Hvernig á að hekla umferðir með pufflykkjum og stuðlum
Það eru nokkrar aðferðir að hekla pufflykkjur, í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig er hægt að hekla eina umferð með pufflykkjum án keðjulykkju í «toppnum» á pufflykkju og eina umferð þar sem hekluð er 1 loftlykkja, 1 stuðull út umferðina. Við höfum nú þegar heklað eina umferð með loftlykkjum og heklum 1. pufflykkju í 4. loftlykkju frá heklunálinni þannig: *Bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni inn í gegnum loftlykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum loftlykkjuna, dragið báða uppslættina jafn langt (til að koma í veg fyrir að pufflykkjurnar verði of litlar og saman pakkaðar er mikilvægt að uppslátturinn sé dreginn eins langt og hægt er áður en hann stöðvast sjálfur) *, heklið frá *-* alls 5 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. Hoppið yfir 1 loftlykkju.
Heklið svona út umferðina og endið með 1 stuðli í síðustu lykkjuna, snúið og byrjið í næstu umferð. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull). Heklið svona út umferðina: 1 loftlykkja, 1 stuðull. Endurtakið þessar 2 umferðir á hæðina. Við notum garnið DROPS Snow í myndbandinu.
..auch hier sind 3 Stb. in einer masche, sonst aber sehr lehrreich demonstriert.vielen dank
09.07.2011 - 08:16