Wiebranda skrifaði:
Ik heb een algemene vraag die ook van toepassing is op dit mooie patroon. Het nadeel van breien/haken van bovenaf vind ik dat de halslijn (voor) soms zo tegen de hals oploopt. Ik voel dan steeds iets in mijn hals duwen. Hoe kan ik een patroon zo wijzigen dat de halslijn wat lager uitpakt?
23.03.2021 - 20:27DROPS Design svaraði:
Dag Wiebranda,
Ik snap wat je bedoelt, maar dit is meer een ontwerpkeuze , waarbij je het patroon dus aan zou moeten passen, zodat je een ronding aan de voorkant hebt. Je zou minder steken op kunnen zetten, dan de eerste paar toeren aan de zijkanten steken meerderen of opzetten tot dat je op het juist aantal steken bent. Nadeel hiervan is dat je de overgangen ziet en je zult daarom waarschijnlijk ook een afwerkrand rondom de hals willen haken.
08.04.2021 - 09:37
Rebecca Gibbs skrifaði:
I must admit as a crocheter I am so grateful for any crochet 🧶 sweater pattern. I especially love this one as it is so light and lacey, a perfectly delightful sweater. Thanks 😊 to the special talents that share so much with us. 💖
10.03.2021 - 23:58
Carina skrifaði:
Er vild med denne bluse. En skam den er hæklet, da hverken min mor eller jeg kan hækle. Kunne være ret godt hvis den også blev lavet som strikkeopskrift.
18.01.2021 - 15:54
Ann skrifaði:
Nydelige farger, elsker båthalsen og at den er enkel men samtidig pen. Kommer nok til å hekle denne i flere farger!
11.01.2021 - 22:33
Santos skrifaði:
Need more simpel crochet sweaters!!! Lover the boat line in the neck.
10.01.2021 - 08:20
JMFS skrifaði:
Yes! Crochet sweater! Need more crochet options with sleeves and this fits the bill.
07.01.2021 - 21:51
Rocky Trails#rockytrailssweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Fabel. Stykkið er heklað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 220-20 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðull. LEIÐBEININGAR: Stykkinu er snúið eftir hverja umferð sem er hekluð. Þ.e.a.s. önnur hver umferð er hekluð frá réttu og röngu þannig: Fyrsta umferð er hekluð frá réttu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá röngu á stykki. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. Snúið stykkinu og heklið næstu umferð frá réttu á stykki. Haldið svona áfram fram og til baka, til skiptist með umferð frá réttu og með umferð frá röngu. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót við stuðlana í umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig auka/fækka eigi lykkjum jafnt yfir, teljið lykkjufjöldann sem auka á út/fækka á yfir (t.d. 18 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 6. Í þessu dæmi þá er lykkjum aukið út með því að hekla 2 stuðla í 6. hverja lykkju. Ef fækka á lykkjum, er í þessu dæmi hekluð 5. og 6. hver lykkja saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er heklað ofan frá og niður frá miðju að aftan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru heklaðar í hring, ofan frá og niður. Að lokum er heklaður kantur í kringum hálsmál. Allt stykkið er heklað í hring, jafnframt er stykkinu snúið í hverri umferð – sjá LEIÐBEININGAR. BERUSTYKKI: Heklið 123-132-135-144-144-147 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 3,5 með Fabel og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið fyrstu umferð þannig: Heklið 3 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju = 122-131-134-143-143-146 stuðlar. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 19-22-22-25-25-25 stuðlum, * heklið 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul *, heklið frá *-* yfir næstu 22 stuðla (= 11 lykkjur fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 40-43-46-49-49-52 stuðlum, * heklið 2 stuðla í næsta stuðul, 1 stuðul í næsta stuðul *, heklið frá *-* yfir næstu 22 stuðla (= 11 lykkjur fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af síðustu 19-22-22-25-25-25 stuðla = 144-153-156-165-165-168 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið – setjið prjónamerki á milli 2 lykkja þannig: Fyrsta prjónamerki: Hoppið yfir fyrstu 24-27-27-30-30-30 lykkjur, setjið 1. