Aud skrifaði:
Jeg har skrevet ut oppskriften men får ikke mønsterdiagrammet. Det har skjedd tidligere ogå
13.03.2022 - 07:57DROPS Design svaraði:
Hei Aud. Sjekk dine printer utskrift innstillinger, og husk å trykk på Skriv ut ikonet (ikke bruk ctrl+P). mvh DROPS Design
14.03.2022 - 14:21
Anso skrifaði:
Comment faire suivre les fils dans le tricot jacquard en rond sans qu ils soient visibles ou bien forment un serpentin en relief sur l envers du travail ? Ce qui correspond au changement de rang. Merci
08.02.2022 - 17:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Anso, les changements de tour restent souvent visibles, quand on a des rayures, on peut tricoter un peu comme on le montre par exemple dans cette vidéo. Bon tricot!
08.02.2022 - 17:22
Lilou skrifaði:
Aucune paire sur deux aiguilles!!!. Dommage!
29.03.2021 - 12:02
Jen Flynn skrifaði:
Beautiful bunnies!
11.03.2021 - 08:02
Bunny Love#bunnylovesocks |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri, kanínum / páskakanínum og hjörtum. Stærð 35 – 46. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-1536 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 17. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 16. og 17. hverja lykkju slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR-2 (á við um hæl): Til að styrkja hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtöku með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan úr og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 12-12-14-14 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litum sítróna. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 1 umferð stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Skiptið yfir í litinn natur og haldið áfram með stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 3-3-4-4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð slétt með litnum natur og fækkið um 0-0-4-4 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 64-64-64-64 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 8-8-8-8 mynstureiningar með 8 lykkjum). JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 er lykkjum fækkað jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Ör-1: Fækkið um 8-8-0-0 lykkjur jafnt yfir = 56-56-64-64 lykkjur. Haldið áfram með mynstur (= 7-7-8-8 mynstureiningar með 8 lykkjum). Ör-2: Fækkið um 8-0-8-8 lykkjur jafnt yfir = 48-56-56-56 lykkjur. Haldið áfram með mynstur (= 6-7-7-7 mynstureiningar með 8 lykkjum). Ör-3: Fækkið um 0-4-0-0 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-56 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 23-23-24-24 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð er byrjun á umferð stillt af þannig að það komi ein páskakanína mitt framan á fæti, þ.e.a.s. snúið umferð þannig að hún passi við lykkjur sem eru settar á þráð eins og útskýrt er að neðan. Haldið eftir fyrstu 12-13-14-14 lykkjur á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-28-28 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl. Sjá LEIÐBEININGAR-2 og prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum sítróna yfir 24-26-28-28 hællykkjur í 5-5½-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – prjónamerkið er notað til að mæla lengd á fæti frá. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtakan hefur verið gerð til loka, prjónið næstu umferð með litnum sítróna þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 12-12-14-14 lykkjur á hæl, prjónið upp 11-12-13-14 lykkjur meðfram hlið á hæl innan við 1 kantlykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir 24-26-28-28 lykkjur af þræði mitt á fæti og prjónið upp 11-12-13-14 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl innan við 1 kantlykkju = 58-62-68-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-28-28 lykkjur á fæti. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum sítróna og fækkið lykkjum hvoru megin við 24-26-28-28 lykkjur á fæti þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á UNDAN fyrra prjónamerki á fæti slétt saman og prjónið 2 lykkjur á EFTIR seinna prjónamerki á fæti snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7-7-8-7 sinnum = 44-48-52-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 13-15-17-20 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið A.2 hringinn (= 11-12-13-14 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, eru eftir ca 4-4-5-5 cm að loka máli. Skiptið yfir í litinn natur. Mátið e.t.v. sokkinn og prjónið sléttprjón að óskaðri lengd áður en úrtaka hefst fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 22-24-26-28 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Í næstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-6-6-7 sinnum = 8 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið þráðinn frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27-30 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bunnylovesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1536
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.