Sue skrifaði:
Hello, I don't understand how to continue doing double crochets in the row below the one that has just been done. The pattern says to continue in this way, however for me that means the pattern isn't growing in height but just getting thicker??? I gather I'm misunderstanding something, could you do a demo? Hope to hear from you very soon as I'm very stuck! Thank you
22.11.2021 - 16:49DROPS Design svaraði:
Dear Sue, after you have worked a round with double crochets around each stitch (like relief crochet), you get a kind of small ridge, on next round, crochet in double crochets as before but in the stitches from the next to last round, ie not in the stitches worked to the ridge but through both loops of stitches to continue with double crochets as before. Happy crocheting!
23.11.2021 - 08:15
Patrizia skrifaði:
Buongiorno, ho guardato e riguardato attentamente le spiegazioni per eseguire all'uncinetto questo cappello, ma lancano le indicazione sul quantitativo di lana necessaria. In effetti si fa riferimento al filato WISH, manca il numero di gomitoli richiesti. Mi potreste aiutare, per favore? Vi ringrazio Buoona giornata
01.11.2021 - 12:01DROPS Design svaraði:
Buonasera Patrizia, la quantità di filato è riportata poco sotto il titolo, di fianco alla foto. In ogni caso servono 100 g di filato per entrambe le taglie. Buon lavoro!
01.11.2021 - 23:06
Winter Fisher#winterfisherhat |
|
![]() |
![]() |
Heklaður hattur úr DROPS Wish. Stykkið er heklað ofan frá og niður.
DROPS 225-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1. fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð. LEIÐBEININGAR: Fyrsta umferð er hekluð frá réttu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki. Haldið svona áfram fram og til baka, til skiptis með umferð frá réttu og með umferð frá röngu. ÚTAUKNING: Til að reikna út hvernig auka á út jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út yfir í umferð (t.d. 48 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 12. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur í 12. hverja lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Allt stykkið er heklað í hring, jafnframt það sem stykkinu er snúið eftir hverja umferð – sjá LEIÐBEININGAR. HATTUR: Heklið með 4 loftlykkjur með heklunál 7 með DROPS Wish og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið síðan 6 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: Heklið * 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 18 lykkjur. UMFERÐ 4: Heklið * 2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið svona áfram hringinn og aukið út 6 lykkjur í hverri umferð, en í hverri umferð er hekluð 1 lykkja fleiri á milli hverra útaukninga. Þegar heklaðar hafa verið 8-9 umferðir eru 48-54 lykkjur í umferð. Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju þar sem auknar eru út 4-0 fastalykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 52-54 fastalykkjur. Heklið nú 1 umferð frá réttu þannig: Heklið 1 umferð frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju um hverja lykkju, þ.e.a.s. heklið ekki í lykkjubogana, heldur er heklað um sjálfa lykkjuna. Endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Haldið áfram með fastalykkjur í umferð á undan síðustu umferð sem var hekluð (önnur hver umferð er hekluð frá réttu og frá röngu eins og áður). Þegar stykkið mælist 16-17 cm ofan frá á húfu (ca 8 cm frá umferð sem var hekluð um fastalykkjurnar), heklið barð, stillið af að næsta umferð sé umferð sem sé hekluð frá röngu. BARÐ: Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju þar sem auknar eru út 3-1 lykkjur jafnt yfir = 55-55 lykkjur . Setjið nú 5 prjónamerki í stykkið án þess að hekla þannig (setjið prjónamerkin frá réttu): Hoppið yfir fyrstu 2 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, * hoppið yfir næstu 11 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum í umferð, nú eru 9 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Heklið fastalykkjur eins og áður (önnur hver umferð er hekluð frá réttu og röngu eins og áður), JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju við hvert prjónamerki: UMFERÐ 1: Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í lykkjuna á eftir hverju prjónamerki (séð frá réttu) = 60. Færið prjónamerkin 2 lykkjur til vinstri (séð frá réttu). UMFERÐ 2: Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í lykkjuna á undan hverju prjónamerki (séð frá röngu) = 65 lykkjur. Færið prjónamerkin 2 lykkjur til vinstri (séð frá réttu). UMFERÐ 3: Aukið út um 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í lykkjuna á eftir hverju prjónamerki (séð frá réttu) = 70 lykkjur. Færið prjónamerkin 2 lykkjur til vinstri (séð frá réttu). Haldið svona áfram, með að færa prjónamerkin 2 lykkjur til vinstri (séð frá réttu) og aukið út um 1 lykkju við hvert prjónamerki þar til aukið hefur verið út alls 7 sinnum = 90 lykkjur. Heklið nú kant í lokin þannig: Heklið 1 fastalykkju um hverja lykkju, þ.e.a.s. ekki er heklað í lykkjubogana, heldur er heklað um sjálfa lykkjuna. Endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið þráðinn og festið. Hatturinn mælist ca 24-25 cm ofan frá og niður. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterfisherhat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 225-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.