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hálfs bakstykkis og ermi). Annað prjónamerki: Hoppið yfir næstu 24 lykkjur, setjið 2. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli ermi og framstykkis). Þriðja prjónamerki: Hoppið yfir næstu 48-51-54-57-57-60 lykkjur, setjið 3. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og ermi). Fjórða prjónamerki: Hoppið yfir næstu 24 lykkjur, setjið 4. prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli ermi og hálfs bakstykkis). Það eru 24-27-27-30-30-30 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í stykkinu. Heklið nú 1. mynstur þannig: Heklið * A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 12 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 3 lykkjum) *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið A.1 út umferðina. Í síðustu umferð í mynsturteikningu eru auknir út að auki alls 0-12-12-12-12-24 stuðlar jafnt yfir þannig: Aukið út 0-6-6-6-6-12 lykkjur jafnt yfir á bakstykki (þ.e.a.s. 0-3-3-3-3-6 stuðlar á hálfu bakstykki í byrjun á umferð og 0-3-3-3-3-6 stuðlar á hálfu bakstykki í lok umferðar) og aukið út 0-6-6-6-6-12 stuðla jafnt yfir lykkjur á framstykki – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 192-213-216-225-225-240 stuðlar. Heklið nú 2. mynstur þannig: Heklið * A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 12 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 3 lykkjum) *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið A.1 út umferðina. Þegar mynstureiningin hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 240-261-264-273-273-288 lykkjur í umferð. Heklið nú 3. mynstur þannig: Heklið A.1 þar til eftir eru 6-6-6-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12-12-12 lykkjur (= 3-4-4-4-4-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6-6-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12-12-12 lykkjur, heklið A.1 þar til 6-6-6-6-6-6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12-12-12 lykkjur (= 3-4-4-4-4-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6-6-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12-12-12 lykkjur, heklið A.1 út umferðina. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 276-309-312-321-321-336 lykkjur í umferð. Nú er útaukningu fyrir XS og S lokið – heklið áfram frá ALLAR STÆRÐIR. Í stærð M, L, XL og XXL, heldur útaukning áfram þannig: Heklið nú 4. mynstur þannig (á við um stærð M, L, XL og XXL): Heklið A.1 þar til eftir eru 6-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12 lykkjur (= 3-4-4-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12 lykkjur, heklið A.1 þar til eftir eru 6-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12 lykkjur (= 3-4-4-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12-12-12 lykkjur, heklið A.1 út umferðina. Í síðustu umferð í mynsturteikningu eru auknir út að auki alls 0-6-6-18 stuðlar jafnt yfir þannig: Aukið út 0-3-3-9 stuðlar jafnt yfir lykkjur á hvorri ermi. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina eru 348-375-375-402 lykkjur. Nú er útaukningu í M og L lokið – heklið áfram frá ALLAR STÆRÐIR. Í stærð XL og XXL, heldur útaukning áfram þannig: Heklið nú 5. mynstur þannig (á við um stærð XL og XXL): Heklið A.1 þar til eftir eru 6-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12 lykkjur (= 3-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12 lykkjur, heklið A.1 þar til eftir eru 6-6 lykkjur á undan prjónamerki, helklið A.2 yfir næstu 9-12 lykkjur (= 3-4 mynstureiningar með 3 lykkjum), heklið A.1 þar til eftir eru 3-6 lykkjur á undan prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 9-12 lykkjur, heklið A.1 út umferðina = 411-450 lykkjur. Nú er útaukningu í XL og XXL lokið – heklið áfram frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Eftir alla útaukningu eru 276-309-348-375-411-450 lykkjur í umferð. Haldið áfram hringinn með mynstur A.1 þar til stykkið mælist 18-18-20-22-24-26 cm frá prjónamerki við háls – stillið af að síðasta umferð sem er hekluð sé 2. umferð í A.1. