en ruta är svart på diagrammet och det står att rutan är ingen maska utan gå vidare. Vad gör jag med den maskan då?

01.09.2024 - 21:38

DROPS Design svaraði:

Hei Anita. Det betyr at det ikke er noen maske. Om du ser på pinnen under, streken som går over 3 masker, her har du felt 1 maske og har kun 2 masker. Disse 2 maskene vises i diagrammet på pinnen over, mens den masken som er felt vises med en sort rute (det er ingen maske lengre). På 2.pinne gjøres det også kast, disse kastene blir til en maske på pinnen over, 3. pinne (3 rettmasker). mvh DROPS Design

02.09.2024 - 14:24

country flag Marlies Van Dijk skrifaði:

Beste Drops, Is de beschrijving van de. Grote kabel middenvoor wel correct? Het gaat mij niet lukken op die manier. Ik hoor het graag, groetjes, Marlies.

07.01.2024 - 13:14

DROPS Design svaraði:

Dag Marlies,

Ja, de beschrijving klopt. Je zet de eerste helft van de steken op een kabelnaald, dan brei je de volgende helft van de steken, waarbij de draad (die nog aan het begin van de steken die je zojuist op een kabelnaald hebt gezet) aantrekt om bij die steken te kunnen. Dan brei je de eerste helft van de steken. In plaats van een kabelnaald zou je ook een sokkenbreinaald kunnen gebruiken of de steken even op een hulpdraad zetten.

11.01.2024 - 19:01

country flag Katrín skrifaði:

Í mynsturteikningu A1 fyrir 3/5ára hvernig fæ ég aftur 30lykkjur ef ég slæ uppá prjónin bara 1 sinni? Ég prjónaði fyrstu umferð og endaði með 22 lykkjur og skil ekki hvernig ég fæ aftur 30 lykkjur ef ég slæ uppá bara 4 sinnum í næstu umferð.

28.05.2023 - 02:38

DROPS Design svaraði:

Blessuð Katrín. Í fyrstu umferð þá fækkar um 1 lykkju í kaðli = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt (ekki slétt saman), steypið lyftu lykkjunni yfir 2 lykkjurnar sem voru prjónaðar. Heldur áfram að prjóna út mynsturteikninguna A.1 = 4 lykkjur færri í allri umferðinni. Í umferð tvö þá er ferningur sem sýnir að búið er að fækka um þessa 1 lykkju og í sömu umferð er slegið 1 sinni uppá prjóninn fyrir þessa lykkju = 1 lykkja komin í staðin. Heldur áfram að prjóna út mynsturteikninguna = 4 lykkjur fleiri = 30 lykkjur.

30.05.2023 - 20:57