Rebecca skrifaði:
Ich habe beim Kragenachal jetzt bis zur Bruchkante gestrickt und es rollt sich komplett ein, was kann ich tun oder geht das wenn ich weiter stricke weg?
05.03.2022 - 20:10DROPS Design svaraði:
Liebe Rebecca, Sie können danach den Kragenschal mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen. Viel Spaß beim stricken!
07.03.2022 - 08:37
Erica skrifaði:
Wunderschön
08.01.2021 - 10:49
Christa Gottschalk skrifaði:
Muster gut für frühj./sommer. sieht gut aus. luftig, leicht.
07.01.2021 - 19:56
New Chapter#newchapterset |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónað hálsskjól og handstúkur úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað í gatamynstri.
DROPS 221-30 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 160 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 16. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 15. og 16. hverja lykkju slétt saman. MYNSTUR: Kragi: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.3. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju á kraga / 6. hverja lykkju á handstúkum jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Prjónaður er faldur efst á hálsskjóli – faldurinn er saumaður niður á röngu á stykki. HÁLSSKJÓL: Fitjið aðeins laust upp 160-180 lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 150-170 lykkjur. Prjónið 5 umferðir sléttprjón fyrir fald. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= uppábrot). Prjónið síðan 6 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið A.1 hringinn (= 15-17 mynstureiningar með 10 lykkjum). Endurtakið A.1 á hæðina þar til stykkið mælist ca 31-34 cm frá uppábroti – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.2 hringinn (= 15-17 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 210-238 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 36-39 cm frá uppábroti. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! FRÁGANGUR: Brjótið inn faldinn efst á hálsskjóli að röngu og saumið niður fallega með smáu spori. Til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Handstúkurnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. Prjónaður er faldur neðst á handstúkunum – faldurinn er saumaður niður á röngu á stykki. HANDSTÚKUR: Fitjið aðeins laust upp 60-70 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 50-60 lykkjur. Prjónið 5 umferðir sléttprjón fyrir fald. Næsta umferð er prjónuð þannig. * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= uppábrot). Prjónið síðan 6 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 5-6 mynstureiningar með 10 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað alls 4-5 sinnum á hæðina, prjónið A.3 hringinn (5-6 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 60-72 lykkjur í umferð. Prjónið umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! Prjónið aðra handstúku á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið inn faldinn neðst á handstúkum að röngu og saumið niður fallega með smáu spori – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #newchapterset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.