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 39-45-48-54-60-66 lykkjur (= 13-15-16-18-20-22 mynstureiningar A.1 = hálft bakstykki), hoppið yfir næstu 57-66-75-81-84-90 lykkjur (= 19-22-25-27-28-30 mynstureiningar A.1 = ermi), heklið 12 loftlykkjur undir ermi, heklið A.1 yfir næstu 84-87-102-105-123-138 lykkjur (= 28-29-34-35-41-46 mynstureiningar A.1 = framstykki), hoppið yfir næstu 57-66-75-81-84-90 lykkjur (= 19-22-25-27-28-30 mynstureiningar A.1 = ermi), heklið 12 loftlykkjur undir ermi, heklið A.1 yfir næstu 39-45-48-54-60-66 lykkjur (= 13-15-16-18-20-22 mynstureiningar A.1 = hálft bakstykki). Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-201-222-237-267-294 lykkjur. Heklið A.1 eins og áður fram og til baka frá miðju að aftan (= 62-67-74-79-89-98 mynstureiningar með A.1). Í næsta skipti sem 3. umferð í A.1 er hekluð, byrjar úrtaka – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Fækkið lykkjum jafnt yfir í hvert skipti sem 3. umferð í A.1 er hekluð þannig: Fækkið um 6 stuðla alls 3-3-3-2-2-2 sinnum og 0-0-3-0-3-3 stuðla alls 0-0-1-0-1-1 sinni = 168-183-201-225-252-279 lykkjur. A.1 er nú endurtekið 56-61-67-75-84-93 sinnum í umferð. Þegar stykkið mælist 14 cm frá þar sem ermar skiptust frá fram- og bakstykki er aukið út í 3. hverri umferð í A.1 þannig: Aukið út 15 stuðla jafnt yfir alls 0-0-1-1-0-0 sinnum, aukið út 9 stuðla jafnt yfir alls 3-3-3-2-4-3 sinnum, aukið út um 6 stuðla jafnt yfir alls 1-1-0-1-0-1 sinnum = 201-216-243-264-288-312 lykkjur. Útauknar lykkjur eru heklaðar í A.1. Mynsturteikning A.1 er endurtekin alls 67-72-81-88-96-104 sinnum í umferð. Heklið áfram þar til stykkið mælist 34-36-36-36-36-36 cm frá skiptingu – endið eftir umferð með stuðlum. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. Klippið þráðinn frá og festið. ERMI: Ermin er nú hekluð í hring, ofan frá og niður. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 fastalykkju í 7. loftlykkju við 12 loftlykkjur sem voru heklaðar undir ermi á fram- og bakstykki, 3 loftlykkjur (= 1. stuðull), heklið 1 stuðul í hverja af 5 næstu loftlykkjum, heklið A.1 eins og áður yfir 57-66-75-81-84-90 lykkjur, endið með 1 stuðul í hverja og eina af 6 loftlykkjum undir ermi = 69-78-87-93-96-102 lykkjur. Haldið áfram með A.1 hringinn (= 23-26-29-31-32-34 mynstureiningar með 3 lykkjum). Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um stuðla jafnt yfir í hvert skipti sem A.1 er endurtekið á hæðina – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í 3. umferð í A.1 þannig: Fækkið um 6 stuðla alls 0-1-3-5-6-6 sinnum og 3 stuðla alls 5-6-4-2-0-0 sinnum = 54-54-57-57-60-66 stuðlar. Mynsturteikning A.1 er endurtekið alls 18-18-19-19-20-22 sinnum á breidd. Heklið A.1 þar til stykkið mælist 39-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu (mátið e.t.v. stykkið og heklið að óskaðri lengd). Stillið af að síðasta umferð sé 1 umferð einungis með stuðlum. Heklið síðan kant í kringum ermar þannig: Heklið 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í fyrsta/næsta stuðul, 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm *, heklið frá *-* í kringum alla ermina og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið þráðinn frá og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu mitt að aftan og heklið kant í hálsmáli með Fabel og heklunál 3,5 þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju. Klippið þráðinn frá og festið. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rockytrailssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.